
Sýningarvélin í Bíóhöllinni á Akranesi bilaði síðastliðið sumar. Því hefur ekki verið boðið upp á bíósýningar á Akranesi frá þeim tíma. Bæjarráð Akraness samþykkti á fundi sínum 25. október síðastliðinn að veita 8,1 milljón króna til kaupa á nýjum sýningarbúnaði í Bíóhöllina. Bæjarráð vísaði ákvörðuninni til bæjarstjórnar til endanlegrar staðfestingar.Lesa meira








