
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á síðasta fundi sínum að fá mat fasteignasala á mögulegu söluverðmæti nokkurra fasteigna í sveitarfélaginu. Fasteignirnar sem um ræðir eru félagsheimilin Fannahlíð, Hlaðir og Miðgarður. Þá var jafnframt samþykkt að fengið yrði söluverðmat á landi í eigu sveitarfélagsins á mörkum Hvalfjarðarsveitar og Akraneskaupstaðar.Lesa meira








