
Meirihluti stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu til aðalfundar um arðgreiðslu til eigenda að upphæð 750 milljónir króna. Tillagan verður tekin fyrir á aðalfundi fyrirtækisins sem haldinn verður í Iðnó og hefst í hádeginu í dag. Tveir fulltrúar Reykjavíkurborgar í stjórninni, borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Áslaug Friðriksdóttir, greiddu atkvæði gegn tillögunni.…Lesa meira








