Fréttir

true

Sólarlag er fyrsta myndlistarsýning Brynjars Mars

Brynjar Mar Guðmundsson, ungur listamaður á Akranesi, opnar sína fyrstu myndlistarsýningu í Galleríi Bjarna Þórs á morgun, laugardaginn 22. apríl kl. 14:00. Sýningin ber heitið Sólarlag og tileinkar Brynjar hana ömmu sinni, Brynju Einarsdóttur. „Ég er skírður í höfuðið á henni og það var hún sem kveikti áhuga minn fyrir listinni. Hún rétti mér blað…Lesa meira

true

Ber afar hlýjan hug til lögreglu

Lögreglan á Vesturlandi greinir á vefsíðu sinni frá fallegu atviki sem gerðist síðastliðinn mánudag. Vegfarandi átti leið um Vesturlandsveg og kom að umferðaróhappi þar sem lögreglumenn voru við störf. Var veður vont á vettvangi, um 40 m/s í vindhviðum og lofthitinn um 3 gráður. Tók vegfarandinn eftir lögreglumanni sem var að stjórna umferð á veginum.…Lesa meira

true

Skaginn 3X hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands

Skaginn 3X hlaut rétt í þessu Útflutningsverðlaun forseta Íslands við hátíðlega athöfn sem nú stendur yfir á Bessastöðum. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands afhenti Ingólfi Árnasyni framkvæmdastjóra Skaginn 3X verðlaunin fyrir árangursríkt starf að útflutningi á íslenskum vörum og þjónustu á erlendum markaði. Veiting verðlaunanna tekur meðal annars mið af verðmætaaukningu útflutnings, þjóðhagslegu mikilvægi gjaldeyrisöflunar…Lesa meira

true

Andlát – Ármann Ármannsson útgerðarmaður á Mið-Fossum

Ármann Ármannsson, útgerðarmaður er látinn 68 ára að aldri. Ármann var fæddur 2. mars 1949 í Reykjavík en foreldrar hans voru Ármann Friðriksson, skipstjóri og útgerðarmaður frá Vestmannaeyjum, og Ragnhildur Eyjólfsdóttir húsmóðir. Ármann byrjaði snemma til sjós í róðrum á trillum og réri frá Sandgerði. Hann fór síðan sem hálfdrættingur með föður sínum á Helgu…Lesa meira

true

Garnaveiki staðfest á sauðfjárbúi í Húnahólfi

Nýverið var garnaveiki staðfest á sauðfjárbúi í Húnahólfi, nánar tiltekið á bænum Ytri-Löngumýri í Húnavatnshreppi. Á því svæði hefur garnaveiki greinst á tveimur öðrum bæjum síðastliðin tíu ár. Garnaveiki er ólæknandi smitsjúkdómur í jórturdýrum, en með bólusetningu er hægt að verja sauðfé fyrir sjúkdómnum og halda smitálagi í lágmarki. Á bæjum sem garnaveiki greinist á…Lesa meira

true

Segir Norðurál varpa ábyrgð slyss á starfsmann

Verkalýðsfélag Akraness gagnrýnir Norðurál á Grundartanga og telur það hafa brotið á fyrrverandi starfsmanni sínum, sem sagt var upp störfum í kjölfar vinnuslyss. Hinn 22. mars varð alvarlegt vinnuslys í álverinu þar sem krani skall á töppunarkrana. Við áreksturinn slóst byrði töppunarkranans, svokölluð bímgræja, í starfsmann með þeim afleiðingum að hann slasaðist illa. Lá viðkomandi…Lesa meira

true

„Rökrétt að samrýma áhuga minn á heilanum og málinu“

Sigfús Helgi Kristinsson er talmeinafræðingur á Reykjalundi. Hann ólst upp á Hlíðarbæ í Hvalfirði en býr nú á Akranesi ásamt eiginkonu sinni Huldu Ólöfu Einarsdóttur sjúkraliða og börnunum þremur; Pétri Jóhannesi Óskarssyni, Rebekku Klöru Óskarsdóttur og Sigþóri Draupni Sigfússyni. En brátt verður breyting á lífi Sigfúsar, Huldu og barnanna því í júlímánuði flyst fjölskyldan búferlum…Lesa meira

true

Uppskerutónleikarnir Unga fólkið semur í Safnahúsi Borgfirðinga

Tónlistarskóli Borgarfjarðar og Safnahús Borgarfjarðar hafa á undanförnum árum unnið saman að listrænni sköpun ungs fólks á grundvelli borgfirskra bókmennta. Á hverju ári er valinn höfundur eða þema sem nemendur skólans semja lög við. Útbúið er hefti með textum og fróðleik um höfund þeirra, í samvinnu við fjölskyldu viðkomandi skálds. Nemendur velja sér síðan texta…Lesa meira

true

Ocean Adventures er nýtt ferðaþjónustufyrirtæki í Stykkishólmi

Hulda Hildibrandsdóttir og Hreiðar Már Jóhannesson hafa stofnað ferðaþjónustufyrirtækið Ocean Adventures í Stykkishólmi. Munu þau bjóða ferðamönnum upp á styttri siglingar um eyjarnar og nágrenni Stykkishólms. „Við keyptum nýlega lítinn bát sem við erum að gera kláran í ferðir með túrista. Aðal áherslan verður á sjóstangveiðiferðir og styttri lundaferðir, um það bil klukkustundarlangar siglingar í…Lesa meira