Fréttir

true

Menn binda vonir við nýjan rannsóknaleiðangur

Fram kom í síðustu viku að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra ákvað að fylgja ráðgjöf Hafrannsóknastofunar um æskilegan hámarksafla á loðnu á komandi vertíð. Það þýðir að heildarkvótinn verður 57.000 tonn en þar af koma einungis 12.100 tonn í hlut íslenskra skipa. Að teknu tilliti til tegundatilfærslna standa aðeins eftir rúmlega 11.500 tonn af loðnu sem…Lesa meira

true

VW söluhæsti bíllinn á svindlári

Þýska Volkswagen bílasamstæðan er nú stærsti bílaframleiðandi heims og hefur velt hinum japanska Toyota af stalli. VW seldi á síðasta ári 10,3 milljónir bíla, en Toyota 10,18 bíla. Einkum er það mikil sala bíla Volkswagen í Kína sem tryggði þeim efsta sætið árið 2016. Þetta gerist þrátt fyrir fréttir á síðasta ári um svindl þar…Lesa meira

true

Banaslys þegar snjóflóð féll í Esjunni

Karlmaður lést og tveir slösuðust þegar snjóflóð féll í hlíðum Esjunnar síðdegis í gær. Fjölmennt lið björgunarsveita, sjúkraliðs, lögreglu og leitarhunda tók þátt í leit að manninum og aðgerðum á fjallinu auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar var notuð. Tveir mannanna komust af sjálfsdáðum úr flóðinu. Maðurinn sem lést fannst á áttunda tímanum í gærkvöldi. Snjóflóðið…Lesa meira

true

Skipulagsbreyting gerir ráð fyrir fjölbýlishúsi við Vallholt 5

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur auglýst tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akraness vegna lóðarinnar við Vallholt 5. Breytingin felur í sér að í stað íbúða í tveggja hæða fjölbýlishúsi, sem gætu þjónað nemendum Fjölbrautaskóla Vesturlands, megi byggja fjölbýlishús á tveimur hæðum fyrir almennan markað. Samhliða var auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ægisbrautar vegna sömu lóðar. Breytingin…Lesa meira

true

Skagasigur eftir spennandi síðari hálfleik

ÍA mætti liði FSu í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var á Selfossi. Eftir góðan fyrri hálfleik Skagamanna komust heimamenn inn í leikinn í þriðja leikhluta og hleypa spennu í leikinn. Skagamenn höfðu þó betur eftir spennandi lokafjórðung, 65-70 og kræktu í fimmta sigur sinn í deildinni. Mikið jafnræði var með liðunum…Lesa meira

true

Síminn með hraðasta farsímanetið á Íslandi

Fyrirtækið Ookla Speedtest krýnir Símann sigurvegara ársins 2016 þegar kemur að hraða á farsímanetum hér á landi. Ookla Speedtest mælir hraða farsímakerfa um allan heim í milljónum prófana á dag og notast við meðalhraða mælinga úr nýjum snjalltækjum. Meðalhraðinn á farsímaneti Símans mældist 44,13 Mb/s á farsímanetum Símans um allt land. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi…Lesa meira

true

Alparket veitir alhliða parketþjónustu

Ole Jakob Volden er fertugur trésmiður á Akranesi. Hann hefur verið búsettur á Skaganum frá tíu ára aldri, lauk húsasmíðanámi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands og hefur unnið við smíðar meira og minna allar götur síðan. Í dag starfar hann í kersmiðju Norðuráls og samhliða því rekur hann fyrirtækið Alparket sem býður alhliða þjónustu með gólfparket. „Þetta…Lesa meira

true

Urðu að sætta sig við tap í hörkuleik

Skallagrímur heimsótti ÍR í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Fyrirfram var búist við hörkuleik og sú varð einmitt raunin. Lengst af var hann mjög jafn en að lokum hafði ÍR betur, 81-74. Upphafsfjórðungurinn var jafn og spennandi, liðin skiptust á að leiða en ÍR-ingar höfðu tveggja stiga forskot að leikhlutanum loknum, 18-16. Í…Lesa meira

true

Öllum starfsmönnum GMR sagt upp störfum

Alls var 17 starfsmönnum málmendurvinnslufyrirtækisins GMR á Grundartanga sagt upp störfum í dag og er þetta jafnframt þeirra síðasti vinnudagur. Undanfarið ár hafa ítrekað verið höfð afskipti af rekstri GMR og til dæmis hafa bæði Heilbrigðisnefnd Vesturlands og Umhverfisstofnun gert athugasemdir vegna mengunar sem stafað hefur frá rekstrinum og vegna þess að ekki hafi verið…Lesa meira