Fréttir

true

Mörg á skautum í fyrsta skipti

Börn í 6. bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar skelltu sér á skauta með kennaranum sínum og skólastjóranum síðastliðinn föstudag. Farið var á tjarnir sem eru við flugvöllinn í Rifi. Krakkarnir skautuðu við frábærar aðstæður á sléttu svelli í blíðu en köldu veðri. Var þetta mikil upplifun fyrir þau en mörg þeirra voru að fara á skauta í…Lesa meira

true

Margvísleg verkefni lögreglunnar

Verkefni lögreglunnar voru margvísleg í liðinni viku. Síðdegis mánudaginn 11. desember var einn ökumaður stöðvaður og handtekin, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Um kvöldið sama dag var ekið á ljósastaur við hitaveitutankana í jaðri Akranesbæjar. Ljósastaurinn brotnaði og ökumaður kenndi sér lítilla eymsla og var því fluttur á sjúkrahúsið til skoðunar. Þriðjudaginn 12. desember…Lesa meira

true

Farfuglaheimilið í Borgarnesi hlýtur Svansvottun

Farfuglaheimilið í Borgarnesi er fyrsti Svansmerkis leyfishafinn á Vesturlandi í flokki gistingar og fyrsta Farfuglaheimilið utan Reykjavíkur til að uppfylla vottunarkröfur norræna umhverfismerkisins Svansins. „Farfuglaheimilið í Borgarnesi hefur að undanförnu ári undirgengist viðamiklar endurbætur og hefur nú uppfyllt strangar umhverfiskröfur Svansins. Settir hafa verið upp ferlar og innleiddar ýmsar aðgerðir til að lágmarka umhverfisáhrif vegna…Lesa meira

true

Ólafía Þórunn og Axel valdir kylfingar ársins

Golfsamband Íslands hefur valið kylfinga ársins 2017. Þeir eru Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (GR) og Axel Bóasson (GK). Í tilkynningu frá Golfsambandinu segir: „Ólafía Þórunn náði frábærum árangri á sínu fyrsta tímabili á LPGA mótaröðinni sem er sterkasta atvinnumótaröð heims. GR-ingurinn endaði í 74. sæti á stigalistanum með árangri sínum er hún í forgangi á öll…Lesa meira

true

Vilja að Miðhálendisþjóðgarður fái aðsetur á Hvanneyri

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í síðustu viku var tekin til umræðu skýrsla nefndar Umhverfisráðuneytisins um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu svo og ályktum Sambands íslenskra sveitarfélaga um sama efni. Sveitarstjórn bókaði vegna þessa enda snertir umræða um þjóðgarð á miðhálendinu Borgarbyggð verulega vegna tengingar sveitarfélagsins við hálendið. „Ljóst er að stofnun miðhálendisþjóðgarðs myndi hafa í för…Lesa meira

true

Snæfellskonur þurftu að lúta í gras á heimavelli

Snæfell tók á móti Breiðabliki í síðustu umferð Domino‘s deildar kvenna fyrir jólafrí. Leikið var í Stykkishólmi á laugardag. Urðu Snæfellskonur að játa sig sigraðar, 66-71, í leik þar sem gestirnir höfðu yfirhöndina lungann úr leiknum. Liðin fylgdust að í upphafi leiks og Snæfell leiddi með einu stigi, 7-6, þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður. Þá…Lesa meira

true

Skallagrímskonur lágu gegn Haukum

Skallagrímskonur urðu að játa sig sigraðar gegn Haukum, 84-63, í síðasta leik Domino‘s deildar kvenna fyrir jólafrí. Leikið var á Ásvöllum í Hafnarfirði á laugardag. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og liðin skiptust á að skora. Skallagrímur leiddi með einu stigi þegar upphafsfjórðungurinn var hálfnaður en eftir það komust Haukakonur í gírinn.…Lesa meira

true

Skallagrímur á toppnum um jólin

Skallagrímur og ÍA mættust í Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfuknattleik á fimmtudagskvöld. Leikið var í íþróttahúsinu í Borgarnesi. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik tóku heimamenn öll völd á vellinum í þeim síðari og sigruðu örugglega, 127-96. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en Skallagrímur hafði þó heldur undirtökin. Eftir því sem leið…Lesa meira

true

Langþráð stund þegar fyrstu bæirnir voru tengdir ljósleiðaranum

Fimmtudagurinn 14. desember var stór dagur í fjarskiptamálum í dreifbýli í Snæfellsbæ. Í fallegu veðri voru fyrstu heimilin þá tengd í gegnum nýja ljósleiðarann. Fyrst var tengt hjá þeim Óskari og Sunnu í Vatnsholti. Þaðan var haldið til Kela í Langaholti og tengt þar. Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar var viðstaddur þegar bæirnir voru tengdir ásamt,…Lesa meira

true

Björgunarsveitin Klakkur fær nýjan bíl í flotann

Björgunarsveitin Klakkur í Grundarfirði fjárfesti nýverið í nýjum björgunarbíl af gerðinni Nissan Patrol. Fyrir átti sveitin tvo Patrol bíla en félagsmenn voru ekki alveg nægjanlega ánægðir með bílinn sem var skipt út fyrir þennan. Þessi er af árgerð 2008 og var breytt af Arctic Trucks árið 2013. Bíllinn er á 44 tommu dekkjum og var…Lesa meira