Fréttir

true

Aaryn best í seinni hlutanum

Í gærkvöldi voru veitt verðlaun fyrir seinni hluta Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Tvö efstu lið deildarinnar, Snæfell og Keflavík, hrepptu öll einstaklingsverðlaunin. Aaryn Ellenberg var valin besti leikmaðurinn og Ingi Þór Steinþórsson besti þjálfarinn. Aaryn var að sjálfsögðu einnig valin í úrvalslið síðari hluta tímabilsins ásamt liðsfélaga sínum Berglindi Gunnarsdóttur, Sigrúnu Sjöfn Ámundadóttur úr Skallagrími…Lesa meira

true

Halda norrænt vinabæjamót á Akranesi í sumar

Norræna félagið á Akranesi og Akraneskaupstaður standa fyrir vinabæjarmóti á Akranesi í sumar. Vinabæjarmótið verður dagana 5.- 9. júlí. „Markmið Norræna félagsins er að efla norrænt samstarf á öllum sviðum samfélagsins, efla frið Norðurlandaþjóðanna sín á milli og þeirra og annarra þjóða út á við. Norræna félagið vinnur að markmiðum sínum með því að stuðla…Lesa meira

true

Gríðarleg fjölgun gesta í Sundlaug Snæfellbæjar

Veturinn 2013 – 2014 var ráðist í miklar breytingar á Sundlaug Snæfellsbæjar. Ásamt því að lagfæra húsnæðið var það opnað þannig að það var gert bjartara auk þess sem útisvæði með tveimur heitum pottum, vaðlaug og barnarennibraut var útbúið. Seinna bættist svo við kaldur pottur. Mikil ánægja íbúa hefur verið með þessa bættu aðstöðu. Sýnir…Lesa meira

true

Líf og fjör í Water around us samstarsverkefninu í Borgarnesi

Nemendur og kennarar frá skólum í fimm Evrópulöndum dvöldu í Borgarnesi í síðustu viku á vegum Grunnskólans í Borgarnesi. Tilefnið var verkefnavika evrópska samstarfsverkefnisins Water around us (Vatnið í kringum okkur) sem grunnskólinn á aðild að. Alls dvöldu 19 nemendur og 17 kennarar í Borgarnesi, en þeir komu frá Finnlandi, Spáni, Lettlandi, Portúgal og Þýskalandi.…Lesa meira

true

Blóðsöfnun á Hvanneyri og í Borgarnesi í dag

Blóðbankabíllinn verður í Borgarbyggð í dag, þriðjudaginn 28. mars. Fyrst verður hann við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri frá klukkan 10:00-12:30. Þá verður bíllinn færður um set og safnar blóði við N1 í Borgarnesi frá klukkan 14 til 17. Héraðsbúar eru hvattir til að gefa blóð.Lesa meira

true

Brýnt að viðhalda bryggjunni í Flatey

Stjórnendur Reykhólahrepps hafa áhyggjur af því að bryggjan í Flatey á Breiðafirði sé að brotna niður og geti því verið hættuleg. Þetta kom fram í samtali Ingibjargar Birnu Erlingsdóttur, sveitarstjóra Reykhólahrepps, við Morgunblaðið. Hún segir að stjórnendur hreppsins hafi ítrekað viðrað áhyggjur sínar við Vegagerðina, enda sé góð hafnaraðstaða í eynni ekki aðeins hagsmunamál sveitarfélagsins,…Lesa meira

true

Margir samverkandi þættir orsaka vanda fiskvinnslunnar

Haraldur Benediktsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi og fyrsti þingmaður kjördæmisins kveðst ásamt öðrum þingmönnum ætla að hitta bæjarstjórn Akraneskaupstaðar á fundi í kvöld til að ræða þá alvarlegu stöðu sem komin er upp hjá HB Granda á Akranesi. Eins og fram hefur komið í fréttum dagsins hyggst fyrirtækið hætta bolfiskvinnslu á Akranesi og mun að…Lesa meira

true

Öllu starfsfólki bolfiskvinnslu HB Granda á Akranesi verður sagt upp

„HB Grandi áformar að láta af botnfiskvinnslu á Akranesi,“ segir í upphafi yfirlýsingar sem Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda las upp á blaðamannfundi sem var að ljúka á Akranesi. Stefnt er að því að sameina botnfiskvinnslu félagsins á Akranesi við vinnsluna í Reykjavík og segja upp öllum 93 starfsmönnum fyrirtækisins sem unnið hafa við bolfiskinn…Lesa meira

true

Fimm bú með yfir sjö þúsund lítra meðalnyt eftir kú

Aðalfundur Kúabændafélagsins Baulu á Vesturlandi fór nýverið fram. Gestur á fundinum var Arnar Árnason stjórnarformaður Landssambands kúabænda. Mikið var rætt um framtíðarhorfur og stöðu greinarinnar, félagsaðild, framgöngu ráðherra landbúnaðarmála, tollamál og fleira. Í annað skipti í sögu félagsins var nokkrum bændum veittar viðurkenningar. Hér eru listar yfir afurðahæstu búin, kýrnar og hæst dæmdu kýr úr…Lesa meira

true

Kraftlyftingakappar af Akranesi sigursælir um helgina

Íslandsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum fór fram í Reykjavík á laugardaginn var. Samhliða fór fram Íslandsmeistaramót ungmenna og öldunga, einnig í klassískum lyftingum. Sex lyftingakappar frá Kraftlyftingafélagi Akraness tóku þátt í mótunum. Skemmst er frá því að segja að kraftlyftingafólk af Akranesi sneri heim með fimm Íslandsmeistaratitla og ein bronsverðlaun.   Þrjú Íslandsmet Einars Á Íslandsmeistarmótinu…Lesa meira