Fréttir

true

Öllum starfsmönnum GMR sagt upp störfum

Alls var 17 starfsmönnum málmendurvinnslufyrirtækisins GMR á Grundartanga sagt upp störfum í dag og er þetta jafnframt þeirra síðasti vinnudagur. Undanfarið ár hafa ítrekað verið höfð afskipti af rekstri GMR og til dæmis hafa bæði Heilbrigðisnefnd Vesturlands og Umhverfisstofnun gert athugasemdir vegna mengunar sem stafað hefur frá rekstrinum og vegna þess að ekki hafi verið…Lesa meira

true

„Dvel hjá fullkominni fjölskyldu og allir taka mér vel“

Niccoló Carrivale er ítalskur skiptinemi sem dvelur í Borgarnesi um þessar mundir. Hann kom til hingað til lands frá Ítalíu í gegnum skiptinemasamtökin AFS 19. ágúst síðastliðinn. Niccoló stundar nám á félagsfræðibraut við Menntaskóla Borgarfjarðar og líkar dvölin vel. Hann segir Ísland hafa verið sitt fyrsta val af tveimur meginástæðum. Í fyrsta lagi vildi hann…Lesa meira

true

Akranes mætir Sandgerði í Útsvari

  Í kvöld fer fram fimmta viðureign annarrar umferðar Útsvars, spurningakeppni sveitarfélaganna á RÚV, þegar lið Akraness mætir liði Sandgerðis. Akurnesingar komust áfram í aðra umferð með sigri á Árborg, 80-72 en Sandgerðingar sigruðu lið Rangárþings eystra með einu stigi, 50-49. Sigurvegarinn úr viðureign Akraness og Sandgerðis í kvöld tryggir sér sæti í átta liða…Lesa meira

true

Nýsköpunarkeppni nemenda á miðstigi grunnskóla

Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) hefur nú verið árviss viðburður frá 1991 og er þátttaka í keppninni orðin fastur liður í mörgum skólum landsins. Tilgangur NKG er að virkja sköpunarkraft barna í landinu, gera þeim grein fyrir sköpunargáfu sinni og þroska hana í gegnum vinnu með eigin hugmyndir, efla og þroska frumkvæði og nýsköpunarstarf í grunnskólum og…Lesa meira

true

Covile með stórleik í fyrsta leiknum

Snæfell mætti Þór Þorlákshöfn í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Stykkishólmi og fengu heimamenn að sjá Christian Covile, nýjan leikmann Snæfells, leika sinn fyrsta leik með liðinu. Hann fékk loks leikheimild með Stykkishólmsliðinu í gærmorgun, eins og sagt var frá í frétt á vef Skessuhorns og lét mikið að sér…Lesa meira

true

Telja bætta vetrarþjónustu Vegagerðarinnar forsendu vaxtar í ferðaþjónustu

Á undanförnum árum hefur átt sér stað mikil uppbygging ferðaþjónustu í uppsveitum Borgarbyggðar. Aðsókn ferðafólks að þessu svæði hefur stóraukist og á það jafnt við um sumar og vetur. Tugir þúsunda koma í ísgöngin í Langjökli og fer aðsókn að honum vaxandi jafnt og þétt og ferðir á Langjökul njóta sívaxandi vinsælda. Þá hefur mikil…Lesa meira

true

Lagt til að Þjóðkirkjan taki við 22 kirkjum

Nýlega var kynnt tillaga Viðskiptaráðs þess efnis að ríkissjóður selji fjölda fasteigna í sinni eigu, eða rétt innan við þúsund eignir. Það húsnæði sem ríkissjóður á er afar fjölbreytt. Þyngst vegur húsnæði sem hýsir starfsemi mennta- og heilbrigðiskerfisins, en í eignasafni ríkissjóðs eru fleiri tegundir húsnæðis veigamiklar, til dæmis skrifstofuhúsnæði, íbúðarhúsnæði, sérhæft atvinnuhúsnæði, sögufræg hús…Lesa meira

true

Nýsköpunarsmiðja hjá Auðarskóla í Dölum

Nemendur unglingastigs Auðarskóla í Dölum lögðu leið sína í félagsheimilið Árblik síðastliðinn þriðjudag til að taka þátt í nýsköpunarsmiðju um ferðamál í Dölum. Smiðjan var undir leiðsögn Bjarnheiðar Jóhannsdóttur ferðamálafulltrúa Dalabyggðar og Eyjólfs Eyjólfssonar frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Markmið smiðjunnar var að skoða þarfir markaðarins og auðlindir á svæðinu og vinna út frá því að þróun…Lesa meira

true

Nýr löndunarkrani bætir aðstöðu í Ólafsvíkurhöfn

Nýr löndunarkrani, sem er staðsettur efst á Norðurtanga, var tekinn í notkun í Ólafsvíkurhöfn á dögunum. Kraninn er góð viðbót og mun hann nýtast vel en oft hefur verið erfitt að landa á gömlu krönunum sérstaklega í sunnanáttum vegna sjógangs í höfninni. Þessi krani er búinn fjarstýringu sem er til mikilla þæginda fyrir þá sem…Lesa meira

true

Gáfu öllum nemendum endurskinsvesti

Í liðinni viku fengu nemendur og starfsfólk Reykhólaskóla heimsókn. Þá litu við fulltrúar Þörungaverksmiðjunnar, þau Finnur Árnason framkvæmdastjóri, Birna Björnsdóttir framleiðslustjóri og Bjarni Þór Bjarnason. Færðu þau Reykhólaskóla að gjöf endurskinsvesti sem verksmiðjan hafði látið útbúa handa öllum 70 nemendum leik- og grunnskóladeildarinnar, með nafni hvers og eins á bakinu. Starfsfólk skólans fékk einnig vesti.…Lesa meira