
Í tilkynningu frá Vegagerðinni í morgun segir að nú er hálka eða hálkublettir á vegum á Vesturlandi en snjóþekja er á Bröttubrekku.Lesa meira

Í tilkynningu frá Vegagerðinni í morgun segir að nú er hálka eða hálkublettir á vegum á Vesturlandi en snjóþekja er á Bröttubrekku.Lesa meira

Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvík hefur skrifað undir samning um kaup á leikmanninum Gunnlaugi Hlyni Birgissyni frá uppeldisfélagi hans Breiðabliki. Samningurinn er til tveggja ára og gildir því út keppnistímabilið 2018. Gunnlaugur lék með Víkingi Ólafsvík seinni hluta tímabilsins 2015 og spilaði á þeim tíma tíu leiki og átti drjúgan þátt í að koma liðinu upp í…Lesa meira

Eins og greint hefur verið frá í Skessuhorni hafnaði bæjarráð Akraneskaupstaðar fyrir sitt leyti að selja hlut sinn í Hellisheiðarvirkun, en tilboð um kaup hafði verið sent eigendunum Akraneskaupstað, Borgarbyggð og Reykjavíkurborg. Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar sl. fimmtudag var sambærileg ákvörðun tekin og samþykkt að hafna tilboði í sölu á eignarhlut Borgarbyggðar í virkuninni.Lesa meira

Á morgun, laugardaginn 4. febrúar, verður haldinn opinn kynningarfundur í Hjálmakletti í Borgarnesi. Þar verða kynnt verkefni nemenda við umhverfisskipulagsbraut Landbúnaðarháskóla Íslands um greiningu og framtíðarsýn í Borgarnesi. Á dagskrá eru þrjú umfjöllunarefni; samgöngur í gegnum Borgarnes, þar sem nemendur hafa greint vegagerð í gegnum bæinn og velta því meðal annars fyrir sér hvort hjáleið…Lesa meira

ÍA mætti Hamri í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Fyrir leikinn höfðu liðin mæst tvisvar í deildinni það sem af er vetri og bæði sigrað hvort annað á útivelli. Engin breyting varð á því í gær, því Hamarsmenn unnu nokkuð auðveldan sigur á Skagamönnum, sem…Lesa meira

Skallagrímur tók á móti Njarðvík í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikurinn var jafn og spennandi meira og minna frá upphafi til enda en að lokum fór svo að Njarðvíkingar höfðu betur, 91-100. Skallagrímsmenn mættu mjög ákveðnir til leiks og komust í 9-0 eftir tveggja mínútna leik en gestirnir jöfnuðu um miðjan upphafsfjórðunginn.…Lesa meira

Snæfell mætti Stjörnunni í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Garðabæ og það voru heimamenn sem höfðu að lokum betur gegn baráttuglöðum Hólmurum, 101-77. Leikmenn Snæfells léku með sorgarbönd á búningum sínum í leiknum, í minningu um Birgi Pétursson, ungan manns úr Stykkishólmi sem lést þegar snjóflóð féll í Esjuhlíðum á…Lesa meira

Félagið Bergrisi og Verkís verkfræðistofa standa saman að stofnun fyrirtækisins Sannir Landvættir. Markmiðið með stofnun félagsins er stuðla að uppbyggingu á ferðamannastöðum um land allt í samvinnu við fyrirtæki, landeigendur, sveitarfélög og ríki. Sannir Landvættir bjóða upp á fjármögnun, hönnun og framkvæmd við uppbyggingu ferðamannastaða án kostnaðar eða útgjalda fyrir landeigendur. Íslandsbanki er bakhjarl verkefnisins…Lesa meira

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi í gær að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 – 2022 – Miðsvæði. Í bókun frá fundinum segir að tillagan sé sett fram á uppdrætti og greinagerð dags. 31.1.2017 og feli í sér breytingu fyrir götureit innan miðsvæðis Borgarness M. „Innan miðsvæðis verður skilgreindur götureitur þannig að úr…Lesa meira

Byggðarráð Borgarbyggðar telur brýnt að Umhverfisstofnun bregðist við aukinni umferð um friðlýst og viðkvæm svæði í sveitarfélaginu og vill að ráðinn verði landvörður í fullt starf til að gæta þeirra. Nefnd eru sérstaklega átta friðlýst svæði í héraðinu, þ.e. Eldborg, Einkunnir, Andakíll búsvæði, Grábrókargígar, Hraunfossar, Húsafellsskógur, Geitland og Kalmanshellir. „Því fylgir mikil ábyrgð að bera…Lesa meira