Fréttir

true

Tollkvóti í myglyosti gæti ógnað stærsta vinnustað Dalanna

Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði hafa sent atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu bréf þar sem samtökin lýsa sjónarmiðum sínum varðandi fyrirhugaða úttekt á áhrifum innflutningskvóta í ostum sem verndaðir eru með upprunatáknum eða landfræðilegum merkingum samkvæmt reglum Evrópusambandsins. Vefur Bændablaðsins; bbl.is, greinir frá því í dag að í bréfi SAM komi fram að verði tollkvótar til innflutnings á…Lesa meira

true

Gengi hlutabréfa í Icelandair hríðféll

Allmikil viðskipti voru með hlutabréf í Icelandair group í Kauphöllinni í dag. Urðu þau í kjölfar frétta í gærkvöldi um verri afkomu félagsins en áætlað hafði verið og uppsögn Björgólfs Jóhannssonar forstjóra úr starfi. 228 viðskipti með bréf áttu sér stað og sveiflaðist gengi bréfa frá 6,43 og upp í 7,7 í viðskiptum dagsins. Lokagengi…Lesa meira

true

Segir forsætisráðherra halla réttu máli

Í Kastljósi RUV í gærkvöldi sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra að frysting launa þeirra sem áður heyrðu undir Kjararáð kæmi launum þeirra í „ákveðið samræmi“ við almennt launafólk í árslok 2018. Þessi fullyrðing er bæði röng og villandi, að mati hagfræðings Alþýðusambands Íslands.  Snorri Már Skúlason hagfræðingur segir að starfshópur um Kjararáð, sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra…Lesa meira

true

Faxaflóasund strax og aðstæður leyfa

Hið árlega Faxaflóasund Sundfélags Akraness er framundan. Undanfarið hafa iðkendur safnað áheitum í aðdraganda sundsins, en ágóðinn er nýttur til að standa straum af kostnaði við æfingaferðir sundfélaga. Það eru iðkendur 14 ára og eldri sem taka þátt í Faxaflóasundinu. Synt er frá Reykjavík til Akraness og komið í land á Langasandi, samtals um 21…Lesa meira

true

Sóttu ameríska rannsóknabauju

Átta félagar í björgunarsveitinni Lífsbjörgu í Snæfellsbæ fóru í þjónustuverkefni síðastliðinn laugardag fyrir ameríska fyrirtækið Xeotech. Farið var á Ford bifreið sveitarinnar, sexhjóli, zodiak báti og björgunarbátnum Björgu. Tilgangur ferðarinnar var að sækja það sem eftir var af bauju sem Xeotech framleiðir sem tapast hafði, en hún var staðsett á milli Íslands og Grænlands áður…Lesa meira

true

Víðtæk leit vegna neyðarsendis

Björgunarsveitir allt frá Suðurlandi og vestur um á Akranes voru í gærkvöldi kallaðar út vegna boða sem bárust frá neyðarsendi norðan Torfajökuls. Á sama tíma var í gildi gul viðvörun frá Veðurstofunni fyrir miðhálendið; slagveðursrigning og miklir vatnavextir. Fyrir innan Landmannalaugar voru þannig í gær 15-20 metrar á sekúndu, slydda og hvítt til fjall. Um…Lesa meira

true

Sparkvöllur á mettíma í Húsafelli

Ferðaþjónustan í Húsafelli hefur nú látið útbúa sparkvöll neðan við sundlaugina á staðnum þar sem fyrir er m.a. ærslabelgur og enn neðan golfvöllur staðarins. Það var Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA í knattspyrnu og sumarbústaðareigandi í Húsafelli sem fyrstur vakti máls á hversu skemmtilegt væri að hafa sparkvöll á þessum stað. Strax var tekið vel…Lesa meira

true

Brotist inn á veitingastað í Borgarnesi

Brotist var inn á veitingastaðinn La Colina í Borgarnesi aðfararnótt laugardags. Tilkynnt var um innbrotið strax morguninn eftir, samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Að sögn lögreglu var farið inn um opnanlegt fag á húsinu og áfengi tekið ófrjálsri hendi. Engum peningum var stolið í innbrotinu, svo vitað sé. Fleira liggur ekki fyrir um innbrotið…Lesa meira

true

GB fékk mjög jákvæða umsögn

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í síðustu viku var til kynningar bréf Erindis – samtaka um samskipti og skólamál, í tilefni aðkomu að starfi Grunnskólans í Borgarnesi síðastliðinn vetur. Í bréfinu kemur fram mikil ánægja með kynni samtakanna af hinu faglega starfi sem unnið er í Grunnskólanum í Borgarnesi. „Viðmót kennara gagnvart nemendum og áhugi skólastjórnenda…Lesa meira

true

Skóflustunga tekin að fimleikahúsi á Akranesi

Fjölmenni var saman komið við íþróttahúsið við Vesturgötu á Akranesi núna klukkan 16:00. Þá tóku Guðmundur Claxton, formaður Fimleikafélags Akraness, Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Marella Steinsdóttir, formaður Íþróttabandalags Akraness, fyrstu skóflustunguna að nýju fimleikahúsi á Akranesi. Þar með teljast framkvæmdir við bygginguna formlega hafnar. Fimleikahús á Akranesi verður sambyggt íþróttahúsinu við Vesturgötu. Þar verður…Lesa meira