
Matvælastofnun vekur athygli neytenda á innköllun á Ora fiskbúðingi vegna galla í dósum. Ora hefur innkallað framleiðslulotur með tveimur „best fyrir“ dagsetningum, í samvinnu við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis. Innköllunin nær til eftirfarandi vöru: Vöruheiti: Ora Fiskbúðingur í 1/1 dós (855 grömm), strikamerki: 5690519000032 og lotunúmer L1C1561, L1C1562, L1C1563, L1C1071, L1C1072. Varan er merkt best…Lesa meira








