Fréttir

true

Endurskini ábótavant í umferðinni

Lögreglan á Vesturlandi vekjur athygli á að notkun endurskinsmerkja er orðin áberandi lítil bæði hjá börnum og fullorðnum. „Þó skammdegið sé á undanhaldi, þá er langt í land með að bjart sé orðið allan daginn og þessi litla öryggisráðstöfun sem felst í því að hengja endurskinsmerki í fatnað getur skiptu miklu máli í myrkrinu. Endurskinsmerki…Lesa meira

true

Framkvæmdir við fiskþurrkun lagðar til hliðar

Fyrirhugaðar framkvæmdir HB Granda við fiskþurrkun á Akranesi hafa verið lagðar til hliðar. Frá þessu er greint á vef fyrirtækisins. HB Grandi hætti að þurrka fisk á Akranesi í apríl á síðasta ári vegna erfiðra markaðsaðstæðna. Markaður fyrir þurrkaðar afurðir hefur einkum verið mjög erfiður vegna lítillar kaupgetu í Nígeríu, sem er langstærsti kaupandi þurrkaðra…Lesa meira

true

Á sjötta tug bætinga sundfólks af Akranesi

Um síðustu helgi syntu ellefu sundmenn frá Sundfélagi Akraness á alþjóðlegu sundmóti í Reykjavík, RIG, en þetta var fyrsta mótið í langan tíma sem fólkið keppti í 50m laug. „Sundfólkinu okkar gekk vel á mótinu og voru 54 bætingar yfir helgina ásamt því að mörg þeirra náðu inn í úrslitasund. Sundmenn komu víðsvegar frá svo…Lesa meira

true

Á níunda þúsund erindi bárust Neytendasamtökunum

Ársskýrsla Neytendaaðstoðar Neytendasamtakanna fyrir árið 2016 er komin út og er aðgengileg á heimasíðu samtakanna, ns.is. Þar kemur fram að á árinu 2016 bárust samtökunum 8.320 erindi, sem er aukning frá árinu á undan. Flest erindi voru varðandi vátryggingar, viðskipti við fjármálafyrirtæki, þjónustu iðnaðarmanna, bifreiðar og farsíma en einnig voru erindi tengd ferðaþjónustu fjölmörg. Í…Lesa meira

true

UDN og Snæfell hefja samstarf í knattspyrnu

Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga og Snæfell hafa gert samstarfssamning um meistaraflokk karla í knattspyrnu. Sameiginlegt lið félaganna mun taka þátt í Lengjubikarnum þar sem liðið er í riðli með Álftanesi, Árborg, Mídasi, Stál-Úlfi og Ými. Fyrsti leikurinn verður gegn Mídasi í Akraneshöllinni föstudaginn 10. mars næstkomandi. Einnig mun sameiginlegt lið UDN og Snæfells taka þátt…Lesa meira

true

Vestlenskir framhaldsskólanemar í Háskólahermi

Um 300 nemendur úr þrettán framhaldsskólum landsins munu taka virkan þátt í háskólasamfélaginu dagana 2. og 3. febrúar þegar Háskólahermirinn fer fram í Háskóla Íslands. Allir þrír framhaldsskólarnir á Vesturlandi eru þar á meðal, þ.e. Fjölbrautaskóli Vesturlands, Fjölbrautaskóli Snæfellinga og Menntaskóli Borgarfjarðar. Öll fræðasvið HÍ hafa undirbúið fjölbreytta dagskrá. Háskóli Íslands hleypti verkefninu Háskólaherminum af…Lesa meira

true

Rætur reifaðar og tengsl toguð í Borgfirðingasögum

Þriðjudaginn 7. febrúar nk. verður fyrsta námskeiðskvöld vetrarins á vegum Snorrastofu, Landnámsseturs Íslands og Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi. Það er upphaf námskeiðs í höndum Óskars Guðmundssonar rithöfundar í Véum, sem flytur fyrirlestra með hefðbundnu sniði og efnir til umræðna meðal þátttakenda. Þetta fyrsta kvöld verður í Landnámssetrinu í Borgarnesi og hefst kl. 20. Stofnanirnar þrjár hafa…Lesa meira

true

Nafn mannsins sem lést í snjóflóði í Esjuhlíðum

Maðurinn sem lést þegar snjóflóð féll úr hlíðum Esju síðdegis á laugardaginn hét Birgir Pétursson. Birgir var 25 ára búsettur í Reykjavík en var frá Stykkishólmi. Það var mbl.is sem greindi frá. Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að aðstandendur hins látna vilji koma á framfæri þakklæti til þeirra sem þátt tóku í leitinni.Lesa meira

true

Akranes áfram í Útsvari

Akranes bar sigurorð af Sandgerði í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaganna á RÚV, þegar liðin mættust að kvöldi síðasta föstudags. Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir, Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir og Örn Arnarson skipuðu sem fyrr lið Skagamanna. Nokkuð jafnt var á með liðunum framan af viðureigninni, Skagamenn höfðu þó heldur undirtökin framan af en Sandgerðingar náðu að minnka muninn í…Lesa meira

true

Hraunfossar í vetrarham

Hraunfossar og Barnafoss í Hallmundarhrauni eru fallegir á öllum árstímum. Þangað koma hópar af ferðamönnum dag hvern óháð árstímum. Iðnaðarmenn sem eru nú að störfum við uppbyggingu veitingahúss við Hraunfossa segja með ólíkindum sú mikla umferð sem er að fossunum nú um hávetur. Meðfylgjandi mynd tók starfsmaður Into the Glacier, fyrirtækisins sem heldur uppi reglulegum…Lesa meira