Fréttir

true

Fólk haldi kyrru fyrir heima fremur en að festa bíla sína

Björgunarsveitir á Vesturlandi og af Kjalarnesi voru kallaðar út í morgun til að loka þjóðvegi eitt á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli. Þá var Björgunarfélag Akraness kallað út til aðstoðar vegna þess að sjúkrabílar komust ekki leiðar sinnar í ófærðinni. Um 15 björgunarsveitarmenn á Akranesi unnu í morgun við að aðstoða heilbrigðisstarfsfólk til að komast til…Lesa meira

true

Vegir víða ófærir

Snjó kyngdi niður í nótt og víða er allt að hálfur metri af jafnföllnum snjó á suðvesturhorni landsins. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að allar leiðir til og frá Reykjavík séu lokaðar eða ófærar nema Reykjanesbraut og stofnbrautir á höfuðborgarsvæðinu eru ekki fólksbílafærar.  Mikil óvissa er hvenær takist að opna. Vegurinn fyrir Hafnarfjall er lokaður…Lesa meira

true

Þakplötur að losna

Félagar í Björgunarfélagi Akraness eru nú að vinna við að festa þak á húsi við Suðurgötu á Akranesi. Plötur voru teknar að losna og þakið að lyftast. Þótti því tryggast að festa þakið í heilu lagi eins  og sjá má á meðfylgjandi mynd. Töluvert suðaustan hvassviðri er nú í bænum.Lesa meira

true

Margir vegir lokaðir vegna veðurs

Vonskuveður er víða á landinu þessa stundina og af þeim sökum hefur Vegagerðin gripið til þess ráðs að loka fyrir umferð á ákveðnum leiðum. „Í dag má búast við að færð spillist mjög víða í dag föstudaginn 24. febrúar og ekkert ferðaveður verði á landinu,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni snemma á fjórða tímanum nú…Lesa meira

true

Lægðin komin upp að landinu

Skila lægðarinnar sem búist er við að valdi roki á öllu landinu í dag, eru nú komin upp að suðurströndinni, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Í dag er spáð vonskuveðri á landinu. Vaxaandi suðaustanátt með snjókomu verður um landið suðvestanvertvert, stormur eða rok (20-28 m/s) víða síðdegis. Hlýnar smám saman og fer þá…Lesa meira

true

Stjarnan rétt marði Skallagrím

Skallagrímur mætti Stjörnunni í æsispennandi leik í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í Garðabæ og fór að lokum svo að heimamenn höfðu betur, en sigur þeirra var mjög naumur. Leikurinn var í járnum lengi vel og úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum. Stjarnan hafði þriggja stiga sigur, 83-80. Skallagrímsmenn byrjuðu…Lesa meira

true

39 Íslendingar eldri en hundrað ára

Eftir andlát Georgs Breiðfjörð Ólafssonar í Stykkishólmi eru nú 39 Íslendingar á lífi sem eru hundrað ára eða eldri. Jensína Andrésdóttir í Reykjavík er elst, 107 ára, Guðrún Straumfjörð í Reykjavík er næstelst, 105 ára, og Jón Hannesson í Kópavogi er þriðji elstur, 104 ára. Þetta kemur fram í yfirliti Jónasar Ragnarssonar sem heldur úti…Lesa meira

true

Misstu sigurinn úr greipum sér

Botnlið Snæfells mætti Grindvíkingum í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í Stykkishólmi. Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, mátti horfa á leikinn úr stúkunni en hann tók út leikbann sem hann fékk í Vesturlandsslagnum gegn Skallagrími í síðustu umferð. Eftir að hafa leitt fyrstu þrjá leikhlutana misstu Snæfellingar forskotið í hendur gestanna…Lesa meira

true

Harður árekstur í Helgafellssveit

Nokkuð harður árekstur varð um klukkan 14 í gær í Stórholtunum í Helgafellssveit á Snæfellsnesi. Fólksbíll rann í hálku framan á tönn á snjóruðningsbíl. Báðir bílarnir köstuðust út af veginum og eru taldir ónýtir. Ökumaður fólksbílsins slasaðist nokkuð og var fluttur með sjúkrabíl undir læknishendur í Reykjavík. Ökumann snjóruðningsbílsins sakaði ekki.Lesa meira

true

Skallagrímur sigraði í kaflaskiptum leik

Skallagrímur mætti Stjörnunni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á miðvikudagskvöld. Leikið var í Garðabæ. Fyrir leikinn í gær hafði Skallagrímsliðið tapað síðustu þremur leikjum en ljóst er að tapleikirnir verða ekki fleiri í röð. Skallagrímur sigraði í spennandi en kaflaskiptum leik, 79-84. Upphafsfjórðungurinn gaf tóninn fyrir það sem á eftir kom. Stjarnan byrjaði betur…Lesa meira