Fréttir

true

Eldgos, missir og von

Nikolína Theodóra Snorradóttir er nýlega orðin sextug. Hún ólst upp í Vestmannaeyjum og var á sextánda aldursári þegar byrjaði að gjósa í Heimaey. Tvítug flutti hún upp á Akranes þar sem hún hefur búið í fjörutíu ár. Hún hefur upplifað mikinn missi í gegnum lífið. Á innan við ári missti hún móður sína og systur…Lesa meira

true

Hittust á jólaklifurmóti

Um liðna helgi hittust ÍA klifrarar á Jólamóti ÍA í aðstöðu klifurfélagsins að Vesturgötu á Akranesi. Um 30 klifrarar mættu prúðbúnir til leiks og glímdu við 13 klifurleiðir sem leiðasmiðir ÍA höfðu sett upp. Mótið heppnaðist afar vel. Leiðasmiðir lögð mikla vinnu í að setja upp skemmtilegar leiðir fyrir klifrara að glíma við og að…Lesa meira

true

Aðventumót eldri borgara í pútti var haldið í Eyjunni

Eldri borgarar í Borgarbyggð hafa æft pútt af kappi innanhúss frá því í byrjun október í skemmtilegri aðstöðu sem nefnd er Eyjan. Það er Golfklúbbur Borgarness og eldi borgarar sem komu sér upp þessari aðstöðu í gamla sláturhúsinu í Brákarey. Þar er æft af kappi tvisvar í viku og hefur mæting verið mjög góð. Að…Lesa meira

true

Skúringamoppa og vörubílsstrappi í skólpið!

„Við vorum aðeins í vandræðum með lokur í dælustöð við Digranesgötu, sem dælir skólpi í nýju hreinsistöðina sem verið er að taka í gagnið í Borgarnesi,“ segir í tilkynningu frá Veitum á Facebook síðu fyrirtækisins. „Ástæðan? Jú, einhverjum hefur tekist að koma moppu niður um klósettið hjá sér og annar sturtaði niður vörubílsstrappa.“ Bent er…Lesa meira

true

Jólablað Skessuhorns komið út

Hið árlega Jólablað Skessuhorns kom út í dag og er í dreifingu með Íslandspósti, til blaðburðarbarna og í verslanir. Blaðið er mikið að vöxtum, 112 síður og sneisafullt af áhugaverðu efni. Meðal annars má nefna fréttaannál, kveðjur úr héraði, myndagátu og krossgátu auk  viðtala við tugi áhugaverðra einstaklinga í leik og starfi á Vesturlandi.Lesa meira

true

Snorri sjötugur

“Í tilefni þess að Snorri á Augastöðum er að verða 70 ára á morgun, fimmtudaginn 21. desember, ætlar fjölskylda hans að bjóða öllum þeim sem vilja heiðra hann með nærveru sinni að Hraunfossum á afmælisdaginn. Húsið verður opnað klukkan 18:00 og verður opið það sem eftir lifir afmælisdagsins. Léttar veitingar í boði. Snorri vil benda…Lesa meira

true

Góð aðsókn í nám á vorönn á Bifröst

Mjög góð aðsókn er í nám á vorönn 2018 við Háskólann á Bifröst en ríflega hundrað umsóknir höfðu borist nú fyrir jólin. Formlegum umsóknarfresti lauk 10. desember sl. en umsóknir voru enn að berast skólanum og verður farið yfir þær allar. Mest aukning er á umsóknum í meistaranám en búast má við töluvert fleiri innritunum…Lesa meira

true

Hálka og snjóþekja á vegum

Á Vesturlandi er hálka, snjóþekja og éljagangur á vegum. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að á Suður- og Suðvesturlandi er víðast hvar hálka eða hálkublettir, einnig er éljagangur sumsstaðar. Flughált er í Grafningi. Hálka eða snjóþekja er á Vestfjörðum og eitthvað um éljagang og skafrenning. Ófært er á Dynjandis- og Hrafnseyrarheiði. Þæfingur er norður í…Lesa meira

true

Bók um aflaskipið Víking AK-100 væntanleg

Í febrúar næstkomandi kemur út bókin „Víkingur, sögubrot af aflaskipi og skipverjum,“ sem rituð er af Haraldi Bjarnasyni blaðamanni. Í bókinni er sagt frá aðdraganda smíði togarans Víkings AK-100 en hann kom nýr til Akraness 21. október 1960 og skipinu er fylgt í gegnum árin. Skipið var í rúma hálfa öld gert út frá Akranesi…Lesa meira

true

Aðventutónleikar í Reykholti

Freyjukórinn, Karlakórinn Söngbræður og Reykholtskórinn í samstarfi við Reykholtskirkju-Snorrastofu halda aðventutónleika í Reykholtskirkju fimmtudaginn 21. des. nk. kl 20:30. Stjórnandi allra kóranna er Viðar Guðmundsson. Meðleikarar eru Jón Bjarnason organisti í Skálholti á orgel og píanó, Heimir Klemenzson nýbakaður faðir á píanó og Atli Guðlaugsson skólastjóri Tónlistarskóla Mosfellsbæjar á Trompet. Á söngskránni eru lög sem…Lesa meira