Fréttir

true

Fjárlagafrumvarp ársins 2019 var kynnt í dag

Gert er ráð fyrir 29 milljarða króna afgangi af rekstri ríkissjóðs í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2019, sem Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í morgun. Afgangurinn er sem nemur einu prósenti af áætlaðri vergri landsframleiðslu næsta árs. Er það í samræmi við afkomumarkmið fjármálastefnu og fjármálaáætlunar. „Rekstur ríkissjóðs hefur verið jákvæður síðustu ár þrátt…Lesa meira

true

Búrfugl sendur úr landi

Um miðjan ágústmánuð var lagt hald á búrfugl sem fluttur var ólöglega til landsins í bíl með Norrænu. Fuglinum var haldið í einangrun undir eftirliti Matvælastofnunar á Seyðisfirði þar til hann var sendur úr landi í síðustu viku. Í tilkynningu frá stofnuninni kemur fram að leyfi til innflutnings hafi ekki legið fyrir og ekkert heilbrigðisvottorð…Lesa meira

true

Norðurlandaþjóðir sameinast um lyfjaútboð

Fyrirhugað sameiginlegt lyfjaútboð Danmerkur, Íslands og Noregs verður kynnt í Kaupmannahöfn 28. september næstkomandi. Frá þessu er sagt á vef Landspítalans. Möguleikar á sameiginlegum lyfjainnkaupum Norðurlandaþjóðanna hafa verið til umræðu um langt árabil og því er um tímamót að ræða. Litið er á úboðið sem reynsluverkefni til að afla þekkingar á ýmsum hagnýtum þáttum slíkra…Lesa meira

true

Toyota og Askja innkalla bíla

Toyota á Íslandi hefur innkallað 329 Toyota-bifreiðar af tegundunum Prius, Prius Plug-in og C-HR Hybrid. Ástæða innköllunarinnar er að bílarnir geta haft hlíf á rafkerfi sem mögulega eykur eldhættu. Toyota-bílarnir sem eru innkallaðir eru framleiddir á árabilinu 2015-2018. Um er að ræða 14 Prius Plug-in bifreiðar, 39 Prius bifreiðar og 276 C-HR bifreiðar. Að auki…Lesa meira

true

Skagastelpur unnu Aftureldingu/Fram

Meistaraflokkur kvenna vann góðan sigur á sameiginlegu liði Aftureldingar/Fram í síðasta heimaleik sínum á Akranesvelli í Inkassodeildinni í gær. Leikurinn var þýðingarlítill fyrir bæði lið þar sem ljóst var að Fylkir og Keflavík eru þau tvö lið sem fara upp í Pepsídeildina að ári. Það mátti þó ekki sjá á leiknum þar sem mikil barátta…Lesa meira

true

Jaðri færðar veglegar gjafir

Það var hátíðleg stund á dvalarheimilinu Jaðri í Ólafsvík síðastliðinn föstudag þegar félög og fyrirtæki í Snæfellsbæ gáfu heimilinu tvö þrekhól. Ásbjörn Óttarsson lýsti aðdraganda þess að hjólin voru keypt og sagði meðal annars að síðastliðinn áratug hafi verið haldin kútmagakvöld einu sinni á ári í Röst á Hellissandi og allur hagnaður hafi verið lagður…Lesa meira

true

Mostramenn sigruðu seinni vinaklúbbakeppnina

Seinni hluti vinaklúbbakeppni Golfklúbbsins Vestarr og Golfklúbbsins Mostra fór fram í Grundarfirði á sunnudag. Leiknar voru þrjár umferðir; Texas, Greensome og einmeningur. Leikar fóru þannig að Mostramenn höfðu vinninginn með 17/1/2 gegn 7/1/2 skori félaga Golfklúbbsins Vestarr.Lesa meira

true

Fyrirlestur um fantasíu – furður í bókmenntum og afþreyingariðnaði

Sigrún Elíasdóttir flytur erindi í Safnahúsi Borgarfjarðar fimmtudaginn 13. september kl. 19.30.  Erindi hennar fjallar um fantasíur, furður í bókmenntum og afþreyingariðnaði, og er hluti af fyrirlestraröð Safnahúss á árinu. „Um þessar mundir er sprenging í vinsældum fantasíuefnis, eða furðusagna eins og íslenska þýðingin hljóðar upp á. Innan furðusagna rúmast draugasögur, Ódysseifskviða, Harry Potter, Tolkien,…Lesa meira

true

Verslunin Blómsturvellir 50 ára

Verslunin Blómsturvellir á Hellissandi fagnaði 50 ára starfafmæli sínu síðastliðinn laugardag. Boðið var upp á kræsingar í tilefni dagsins og að sögn Júníönu Bjargar Óttarsdóttur var fjölmenni sem fagnaði þessum áfanga með aðstandendum verslunarinnar. Júníana sagði frá því að verslunin hafi fyrst verið starfrækt í bílskúr foreldra hennar árið 1968. Síðan keyptu þau gömlu Blómsturvelli…Lesa meira

true

Gjaldtöku í Hvalfjarðargöng hætt 28. september

Gjaldtöku í Hvalfjarðargöng verður hætt föstudaginn 28. september næstkomandi. Göngin verða afhent Vegagerðinni til eignar og rekstrar sunnudaginn 30. september. Stjórn Spalar hefur tilkynnt hluthöfum félagsins um þessa ákvörðun sína. Þó er tekið fram að tímasetningin sé kynnt að þeim forsendum gefnum að Ríkisskattstjóri fallist á tiltekna meðferð á skattalegri afskrift ganganna og í öðru…Lesa meira