Fréttir

true

Seðlabankinn hækkar stýrivexti

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands lýsti í morgun þeirri ákvörðun sinni að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 4,5% í stað 4,25%. „Hagvöxtur á síðasta ári og á fyrri hluta þessa árs var meiri en fyrri áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Þrátt fyrir vísbendingar um hægari vöxt…Lesa meira

true

Umsóknir í lokahnykk ljósleiðaraverkefnis

Fjarskiptasjóður hefur nú auglýst eftir umsóknum um styrki í átaksverkefninu Ísland ljóstengt fyrir árið 2019. Umsóknarferli vegna ársins 2019 skiptist í A, B og C-hluta. Stefnt er að undirritun síðustu samninga á grundvelli verkefnisins vorið 2020 og er tekið á móti umsögnum vegna A- hluta til 23. nóvember nk. Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að…Lesa meira

true

Mikill vindur á Breiðafirðinum

Gul viðvörun sökum hvassviðris er fyrir Vestfirði fyrir morguninn og eitthvað fram eftir degi. Hvasst verður á Breiðafirðinum, eða 12-18 m/s. Útlit er fyrir að það lægi með kvöldinu.Lesa meira

true

Það sem ekki varð

Hrönn Ásgeirsdóttir, félagsráðgjafi á Akranesi, hlaut á dögunum verðlaun Ís-Forsa, samtaka um rannsóknir í félagsvísindum, fyrir framúrskarandi framlag til rannsókna á sviði félagsvísinda á meistarastigi. Verðlaunaritgerð Hrannar heitir: „Það sem ekki varð“ og fjallar um upplifun og reynslu foreldra af stuðningi og þjónustu í kjölfar barnsmissis. Rannsóknarefnið er henni mikið hjartans mál, því Hrönn þekkir…Lesa meira

true

Ungt fólk í búskap

Ábúendaskipti eru ekki sérlega tíð um þessar mundir í sveitum landsins. Á bænum Valþúfu á Fellsströnd í Dölum hafa nýir ábúendur nú keypt jörðina og tekið við búskap. Það eru þau Sæþór Sindri Kristinsson og Rúna Blöndal sem söðluðu um, seldu húsið sitt á Akranesi, keyptu sér jörð og taka við búi af þeim Hrefnu…Lesa meira

true

Stofna Minningarsjóð Heimis Klemenzsonar

Stofnaður hefur verið sjóður til minningar um Heimi Klemenzson tónlistarmann frá Dýrastöðum í Norðurárdal og á döfinni eru fyrstu tónleikarnir sem sjóðurinn stendur fyrir. Það eru vinir, ættingjar og samverkamenn Heimis sem vilja með stofnun sjóðsins halda minningu hans á lofti og sérstaklega elju hans og fagmennsku á tónlistarsviðinu. Ráðgert er að sjóðurinn verði sjálfseignarstofnun.…Lesa meira

true

Dregið í 16 liða úrslit bikarsins

Dregið var í viðureignir í 16 liða úrslitum Geysisbikars karla og kvenna í hádeginu í dag. Skallagrímur og ÍA voru í pottinum karlamegin eftir sigur í fyrstu umferð bikarsins. Bikardrátturinn fór á þá leið að Skallagrímur mætir 1. deildar liði Selfyssinga í Borgarnesi en ÍA heimsækir ÍR. Skagamenn leika sem kunnugt er í 2. deild…Lesa meira

true

Stór evrópskur styrkur í verkefni sem auka á vellíðan ungmenna

Rannsóknateymi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands hefur hlotið hartnær 100 milljóna króna styrk frá Evrópusambandinu til að þróa námsefni og bæta námsumhverfi í grunnskólum. Ætlunin er að stuðla að aukinni vellíðan og seiglu íslenskra ungmenna. Verkefnið er samevrópskt og nefnist UPRIGHT en hérlendis er því stýrt af Önnu Sigríði Ólafsdóttur, prófessor við Deild heilsueflingar, íþrótta og…Lesa meira

true

Ömmumatur, grín og glens á Skemmtikvöldi Skallagríms

Körfuknattleiksdeild Skallagríms í Borgarnesi boðar til þjóðlegrar veislu og fölskvalausrar gleði næstkomandi laugardagskvöld í Hjálmakletti í Borgarnesi. Á hlaðborði verður boðið upp á veislurétti ömmu, en meðal rétta hennar er sviðasulta með tilheyrandi meðlæti, kjöt í karrý, steikt lifrarpylsa og blóðmör, hjörtu og lifur í brúnni sósu og fleira góðmeti. Matnum verður svo hægt að…Lesa meira

true

Hálkublettir víða en hlýnar í dag

Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni eru nú hálkublettir á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku, en hálka eða hálkublettir nokkuð víða á láglendi. Í dag hvessir á landinu og hlýnar. Búist er við töluverðu hvassviðri við suðausturströnd landsins og mun þar ríkja hvassviðri fram á annað kvöld. Mun skaplegra veður verður á Vesturlandi.Lesa meira