Fréttir

true

Opnað fyrir umsóknir um framlög vegna fjarvinnslustöðva

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur opnað fyrir umsóknir um framlög sem veitt eru vegna fjarvinnslustöðva, sbr. aðgerð B.8 í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Markmið aðgerðarinnar er tvíþætt. Annars vegar að koma opinberum gögnum á stafrænt form og hins vegar að fjölga atvinnutækifærum á landsbyggðinni. Stofnanir sem ráðast í slík átaksverkefni utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um…Lesa meira

true

Samgönguvika stendur nú yfir

„Veljum fjölbreyttan ferðamáta“ er yfirskrift Samgönguviku í ár, en hún var sett í gær, á Degi íslenskrar náttúru. Um er að ræða samevrópska viku sem árlega stendur yfir dagana 16. – 22. september. Þema vikunnar vísar til þess ávinnings sem er af því að einskorða sig ekki við eina tegund samgangna heldur nýta til fulls…Lesa meira

true

ÍA og HK lyftu sér upp í Pepsídeild

Í gær fóru fram leikir í næstsíðustu umferð Inkassódeildar karla í fótbolta. Úrslit í þeim urðu þau að Skagamenn sigruðu Selfoss á Selfossi með þremur mörkum gegn engu. Á sama tíma tapaði Víkingur í Ólafsvík á heimavelli gegn Njarðvík 1-2. Þetta þýðir að það verður hlutskipti Skagamanna og HK að fara upp um deild, en…Lesa meira

true

Dagur íslenskrar náttúru er í dag

Dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur 16. september ár hvert enda hefur fátt mótað íslenska þjóð eins og náttúran. Ríkisstjórn Íslands ákvað árið 2010 að tileinka íslenskri náttúru sérstakan heiðursdag til að undirstrika mikilvægi hennar. Dagurinn sem varð fyrir valinu er fæðingardagur Ómars Ragnarssonar, 16. september, en sem frétta- og þáttagerðarmaður hefur hann verið óþreytandi…Lesa meira

true

Aldarfjórðungur síðan ÍA lagði Feyenoord

Á morgun, laugardaginn 15. september, verða liðin 25 ár síðan ÍA sigraði hollenska stórliðið Feyenoord í 1. umferð Evrópukeppni meistaraliða. Liðin mættust á Laugardalsvelli þennan dag árið 1993 og lauk leiknum með 1-0 sigri ÍA. Sigur ÍA á Feyenoord hefur lengi verið talinn einn sá fræknasti sem íslenskt félagslið hefur nokkru sinni unnið. Fáir bjuggust…Lesa meira

true

Þrír skólar á Vesturlandi fá styrk úr menntahluta Erasmus+

Rannís hefur útlutað úr menntahluta Erasmus+ áætlunarinnar, samtals um þremur milljónum evra eða um 370 milljónum króna til 43 evrópskra samstarfsverkefna. Mikil aukning varð á úthlutun til leik-, grunn- og framhaldsskóla, en veittur var styrkuð til þátttöku íslenskra skóla í 37 verkefnum. Þrír skólar á Vesturlandi fá styrk úr menntahluta Erasmus+ í ár og öll…Lesa meira

true

Fyrst um sinn verður mönnuð vakt í skýlinu við Hvalfjarðargöng

Eins og Skessuhorn hefur áður greint frá verða Hvalfjarðargöng afhent Vegagerðinni til eignar sunnudaginn 30. september næstkomandi en gjaldtöku verður hætt föstudaginn 28. september. Að sögn Magnúsar Vals Jóhannssonar, framkvæmdastjóra mannvirkjasviðs hjá Vegagerðinni, verður mönnuð vakt í skýlinu við göngin fyrst um sinn. „Til að byrja með verðum við áfram með vakt í skýlinu yfir…Lesa meira

true

Kenpo Karate í Borgarnesi

Það voru spenntir krakkar sem tóku við appelsínugula beltinu í Kenpo Karate tímanum í Borgarnesi í síðustu viku. Þar sýndu krakkarnir mismunadi aðferðir í sjálfsvörn fyrir foreldra. Sýningin endaði svo á beltis-afhendingu og krakkar fengu að spreyta sig í að brjóta spýtu í kjölfarið. Í þolfimisalnum í íþróttamiðstöðinni er Kenpo Karate kennt þrisvar í viku…Lesa meira

true

Riða greinist að nýju í Skagafirði

Riðuveiki hefur verið staðfest á bænum Vallanesi í Varmahlíð í Skagafirði. Síðast greindist riða á þessu svæði árið 2016 á bæjunum Brautarholti og Stóru-Gröf ytri. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða. Riðan greindist í sýni úr kind frá bænum þar sem nú eru um 370 fjár. Sýnið var tekið samkvæmt skimunaráætlun Matvælastofnunar…Lesa meira

true

Unnið að gerð Vitastígs á Breið

Hafist var handa við gerð Vitastígs á Breiðarsvæðinu á Akranesi 21. ágúst síðastliðinn og stendur nú vinna við stíginn sem hæst. Akraneskaupstaður fékk styrk til verkefnisins úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í apríl síðastliðinum. Styrkurinn nam 11,1 milljón króna og var veittur til að ljúka við um 150 metra langan stíg frá bílastæði og aðkomutorgi að áningarstaðnum…Lesa meira