Fréttir

true

Mannauðsdagur Akraneskaupstaðar í dag

Akraneskaupstaður heldur í dag mannauðsdag. Af þeim sökum eru börn ekki í leik- og grunnskólum þar sem starfsfólk heldur starfsdag til skipulagningar. Fleiri stofnunum á vegum bæjarfélagsins verður lokað frá og með hádegi. Það eru bæjarskrifstofurnar, Íþróttamiðstöðin á Jaðarsbökkum, Fjöliðjan og Bókasafn Akraness.Lesa meira

true

Snæfellingar fengu skell

Snæfell mátti sín lítils gegn toppliði Þórs Ak. þegar liðin mættust í sjöttu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi á föstudagskvöld. Leikurinn var einstefna nánast frá upphafi og gestirnir sigruðu að lokum stórt, 61-96. Liðin fylgdust að þar til um miðjan upphafsfjórðunginn. Þá hallaði heldur betur undan fæti hjá Snæfellingum, sem…Lesa meira

true

Skortur á eigin fé er stærsti þröskuldurinn inná húsnæðismarkaðinn

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að ráðast í sértækar aðgerðir til að gera ungu og tekjulágu fólki kleift að kaupa sér íbúðarhúsnæði. Stjórnin samþykkti tillögu Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og jafnréttismálaráðherra, um skipun starfshóps sem á að útfæra ákveðnar aðgerðir í þessu skyni sem gefist hafa vel hjá grannþjóðum. Í tilkynningu segir að ákvörðunin sé í samræmi…Lesa meira

true

Sala á heimaslátruðu kærð til lögreglu

Matvælastofnun hefur óskað eftir rannsókn lögreglu á markaðssetningu á lambakjöti af heimaslátruðu sem fram fór á bændamarkaði á Hofsósi 30 september síðastliðinn. „Samkvæmt lögum um slátrun og sláturafurðir má einungis dreifa og selja kjöt sem hefur verið slátrað í löggiltu sláturhúsi og heilbrigðisskoðað af dýralækni á vegum Matvælastofnunar. Meint brot felst í því að taka…Lesa meira

true

Sjóræningjahátíð á Eldhömrum

Krakkarnir á Eldhömrum í Grundarfirði slógu upp heljarinnar sjóræningjaveislu 14. nóvember síðastliðinn. Þá var fjölskyldum og vinum boðið á deildina og afrakstur vinnu síðustu vikna skoðaður. Mikið var búið að leggja á sig en krakkarnir voru búnir að skreyta allt hátt og lágt og þarna var meðal annars forláta sjóræningjaskip sem lá við ankeri.Lesa meira

true

Nýr bátur til Rifs

Útgerðarfélagið Guðbjartur ehf. á Hellissandi hefur fengið nýjan bát sem er af gerðinni Cleopatra 38 og ber hann nafnið Lilja SH. Lilja mun leysa af hólmi bátinn Guðbjart SH sem að sögn Þorvarðar Jóhanns Guðbjartssonar útgerðarmanns var orðinn of lítill. Var sá bátur gerður út á balalínu en Liljan er útbúin beitningarvél og hefur þegar…Lesa meira

true

Domagoj Samac til Skallagríms

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við Króatann Domagoj Samac um að leika með liði Borgnesinga í Domino‘s deild karla út keppnistímabilið. Domagoj Samac er 25 ára gamall, 206 cm á hæð og leikur stöðu framherja. Hann gengur til liðs við Skallagrím frá króatíska úrvalsdeildarliðinu KK Hermes Analitica Zagreb, þar sem hann hefur leikið það sem af…Lesa meira

true

Vilji í ráðuneytinu til að flýta þrífösun rafmagns á Mýrum

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur svarað erindi Borgarbyggðar um hvort flýta megi þrífösun rafmagns á Mýrum. Eins og komið hefur fram í fréttum Skessuhorns er skortur á þriggja fasa rafmagni hamlandi fyrir tæknivæðingu til sveita og beinlínis kostnaðarauki fyrir bændur að hafa ekki völ á slíku. Í svari ráðuneytisins til Borgarbyggðar segir m.a.: „Við höfum verið…Lesa meira

true

Lögreglu gert að taka að nýju til rannsóknar lónslosun

Í september síðastliðnum tók ríkissaksóknari þá afstöðu til kæru Skorradalshrepps að endurskoðuð verði ákvörðun Lögreglustjórans á Vesturlandi um að hætta rannsókn máls er snýr að losun Orku náttúrunnar á inntakslóni Andkílsárvirkjunar vorið 2017. Sú aðgerð leiddi til þess að þúsundir rúmmetra af botnseti bárust niður í Andakílsá og spillti veiðistöðum árinnar vorið 2017. Niðurstaða ríkissaksóknara…Lesa meira

true

Átak í Íslensku hrint af stað

Í morgun birjaði þrusugott málvöndurnaráltak hjá Skessuhorni. Magnús Magnússon er staðsettur á ristjórnarskrifstofu Skessuhorns þegar blaðamaður finnur hann. Hann fílar gg illa ömurlega íslensku og vill þess vegna birja með átak til þess að kidz í dag geti menntað sig í sick góðri íslensku. „Þúst, krakkar í dag kunna ekki sjitt í íslensku. Þúst, það…Lesa meira