Fréttir

true

Óskaði eftir hjólabrettagarði

Davíð Konráð Bartoszek, ungur íbúi í Búðardal, safnaði undirskriftum meðal íbúa sveitarfélagsins þar sem óskað er eftir því að hjólabrettagarður verði útbúinn í Búðardal. Alls lögðu 24 íbúar nafn sitt við listann. Erindi Davíðs var síðan tekið fyrir á fundi byggðarráðs Dalabyggðar síðastliðinn fimmtudag. Ákvað ráðið að fela byggingafulltrúa og verkstjóra áhaldahúss að kanna kostnað…Lesa meira

true

Guðlaug að taka á sig mynd í flæðarmálinu

Þessi mynd var tekin á Langasandi í liðinni viku. Þar er mannvirkið Guðlaug nú að mestu risið í flæðarmálinu neðan við stúku Akranesvallar. Tafir hafa orðið á verklokum en að sögn Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra eru menn nú að horfa til þess að framkvæmdir gætu staðið yfir út þennan mánuð. Verið er að útfæra hugmyndir…Lesa meira

true

Skiptinemi á vegum Rótarý

Nýr skiptinemi hefur hafið nám í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Kemur hann hingað til lands á vegum Rótarýklúbbs Akraness. Neminn heitir Elena Valladares og kemur frá Madrid á Spáni. Hennar íslensku „foreldrar“ á meðan á dvöl hennar stendur eru Sigurbjörn Hallsson og Mjöll Barkar Barkardóttir. Dóttir þeirra Sjöfn Sólveig er nýfarin til Ítalíu til ársdvalar,…Lesa meira

true

„Bátarnir eru bara hér í landlegu“

Sveinn Sturlaugsson á Akranesi hefur í áranna rás komið sér upp dágóðu safni líkana af bátum Haraldar Böðvarssonar & Co. Telur safn hans nálægt tuttugu líkön, öll smíðuð af hinum þekkta líkanasmiði Grími Karlssyni í Keflavík fyrir Svein, sem er einmitt fyrrum útgerðarstjóri HB & Co. og barnabarn Haraldar Böðvarssonar. Líkönunum hefur Sveinn safnað undanfarna…Lesa meira

true

Aldarafmæli UDN var fagnað á laugardaginn

Aldarafmæli Ungmennsambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga var fagnað með pompi og prakt á afmælishátíð í Dalabúð í Búðardal á laugardaginn. Ungir sem eldri ungmennafélagar fjölmenntu á samkomuna, sem heppnaðist afar vel að sögn aðstandenda. Gestir hátíðarinnar sögðu sögur frá liðinni tíð, gátu skoðað fjölmarga búninga sambandsins og aðildarfélaga þess í gegnum árin, sem og þá fjölmörgu…Lesa meira

true

Eldur kviknaði í smáhýsi á Hvalfjarðarströnd

Á þriðja tímanum í dag var Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallað út vegna elds í smáhýsi sem stendur skammt norðan við gamla íbúðarhúsið á Brekku á Hvalfjarðarströnd. Eldurinn hafði kviknað út frá gasi sem notað var við eldamennsku. Náði eldurinn að læsa sig í vegg hússins, sem er bjálkahús, og voru skemmdir fremur litlar. Slökkvistarf…Lesa meira

true

Tæp 15 prósent kvótans á Vesturlandi

Ef skoðaður er hlutur vestlenskra hafna í úthlutun aflamarks fyrir nýhafið kvótaár má sjá að 14,58% af úthlutun fer í landshlutann. Rifshöfn og Akraneshöfn skera sig úr og fá langmesta úthlutun; rúmlega 19 þúsund tonn á Akranes sem gerir 4,88% af heildaraflamarki og Rifshöfn fær úthlutað rúmlega 17 þúsund tonnum sem gerir 4,39%. Þar á…Lesa meira

true

Garnaveiki greindist í geit

Í lok ágúst var garnaveiki staðfest í geit á bænum Háhóli í Hornafirði. Bærinn er í Suðausturlandshólfi. Á því svæði hefur garnaveiki greinst í sauðfé á fjórum öðrum bæjum síðastliðin tíu ár. Síðast greindist garnaveiki í geit hér á landi árið 2002 í Vesturlandshólfi. Garnaveiki er ólæknandi smitsjúkdómur í jórturdýrum, en með bólusetningu er hægt…Lesa meira

true

Knapar, hross og hundar á leið til fjalla

Göngur eru nú víða hafnar í sveitum landsins. Í dag er t.d. réttað í Oddsstaðarétt fé af Lunddælingaafrétti en um og eftir næstu helgi verður víða réttað. Meðfylgjandi mynd var tekin í dag í Vopnalág í Hallmundarhrauni. Þar áðu leitarmenn á leið sinni á Arnarvatnsheiði, en þeir sem ríða lengst leita Fljótsdrögin. Um Vopnalág segir…Lesa meira

true

Hafa aukið gistirými og stórbætt aðstöðuna fyrir hross og menn

Hjónin Agnar Gestsson og Jóhanna Bára Ásgeirsdóttir reka ferðaþjónustu og hestaleigu á Lýsuhóli í Staðarsveit. Hafa þau marga fjöruna sopið í þeim efnum. Mikið hefur verið að gera síðustu misserin enda fjöldi ferðamanna margfaldast síðustu árin. „Við erum með gistirými fyrir tæplega 40 manns og svo rúmlega 70 hross í hestaleigu,“ segir Agnar í stuttu…Lesa meira