
Hljómsveitin Moses Hightower blæs til tónleika í Frystiklefanum í Rifi miðvikudaginn 28. nóvember næstkomandi. Daginn eftir verður sveitin í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Verður þetta í fyrsta sinn sem sveitin spilar á báðum þessara staða en meðlimir vonast til að geta komið sem oftast í framtíðinni, að því er fram kemur í tilkynningu frá umboðsmanni hennar.…Lesa meira








