Fréttir

true

Tæplega helmingur eins árs barna sækja leikskóla

Í desember á liðnu ári sóttu rúmlega 19 þúsund börn leikskóla á Íslandi. Hlutfall barna sem sækir leikskóla er óbreytt frá fyrra ári eða 87%, þegar litið er til 1-5 ára barna. Alls sækja 97% 3-5 ára barna leikskóla, 95% tveggja ára barna og 47% eins árs barna. Miklu munar á hlutfalli eins árs barna…Lesa meira

true

Systur frá Borgarnesi gefa út sína fyrstu barnabók

Systurnar Ásrún og Sigríður Magnúsdætur hafa sameinað hæfileika sína og krafta og eru nú að gefa út sína fyrstu barnabók, Korkusögur, sem væntanleg er í verslanir nú í byrjun september. “Við systurnar höfum alltaf verið samrýmdar og höfum mjög gaman af því að vinna verkefni saman. Sigga er mjög fær listakona en ég er meira…Lesa meira

true

„Skemmtilegt þó það rigni á mann allan daginn“

Strandveiðitímabilinu lauk formlega um mánaðamótin, en síðasti dagur til veiða var á fimmtudaginn. Tíðarfar var erfitt á löngum köflum á liðnu tímabili og töluvert færri bátum var róið til veiða en á síðasta ári. Engu að síður var heildaraflinn tæp tíu þúsund tonn sem er örlítið minna en á síðasta ári. Aflahæsti strandveiðibátur landsins á…Lesa meira

true

Nýr tómstundafulltrúi tekinn til starfa

Magnús Ingi Bæringsson, nýráðinn tómstunda- og æskulýðsfulltrúi Stykkishólmsbæjar, hóf störf síðastliðinn mánudag. Magnús tók við stöðunni af Gissuri Ara Kristinssyni, sem hafði leyst Agnesi Helgu Sigurðardóttur af á meðan hún var í fæðingarorlofi. Gissur hefur fært sig um set og Agnes hafið störf við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. „Við bjóðum Magnús velkominn til starfa og óskum jafnframt…Lesa meira

true

Ketilsflöt lokuð tímabundið

Vegna framkvæmda hefur verið lokað fyrir umferð um hluta Ketilsflatar á Akranesi. Um er að ræða gatnagerð við Ketilsflöt frá gatnamótum upp að Garðalundi. Í verkinu felast fjórar gönguþveranir; tvær við Ketilsflöt og tvær við Kalmansbraut. Lokað var fyrir umferð í dag, þriðjudaginn 4. september, og gildir lokunin í allt að eina viku, eða fram…Lesa meira

true

Fólk varað við erlendum svikasímtölum

Fyrir hádegi í dag var hringt nokkrum sinnum í fyrirtæki eitt í Búðardal. Í símanum var enskumælandi kona, kurteis í byrjun, en gerðist síðan ákveðin og nokkuð ágeng eftir því sem leið á símtölin sem urðu sex talsins áður en yfir lauk. Óskaði konan eftir að ræða við yfirmann. Svo virtist sem viðkomandi væri að…Lesa meira

true

Málverkasýning Vigdísar í Átthagastofu

Vigdís Bjarnadóttir, sem ættuð er frá Ólafsvík, heldur málverkasýninguna Þar sem jökulinn ber við loft, í Átthagastofunni í Ólafsvík. Var sýningin opnuð síðastliðinn laugardag og verður opin út septembermánuð. Þar sýnir hún 20 olíumálverk. Þetta er í fjórða skiptið sem Vigdís sýnir verk sín á heimaslóðum í Ólafsvík. „Þema sýningarinnar er Snæfellsjökull, eða Jökullinn eins…Lesa meira

true

Andlát – Erling Garðar Jónasson

Erling Garðar Jónasson lést á Landspítalanum í Fossvogi 30. ágúst síðastliðinn. Hann fæddist í Reykjavík 24. júní 1935. Erling Garðar var sonur hjónanna Jónasar Sveinssonar framkvæmdastjóra Dvergs í Hafnarfirði og Guðrúnar Jónsdóttur húsmóður. Hann ólst upp í Hafnarfirði í sex systkina hópi en kvæntist Jóhönnu Guðnadóttur, f. 1937, árið 1955 og áttu þau fimm börn.…Lesa meira

true

Vinna hafin við vatnslögn í Grundarfirði

Almenna umhverfisþjónustan ehf. hóf nýverið vinnu við lagningu á nýrri vatnslögn í Grundarfirði fyrir Veitur ohf. Þessi aðgerð er nauðsynleg til að auka kraftinn á kalda vatninu áður en ný fiskvinnsla Guðmundar Runólfssonar ehf tekur til starfa um áramótin. Lögnin mun liggja niður Borgarbraut og svo eftir Nesvegi og verður talsvert rask vegna framkvæmdanna fram…Lesa meira

true

Bjóða út lagningu ljósleiðara í Borgarbyggð

Ríkiskaup hafa, fyrir hönd Ljósleiðara Borgarbyggðar, auglýst eftir tilboðum í lagningu ljósleiðararöra, niðursetningu brunna, uppsetningu tengiskápa, blástur og/eða ídrátt ljósleiðarastrengja ásamt tengingum blástursröra og ljósleiðara í Borgarbyggð. Tilboðsfrestur er til 9. október næstkomandi. Tengistaðir, sem eru styrkhæfir úr Fjarskiptasjóði, verða samtals ríflega 500 talsins. Um er að ræða stærsta einstaka verkefni í lagningu ljósleiðara í…Lesa meira