
Í dag er lögformlegur afmælisdagur Borgarness, 150 ára. Af því tilefni er margt á döfinni, í dag og næstu vikur. Klukkan 15 heldur sveitarstjórn Borgarbyggðar hátíðarfund í elsta íbúðarhúsi bæjarins, Kaupangi. Eftir það verður tekin skóflustunga að nýrri viðbyggingu við Grunnskóla Borgarness og síðdegis verður opnuð ljósmyndasýning í Safnahúsi með ýmsum áhugaverðum ljósmyndum úr bæjarlífinu…Lesa meira








