Fréttir

true

Umferðin á morgun – gott að hafa varann á

Ekki er vitað hvernig umferðinum Vesturland þróast á morgun. Þegar þetta er skrifað hefst umferðarstýring vegna sólmyrkvans snemma og stendur fram yfir atburðinn. Þetta kemur fram á vef Vegargerðarinnar. Á flestum vegum verður um einstefnu að ræða sem verður aflétt að almyrkva loknum, nema á Örlygshafnarvegi í Patreksfirði, þar verður einstefnu snúið við kl. 18:00. Gera má ráð fyrir…Lesa meira

true

Fjöldi manns mættur á Hellissand

Hátíðin Iceland Eclipse Festival 2026 er að hefjast á Hellissandi og þessi mynd var tekin kl. 6 í morgun af fréttaritara Skessuhorns. Þá var kominn fjöldi manns á svæðið, en alls verða seldir 3333 miðar auk þess sem íbúar á nærsvæði fengu frímiða.Lesa meira

true

Hvalfjarðardagar fram undan með fjölbreyttri dagskrá

Dagskrá Hvalfjarðardaga, sem fram fara dagana 13.–16. ágúst, hefur verið kynnt. Fram undan er fjölbreytt hátíðarhelgi þar sem íbúum og gestum býðst að taka þátt í fjölda viðburða víðs vegar um Hvalfjarðarsveit. Á dagskránni er meðal annars litahlaup á vegum Ungmenna- og íþróttafélags Hvalfjarðarsveitar, heimatónleikar í Skipanesi, útitónleikar með Hreimi og Vigni Snæ í Álfholtsskógi,…Lesa meira

true

Sterkur heimasigur Víkings á Selfossi

Víkingur Ólafsvík vann góðan 2-0 sigur á Selfossi þegar liðin mættust á Ólafsvíkurvelli í 16. umferð 2. deildar karla mánudaginn 10. ágúst. Víkingar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og uppskáru mark á 32. mínútu þegar Ingvar Freyr Þorsteinsson kom boltanum í netið og heimamönnum í 1-0 forystu. Víkingur hafði skapað sér nokkur góð færi…Lesa meira

true

Mikið líf á Hellissandi

Undirbúningur fyrir sólmyrkvann næstkomandi miðvikudag er þessa daganna á fullu. Margir horfa til Hellissands þar sem gestir mæta til þess að njóta væntanlegrar upplifunar, en þar er líka tónlistarhátíðin Iceland Eclipse Festival 2026 að hefjast og stendur hún frá og með morgundeginum og fram til laugardags. Þar mun fjöldi tónlistarmanna koma fram auk annara viðburða.…Lesa meira

true

Danskir dagar í Stykkishólmi

Fjölskyldu- og bæjarhátíðin Danskir dagar hefst í Stykkishólmi hefst næstkomandi miðvikudag og fjallað verður sérstaklega um hana á síðum blaðsins þann dag. Mikil og fjölbreytt dagskrá verður á hátíðinni, sem verður í gangi allt fram til sunnudagsins 16. ágúst. Dönsku dagarnir eru rótgróðinn viðburður og ein elsta bæjarhátíð landsins, enda hefur hún verið haldin í…Lesa meira

true

Myndband frá Akranesi

Faxaflóahafnir hafa birt fallegt myndband frá Akranesi á Youtube. Upptakan var gerð í tengslum við komu franska skemmtiferðaskipsins Le Bellot sem mætti í höfnina á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Le Bellot er lúxusskip sem tekur 184 farþega og í áhöfn eru 110 manns. Um borð eru 92 svítur og allar með svölum og meðal vistarvera er…Lesa meira

true

Veðurstofan opnar síðu um horfurnar

Senn líður að almyrkvadeginum, miðvikudeginum 12. ágúst. Nokkur óvissa ríkir um hversu margir muni leggja leið sína um Vesturlandið vegna hans, en ljóst er að það verður umtalsverður fjöldi svo gera má ráð fyrir umferðartöfum. Eins er ekki víst hvernig veðrið muni leika landsmenn og erlenda ferðalanga. Veðurstofa Íslands hefur opnað sérstakt spásvæði og yfirlitssíðu…Lesa meira

true

Hvanneyrarhátíð – aðaldagskrá í dag

Í dag er hápunktur Hvanneyrarhátíðarinnar og þar er að finna fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna þar sem sveitasæla, landbúnaðarsaga og tónlist tvinnast saman, segir í tilkynningu frá forsvarsfólki hátíðarinnar. Hátíðin hófst í gær með frisbígolfmóti, tvísöng í Hvanneyrarkirkju og öflugum ungmennatónleikum. En í dag er sem sagt aðaldagur hennar og verður hún formlega…Lesa meira

true

Gleðiganga Hinsegin daga í dag

Gleðiganga Hinsegin daga fer fram í Reykjavík í dag og má sjá frekari upplýsingar og dagskrá hátíðarinnar á vefsíðunni hinsegindagar.is. Fyrsta Gleðigangan í Reykjavík fór fram árið 2000 og upp frá því hafa Hinsegin dagar vaxið og dafnað með ótrúlegum hraða. Hinsegin dagar í Reykjavík eru dagana 4.-9. ágúst í ár og hófust með setningarhátíð…Lesa meira