Fréttir

true

Lína Langsokkur í Hjálmakletti

Leikfélagið Sv1 í Menntaskóla Borgarfjarðar frumsýndi á föstudaginn hið sígilda leikrit Astrid Lindgren um Línu Langsokk. Önnur sýning var síðan á sunnudaginn að viðstöddum Guðna Th Jóhannessyni forseta Íslands, Elizu Reid eiginkonu hans og tveimur yngstu börnum þeirra hjóna. Nánar er fjallað um sýninguna í Skessuhorni sem kemur út í fyrramálið.Lesa meira

true

Framkvæmdir við Kolgrafafjarðarbrú

Verktakafyrirtækið Stafnafell hóf í vikunni að sturta efni við stöplana á Kolgrafafjarðarbrú. Vegna gríðarmikilla strauma þarna hefur efnið sem fyrir var sópast frá stöplum brúarinnar þannig að þeir standa berskjaldaðir eftir. Fyrir tveimur árum var prófað að sturta 1500 rúmmetrum af efni niður með stöplunum en það hafði lítið að segja og sópaðist burt á…Lesa meira

true

Mokafli að loknu verkfalli

Algjör mokveiði var í öll veiðarfæri á Snæfellsnesi í dag og fyrsti dagurinn eftir rúmlega tveggja mánaða verkfall sjómanna var vægast sagt gjöfull þeim bátum sem sóttu sjóinn. Dragnótabátar mokfiskuðu og var Steinunn SH til að mynda með 57 tonn sem fékkst í fjórum köstum. Að sögn Óðins Kristmundssonar stýrimanns á Steinunni fengu þeir 29…Lesa meira

true

Öll loðnuskipin við suðaustur ströndina

Loðnan hefur gengið hratt suður og vestur með landinu síðustu dagana og fremsta gangan var komin meðfram suðausturströnd landsins vestan við Hornafjörð. Á þessu svæði eru nú flest íslensku uppsjávarveiðiskipin að veiðum en þau létu úr höfn strax að afloknu sjómannaverkfalli í gærkvöldi. Að sögn Garðars Svavarssonar framkvæmdastjóra uppsjávarsviðs HB Granda var hrognafyllingin fremst í…Lesa meira

true

Munum stolið og aðrir skemmdir í innbroti á Safnavæðinu

Aðfararnótt fimmtudags í liðinni viku var brotist inn Neðri-Sýrupart, eitt af gömlu uppgerðu húsunum á Safnasvæðinu í Görðum á Akranesi. Þegar starfsfólk kom á vettvang var aðkoman ljót. Búið var að stela nokkrum munum úr húsinu, eyðileggja aðra og allt var á tjá og tundri. „Ef einhver hefur orðið var við mannaferðir á svæði safnsins…Lesa meira

true

Minni kortavelta á hvern erlendan ferðamann í janúar

Í janúar nam erlend greiðslukortavelta 17 milljörðum króna samanborið við 12 milljarða í sama mánuði í fyrra. Um er að ræða tæplega helmings aukningu frá janúar 2016. Þó um töluverða aukningu sé að ræða jókst kortaveltan ekki í sama hlutfalli og fjöldi þeirra ferðamanna sem sóttu Ísland heim í mánuðinum. Í samantekt Rannsóknamiðstöðvar verslunarinnar kemur…Lesa meira

true

Mikil dramatík í framlengdum Vesturlandsslag

Skallagrímur og Snæfell mættust í Vesturlandsslag Domino‘s deildar karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í Borgarnesi. Fyrir leikinn voru liðin í 11. og 12. sæti deildarinnar. Skallagrímur hafði 12 stig í næstneðsta sætinu og hefur verið í mikilli baráttu í þéttum pakka í neðri hluta deildarinnar þar sem fá stig skilja fallsæti frá sæti…Lesa meira

true

Landað úr Sandshavinu í Ólafsvík

Núna stendur yfir löndun í Ólafsvíkurhöfn úr færeyska línuveiðiskipinu Sandshavið SA 492 en skipið kom til hafnar í Ólafsvík klukkan sjö í morgun. Það er Fiskmarkaður Íslands sem sér um löndun og sölu á aflanum sem eru rúm 60 tonn eða yfir þúsund togarakassar að mestu þorskur og ýsa. Aflann fengu þeir um 50 sjómílur…Lesa meira

true

Snæfell sigraði Vesturlandsslaginn eftir ótrúlegan endasprett

Skallagrímur tóki á móti Snæfelli í stórleik Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik á laugardag. Fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum á toppi deildarinnar, en Skallagrímskonur vermdu toppsætið á innbyrðis viðureignum. Liðin höfðu mæst þrisvar áður í deildinni og Skallagrímur hafði unnið tvo leiki en Snæfell einn. Þá höfðu Snæfellskonur harma að hefna síðan í…Lesa meira

true

Hálkublettir og snjóþekja á fjallvegum

Hálkublettir eða snjóþekja er á vegaköflum á Snæfellsnesi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hálkublettir eru í Norðurárdal, hálka á Brötubekku en snjóþekja á Holtavörðuheiði og í Dölunum. Þá eru hálkublettir einnig á Kjósarskarði og Mosfellsheiði.Lesa meira