
Það óhapp varð um borð í Víkingi AK síðdegis í dag að sjómaður slasaðist á fingri. Teknar voru myndir af áverkanum og að höfðu samráði við lækni var ákveðið að senda þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir hinum slasaða. Að sögn Alberts Sveinssonar skipstjóra var skipið statt um 5,5 sjómílur norðvestan við Öndverðarnes á Snæfellsnesi þegar óhappið varð.…Lesa meira







