
Hrútasýning Búnaðarfélags Hvalfjarðar var haldin föstudaginn 19. október á Eystri-Leirárgörðum. Hún var vel heppnuð, lífleg og spennandi. Veitt voru þrenn verðlaun í þremur flokkum hrúta. Að auki voru veitt ný verðlaun – Heiðarhornið fyrir besta hrút sýningarinnar. Áhorfendur kusu fallegustu gimbrar sýningarinnar. Þrjár gimbrar í efstu sætunum voru síðan boðnar upp og rann afrakstur sölunnar…Lesa meira








