Fréttir

true

Útibúi Arionbanka verður lokað í Grundarfirði

Arionbanki hefur ákveðið að loka útibúi bankans í Grundarfirði og sameina það útibúinu í Stykkishólmi frá og með 5. nóvember næstkomandi. Um leið lokar síðasta bankaútibúið í Grundarfirði þar sem hátt í þúsund manns búa og fjölmörg fyrirtæki hafa starfsemi. Báðum starfsmönnum Arionbanka í Grundarfirði hefur verið boðin vinna í Stykkishólmi. „Áfram verður alhliða hraðþjónustubanki…Lesa meira

true

Aðgerðir enn í gangi á Kirkjufelli

Fjölmennt lið björgunar- og viðbragðsaðila hefur frá því laust fyrir klukkan 11 í morgun verið að störfum í suðaustanverðum hlíðum Kirkjufells við Grundarfjörð. Þar hrapaði erlendur ferðamaður klukkan 10:40 í morgun. Þyrla Landhelgisgæslunnar koma á staðinn í hádeginu, en hún gat ekki athafnað sig sökum hvassviðris í fjallinu. Sérhæfðir fjallabjörgunarmenn af höfuðborgarsvæðinu eru nú á…Lesa meira

true

Slys í Kirkjufelli

Fyrir um tuttugu mínútum voru björgunarsveitir, lögregla og sjúkraflutningamenn, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, kallaðar að Kirkjufelli við Grundarfjörð. Ferðamaður mun hafa slasast í hlíðum fjallsins.Lesa meira

true

Stefnt að fjölgun ráðuneyta um eitt

Velferðarráðuneytinu verður skipt upp í heilbrigðisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti, jafnréttismál færast á ábyrgð forsætisráðuneytis og málefni mannvirkja færast úr umhverfisráðuneyti í félagsmálaráðuneyti. „Markmiðið með þessum breytingum er að skýra verkaskiptingu, skerpa pólitíska forystu og skapa aukin sóknarfæri í málaflokkum sem ríkisstjórnin hefur í forgangi,“ segir í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. Tillaga til þingsályktunar þessa efnis hefur verið…Lesa meira

true

Malbikað sunnan við Borgarfjarðarbrú – næturlokanir í göngunum

Í dag, þriðjudaginn 18. september, er stefnt að því að malbika báðar akreinar og gatnamót á Vesturlandsvegi við Borgarfjarðarbraut. Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Búast má við umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08.00 og 22.00. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir…Lesa meira

true

Forvarnardagur í FSN

María Kúld Heimisdóttir forvarnarfulltrúi Fjölbrautaskóla Snæfellinga kynnti nýtt forvarnarteymi til leiks á dögunum. Agnes Helga Sigurðardóttir námsráðgjafi er ásamt Maríu í forvarnarteyminu en í því er einnig vel valinn hópur nemenda. Forvarnarteymið snýst ekki um boð og bönn heldur er markmiðið að upplýsa og fræða nemendur um það sem er í gangi í þjóðfélaginu. Forarnarteymið…Lesa meira

true

Svala Svavarsdóttir er nýr verkefnastjóri SSV

Svala Svavarsdóttir hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, SSV. Svala var valin úr hópi fjórtán umsækjenda og verður starf hennar að hafa umsjón með Uppbyggingarsjóði Vesturlands auk þess sem hún mun sjá um fjármál og upplýsingamál SSV. Svala er fædd og uppalin í Reykjavík en búsett í Búðardal. „Foreldrar mínir…Lesa meira

true

„Stjórnvöld vanbúin að bregðast við, taka og læra af gagnrýni“

„Íslendingar hafa farið sér hægar en nágrannaþjóðirnar í aðgerðum til að tryggja heilindi í opinberum störfum og hér á landi hefur minna tillit verið tekið til tilmæla og leiðbeininga alþjóðlegra stofnana um varnir gegn spillingu en æskilegt hefði verið,“ segir í skýrslu starfshóps um eflingu traust á stjórnmálum. Skýrslunni var nýverið skilað til forsætisráðherra. Að…Lesa meira

true

Kínverjar setja fram sérkröfur sem útiloka kjöt af riðusvæðum

Á síðustu þremur árum hefur verið unnið að gerð samnings um heilbrigðiskröfur og eftirlit með útflutningi lambakjöts frá Íslandi til Kína. Sú vinna hefur verið í höndum ráðuneyta og Matvælastofnunar. Nýlega undirritaði svo Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra samninginn fyrir Íslands hönd. Í honum koma fram ýmsar sérkröfur og skilyrði sem uppfylla þarf varðandi útflutning á…Lesa meira

true

Eiríkur fjallar um þjóðernispopulisma í nýju bók sinni

Dr. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, hefur sent frá sér bókina Conspiracy & Populism – The Politics of Misinformation. Hið virta forlag Palgrave Macmillan gefur bókina út á heimsvísu og er hún nú í dreifingu beggja vegna Atlantsála. Conspiracy & Populism er áttunda fræðibók Eiríks en hann hefur einnig sent frá…Lesa meira