Fréttir

true

Fyrstu nýju vélarnar komnar í hús hjá G.Run

Um miðja síðustu viku komu fyrstu nýju vélarnar í nýja fiskvinnslu Guðmundar Runólfssonar hf. í Grundarfirði. Þarna voru tvær frystivélar á ferðinni sem hvor um sig vega um 3,8 tonn. Það voru starfsmenn Kælismiðjunnar Frosts ehf sem voru á fullu við að setja upp nýju vélarnar þegar fréttaritara bar að garði. Þeir gáfu sér þó…Lesa meira

true

Hvetja til nýyrðasmíði

Degi íslenskrar tungu, fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, verður fagnað í tuttugasta og þriðja skipti föstudaginn 16. nóvember nk. Dagurinn hefur fest sig í sessi sem sérstakur hátíðisdagur íslenskunnar og er þá kjörið tækifæri til að fagna því sem vel er gert og minna á mikilvægi tungumálsins. Í ár verður opnuð ný upplýsingasíða þegar Nýyrðabankinn fer í…Lesa meira

true

Lambaþoni ætlað að kalla fram hugmyndir

„Ég veit að það er fullt af fólki þarna úti sem er með hugmyndir. Þetta verður vonandi hvatning fyrir fólk að taka þær lengra,“ segir Eva Margrét Jónudóttir, sérfræðingur hjá Matís og einn skipuleggjenda Lambaþons sem verður haldið um næstu helgi, dagana 9.-10. nóvember. Lambaþonið verður sett í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri og er ætlað að…Lesa meira

true

Skoðað hvernig Norðmenn útfæra gjaldtöku í vegakerfinu

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra átti fund með Jon George Dale samgöngu- og fjarskiptaráðherra Noregs síðastliðinn föstudag. Fundarefnið var að kynna sér skipulag vegamála í Noregi, útfærslur og breyttar áherslur þeirra í uppbyggingu á vegakerfinu. Á fundinum var farið yfir gjaldtökuleiðir sem Norðmenn hafa tileinkað sér til að hraða uppbyggingu vegakerfisins. Með Sigurði Inga…Lesa meira

true

Verkefnastjóri atvinnumála ráðinn hjá Akraneskaupstað

Sigríður Steinunn Jónsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri atvinnumála hjá Akraneskaupstað. „Ég er mjög ánægð með ráðninguna og spennt að vinna t.d. með Sævari Frey bæjarstjóra,“ segir Sigríður Steinunn í samtali við Skessuhorn. Alls bárust tuttugu og sjö umsóknir um starfið. Sigríður Steinunn mun hefja störf 1. desember næstkomandi. Hún lauk við meistaragráðu sína í rekstrarverkfræði…Lesa meira

true

Aðaltvímenningur BB hefst í kvöld

Félagar í Briddsfélagi Borgarfjarðar hefja aðaltvímenning vetrarins í kvöld klukkan 20. Sem fyrr verður spilað í Logalandi. Gert er ráð fyrir að keppnin verði í fjögur kvöld.Lesa meira

true

ÍA ekki í vandræðum með Grundarfjörð

Grundarfjörður tók á móti ÍA í Geysisbikarnum, bikarkeppni KKÍ föstudaginn 2. nóvember síðastliðinn. Heimamenn í Grundarfirði leika í þriðju deildinni en ÍA spilar í deild ofar. Það var þokkalegt jafnræði með liðunum fyrstu mínúturnar en fljótlega í öðrum leikhluta fóru Skagamenn að sýna styrk sinn og kláruðu leikinn með töluverðum yfirburðum. Lokatölur urðu 85-112 Skagamönnum…Lesa meira

true

Tré ársins baðað nýföllnum sjó

Í morgun snjóaði víða á Vesturlandi og er nú nokkuð jólalegt um að litast. Hlynurinn á meðfylgjandi mynd varð býsna fallegur þegar nýfallin mjöllin sat á greinum hans. Hlynur þessi má vera montinn, því nýverið var hann valinn tré ársins á Akranesi þegar umhverfis- og skipulagsnefnd bæjarfélagsins veitti honum sérstaka viðurkenningu. Tréð stendur á mótum…Lesa meira

true

Snæfellingar úr leik í bikarnum

Snæfell tók á móti Þór Þ. í fyrstu umferð Geysisbikars karla í körfuknattleik á laugardag. Gestirnir frá Þorlákshöfn, sem leika deild ofar en Snæfellingar, tóku öll völd á vellinum í öðrum leikhluta. Eftir það var leikurinn þeim auðveldur og þeir sigruðu að lokum með 90 stigum gegn 61. Þór Þ. skoraði fyrstu stigin í leiknum…Lesa meira

true

Borgnesingar áfram í bikarnum

Skallagrímur sigraði 1. deildar liði Hattar, 74-97, þegar liðin mættust í fyrstu umferð Geysisbikars karla í körfuknattleik. Leikið var á Egilsstöðum á laugardag. Skallagrímur hafði yfirhöndina í upphafi leiks og leiddu með nokkrum stigum framan af fyrsta leikhluta. En heimamenn gáfu Borgnesingum ekkert eftir, jöfnuðu metin og komust yfir áður en upphafsfjórðungurinn var úti, 19-17.…Lesa meira