Fréttir

true

Ókeypis heilsufarsmæling framundan á Snæfellsnesi

SÍBS og Hjartaheill hyggjast bjóða íbúum á Snæfellsnesi upp á ókeypis heilsufarsmælingar helgina 4. og 5. febrúar næstkomandi í samstarfi við heilsugæsluna og sveitarfélög á svæðinu. Mælingarnar á Snæfellsnesi verða: Í heilsugæslunni í Ólafsvík kl. 10-13 laugardaginn 4. febrúar. Í heilsugæslunni á Grundarfirði kl. 15-18 laugardaginn 4. febrúar. Í heilsugæslunni á Stykkishólmi kl. 10-14 sunnudaginn…Lesa meira

true

Ungmennamóttaka opnuð í Borgarnesi

Móttaka fyrir ungt fólk hefur verið sett á laggirnar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Borgarnesi. Markmiðið með þjónustunni er að auka aðgengi ungmenna að heilbrigðisþjónustu, að bjóða upp á ráðgjöf og fræðslu og stuðla að bættri líðan. Að sögn Lindu Kristjánsdóttur yfirlæknis á HVE í Borgarnesi er móttökunni sinnt af lækni og hjúkrunarfræðingi í samvinnu við…Lesa meira

true

Rektorar vilja markviss skref um bætta fjármögnun háskólanna

Rektorar íslenskra háskóla fagna þeirri ákvörðun Alþingis að hækka fjárframlög til háskólanna við afgreiðslu frumvarps til fjárlaga 2017 og koma þannig til móts við áskorun til þingmanna um að bæta úr undirfjármögnun íslensks háskólakerfis. „Rektorarnir taka undir ákvæði í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar sem kveða á um eflingu allra skólastiga og að styðja skuli háskólana í að…Lesa meira

true

Til hamingju með daginn karlar!

Fyrsti dagur Þorra, bóndadagur, er í dag. Sú hefð er aldagömul að húsmóðirin færi út kvöldið áður og bjóði þorrann velkomin, og inn í bæ, eins og um tignann gest væri að ræða. Bóndinn skyldi hins vegar fara fyrstur allra á fætur þennan morgun. Í þjóðsögum Jóns Árnasonar segir að bændur áttu að fara ofan…Lesa meira

true

Gjaldtaka af ferðamönnum blasir við

Umræðan um hvort taka eigi gjald af ferðamönnum hefur verið áberandi í þjóðfélaginu undanfarin misseri. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar er rætt um verkefni sem meðal annars eiga að stuðla að „dreifingu ferðamanna um land allt og skynsamlegri gjaldtöku, t.d. með bílastæðagjöldum,“ eins og það er orðað í sáttmálanum. Þórdís Kolbrún Reykfjörð…Lesa meira

true

Brexit-hópur grágæsa hefur hér vetursetu

Heill herskari grágæsa sást í gær á flugi og á beit í Leirár- og Melasveit í Borgarfirði. Þrátt fyrir rok og skafrenning var engu líkara en gæsirnir væru búnar að gleyma að þær eru farfuglar og virtust una hag sínum vel þótt veðrið væri dæmigert fyrir upphaf Þorra. Gæsirnar sáust fyrir hádegi í oddaflugi áleiðis…Lesa meira

true

Grundfirðingur sigurvegari í Vísnakeppni grunnskólanna

Margrét Helga Guðmundsdóttir nemandi í 7. bekk Grunnskóla Grundarfjarðar varð hlutskörpust nemenda á miðstigi í Vísnasamkeppni grunnskólanna sem Menntamálastofnun stóð fyrir. Það kom í hlut Unnar Birnu Þórhallsdóttur íslenskukennari Margrétar Helgu að afhenda henni viðurkenningarskjal og bókaverðlaun frá Menntamálastofnun. Vísubotninn sem Margrét fær verðlaunin fyrir er hér:   Mér finnst gott að hlæja hátt, hafa…Lesa meira

true

Mannamót markaðsstofanna stendur nú yfir

Markaðsstofur landshlutanna í ferðamálum standa í dag fyrir ferðasýningunni Mannamót 2017 í flugskýli Ernis við Reykjavíkurflugvöll. Tilgangurinn með þessum degi er að auka dreifingu ferðamanna um landið allt með því að mynda og efla tengsl á milli ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi. Þrátt fyrir fjölgun ferðamanna til landsins á seinni árum eru enn mörg ónýtt sóknarfæri á…Lesa meira

true

Verðlaunamyndir til sýnis í Safnahúsinu

Síðastliðinn laugardag var opnuð ný sýning í Safnahúsinu í Borgarnesi; ljósmyndasýning með verkum eftir ellefu myndhöfunda. Allt eru það áhugaljósmyndarar og myndefnið er umhverfi og mannlíf í Borgarnesi á árinu 2016. Markmiðið með samkeppninni var að fanga sjónarhorn ólíkra ljósmyndara á mannlíf og umhverfi Borgarness árið 2016 sem undanfara að afmælisári. Leit dómnefnd jafnt til…Lesa meira

true

Fundað á morgun með sjómönnum á Akranesi

Síðastliðinn þriðjudag var ákveðið að fresta samningaviðræðum milli sjómanna og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi fram til næsta mánudags. Stéttarfélög sjómanna hafa nýtt tímann í vikunni og fundað með sjómönnum. Verkalýðsfélag Akraness hefur boðað til fundar á morgun, föstudag, með þeim sjómönnum sem tilheyra félaginu. Að sögn Vilhjálms Birgissonar formanns VLFA verður farið yfir stöðuna og…Lesa meira