Fréttir

true

Fjörutíu milljarða snekkja liggur við ankeri við Snæfellsnes

Það lá við umferðarteppu í morgun þegar vegfarendur sem voru á ferð á milli Ólafsvíkur og Rifs sáu risasnekkju úti á víkinni. Margir vegfarendur stöðvuðu bíla sína til þess að freista þess að ná myndum af dýrðinni. Þessi snekkja ber nafnið A og er 120 metra löng og er í eigu rússneska auðkýfingsins Andrey Melnichenko…Lesa meira

true

Tekist á um meint vanhæfi sveitarstjórnarfulltrúa vegna lóðasamnings

Á fundi í sveitarstjórn Borgarbyggðar í gær var rætt um samning sveitarfélagsins við lóðarhafa Borgarbrautar 57 – 59 í Borgarnesi þar sem byrjað er að taka grunn fyrir byggingu hótels og íbúðakjarna fyrir eldri borgara. Ekki er laust við að gustað hafi um fundarmenn jafnvel þótt gluggar hafi flestir verið lokaðir. Undir þessum lið kvað meðal…Lesa meira

true

Gamla Kaupfélagið opnað að nýju

Gamla Kaupfélagið á Akranesi verður enduropnað í dag, föstudaginn 13. maí klukkan 17:00, þegar tekið verður á móti fyrstu matargestunum. Eins og Skessuhorn greindi frá í aprílbyrjun var staðnum lokað tímabundið vegna eigendaskipta. Félagið Veislur og viðburðir ehf. hefur tekið við rekstri Gamla Kaupfélagsins, en að félaginu standa Ísólfur Haraldsson og Gunnar Hafsteinn Ólafsson matreiðslumaður. Síðan þá hefur…Lesa meira

true

Norðurál og Landsvirkjun semja um framlengingu orkusamnings

Landsvirkjun og Norðurál á Grundartanga hafa náð samkomulagi um að endurnýja raforkusamning fyrirtækjanna fyrir 161 MW á kjörum sem endurspegla raforkuverð á mörkuðum í Norður-Evrópu. Forstjóri Norðuráls fagnar samningnum og segir hann mikilvægan í ljósi þess að fyrirtækið undirbýr gerð nýs steypuskála við álverið á Grundartanga. Samningsdrög Landsvirkjunar og Norðuráls hafa verið send Eftirlitsstofnun EFTA,…Lesa meira

true

Straumur í héraðsdóm með meðmælendalista

  Blaðamaður Skessuhorns var fyrir hádegi í dag viðstaddur þegar nokkrir frambjóðendur eða fulltrúar þeirra mættu með meðmælendalista til yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi vegna forsetakosninganna í sumar. Yfirkjörstjórn hafði auglýst að hún tæki á móti frumriti meðmælendalista milli klukkan 10 og 12 í dag í húsnæði Héraðsdóms Vesturlands í Borgarnesi. Meðan blaðamaður átti viðdvöl komu í…Lesa meira

true

Valdís Þóra í toppbaráttunni á Spáni

Kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi leikur um þessar mundir á LET Access atvinnumótaröðinni á Spáni, sem er næststerkasta atvinnumótaröð kvenna í Evrópu. Er þetta fyrsta mót Valdísar á þessu tímabili á LET Access mótaröðinni, sem er næststerkasta atvinnumótaröð kvenna í Evrópu. Hún fór í aðgerð í febrúar vegna álagsmeiðsla í þumalfingri.…Lesa meira

true

Ellefu samningar endurnýjaðir

Skallagrímur tryggði sér sem kunnugt er sæti í Domino‘s deild karla í körfuknattleik á nýjan leik eftir sigur á Fjölni í úrslitaviðureigninni. Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur nú endurnýjað samninga við hvorki fleiri né færri en ellefu leikmenn sem léku með liðinu á nýliðnu keppnistímabili. Skrifað var undir samningana í veitingahúsinu Englendingavík í Borgarnesi á dögunum. Leikmennirnir…Lesa meira

true

Neðsti hluti Vesturgötu malbikaður

Í dag er unnið við malbikun á neðsta hlutanum á Vesturgötu á Akranesi, frá Bárugötu að Skólabraut. Lokað er fyrir umferð á meðan á malbikun stendur nema fyrir neyðarumferð. Af þessum sökum verða ekki ferðir strætisvagns um Suðurgötu. Meðfylgjandi mynd tók Hilmar Sigvaldason þegar framkvæmdir voru að hefjat neðst á Bárugötunni.Lesa meira

true

Engar flóasiglingar á þessu ári eins og ráðgert var

Bæjarráð Akraness ákvað á fundi sínum fimmtudaginn 12. maí að hafna öllum tilboðum sem bárust í fyrirhugaðar flóasiglingar með litlum farþegabáti milli Akraness og Reykjavíkur. Þrjú tilboð bárust í verkefnið en ekkert þeirra samræmdist markmiðum sveitarfélaganna um tilraunaverkefni í sumar. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar. Þar segir að markmið tilraunaverkefnisins hafi átt að vera…Lesa meira

true

Davíð opnaði kosningamiðstöð í Reykjavík

„Síðustu dagar hafa verið spennandi hjá stuðningsmönnum Davíðs Oddssonar. Sjálfboðaliðar um land allt hafa lyft grettistaki við söfnun meðmæla og hefur að öllum líkindum met verið sett í þeim efnum,“ segir í tilkynningu frá stuðningsmönnum. Davíð fagnarþeim áfanga ásamt stuðningsmönnum sínum síðdegis í dag og hefur um leið kosningabaráttuna með formlegum hætti með opnun kosningaskrifstofu…Lesa meira