Fréttir

true

Snæfell komið í úrslitin

Snæfell og Stjarnan mættust í þriðja undanúrslitaleik Íslandsmóts kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Stykkishólmi. Fyrir leikinn í gær leiddu Snæfellskonur viðureignina með tveimur sigrum gegn engum. Með sigri gátu þær því tryggt sér sæti í úrslitum, sem þær og gerðu. Snæfell leiddi frá fyrstu mínútu og sigraði að lokum örugglega, 84-70 og…Lesa meira

true

Höfuðborgin fær jákvæða umsögn erlendra ferðamanna

Á síðasta ári komu tæplega 1,8 milljónir ferðamanna til landsins. Langflestir þeirra eða um níu af hverjum tíu gistu í Reykjavík á ferð sinni, að jafnaði í fjórar til sex nætur. Samkvæmt því voru gistinætur í borginni í fyrra um 5,2 milljónir og má lauslega áætla að ferðamenn hafi eytt 160 milljörðum króna miðað við…Lesa meira

true

Vöruverð hefur lækkað í öllum matvöruverslunum síðan í haust

Alþýðusamband Íslands framkvæmir reglulega verðkannir á matvöru. Í vörukörfu ASÍ hefur matarverð lækkað frá því í september 2016 hjá öllum þeim tíu verslununum sem skoðaðar voru vikuna 20.–24. mars síðastliðinn. Mest er lækkunin 5,6% hjá Hagkaup og 5,5% hjá Krónunni. Minnsta lækkunin er hjá Samkaup-Strax, 0,2% og Víði 0,4%. Á umræddu tímabili má sjá verðbreytingar…Lesa meira

true

Færeyskur kór syngur í Saurbæ á laugardaginn

Dagana 7.-10. apríl verður Siloa-kórinn frá Fuglafirði í Færeyjum á ferð hér á landi og syngur á fjórum stöðum. Meðal annars heldur kórinn tónleika í Hallgrímskirkju í Saurbæ laugardginn 8. apríl klukkan 20:00. Meðal kórfélaga er einn sveitungi, Sólrún Ásta Haraldsdóttir frá Belgsholti í Melasveit, en hún býr í Fuglafirði í Færeyjum. Sólrún Ásta vonast…Lesa meira

true

Hollvinir HVE færðu stofnuninni gjafir

Vel var mætt á þriðja aðalfund Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Vesturlands sem fram fór að morgni síðastliðins laugardags. Endurnýjað var umboð stjórnar og fulltrúaráðs félagsins. Steinunn Sigurðardóttir formaður hollvinasamtakanna fór yfir starfsemi félagsins á liðnu starfsári og Skúli Ingvarsson gjaldkeri skýrði reikninga. Félagar eru nú 327 og fjölgaði um fjóra frá síðasta starfsári. Hvatti Steinunn almenning til…Lesa meira

true

Frumsýndu franskan spuna á afmælisári

Leikdeild Ungmennafélags Stafholtstungna í Borgarfirði er fjörutíu ára á þessu ári. Á þessum fjórum áratugum hefur deildin fært upp fjölmörg verk, stór og smá, ýmist eftir heimafólk eða aðra. Nú á afmælisárinu var ákveðið að færa á fjalirnar franskan ærslaleik sem í íslenskri þýðingu nefnist Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan.…Lesa meira

true

Það er eitthvað sem stemmir ekki

MTh útgáfa á Akranesi hefur gefið út skáldsöguna „Það er eitthvað sem stemmir ekki,“ eftir Martinu Haag. Kristján H. Kristjánsson þýðir. Sagan fjallar um Petru og Anders sem hafa verið gift í 15 ár. Hún er höfundur vinsælla bóka um sambönd fólks en hann er þekktur sjónvarpsmaður og saman eiga þau tvo drengi, tvo hunda,…Lesa meira

true

Vesturlandsstofa orðin skuldlaus við lánastofnanir

Gert var grein fyrir ársreikningi og -skýrslu Vesturlandsstofu samhliða aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem haldinn var í síðustu viku. Páll S. Brynjarsson, framkvæmdastjóri SSV, fór yfir ársreikning Vesturlandsstofu. Ástæðu þess að hann gerði grein fyrir fjármálunum sagði hann vera þá að síðan í árslok 2013 á SSV allt hlutafé Vesturlandsstofu. Í stuttu máli var…Lesa meira

true

Stórsýning Fimleikafélags Akraness

Fimleikafélag Akraness bauð upp á tvær vorsýningar í Íþróttahúsinu við Vesturgötu síðastliðinn laugardag. Sérstök ástæða er fyrir félagið til að fagna því nú hefur bæjarstjórn Akraness samþykkt að hefja byggingu nýs fimleikahúss við Vesturgötu. Um leið mun aðstaða þessa fjölmenna íþróttafélags batna til mikilla muna. Fullt var út úr dyrum á báðum sýningunum. Þar sýndu…Lesa meira

true

Bjarki á lista bestu kylfinga bandarísku háskóladeildarinnar

Bjarki Pétursson, kylfingur úr Golfklúbbi Borgarness, hefur leikið gríðarlega vel það sem af er ári með háskólaliði sínu Kent State í Bandaríkjunum. Sömu sögu er að segja af liðsfélaga hans, Gísla Sveinbergssyni úr Keili. Lið þeirra hefur unnið þrjú mót það sem af er tímabili, þar af tvö af síðustu þremur. Þeir hafa aldrei lent…Lesa meira