
Eiður Svanberg Guðnason, fyrrum þingmaður Vesturlandskjördæmis, ráðherra og sendiherra Íslands, varð bráðkvaddur að heimili sínu í Garðabæ mánudaginn 30. janúar síðastliðinn. Eiður fæddist í Reykjavík 7. nóvember 1939. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík, nam stjórnmálafræði við háskólann í Delaware í Bandaríkjunum og lauk síðar BA-prófi í ensku og enskum bókmenntum við Háskóla Íslands…Lesa meira








