Fréttir

true

Endurbættur einkennisfatnaður björgunarsveitafólks

Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur tekið í notkun endurbættan einkennisfatnað fyrir björgunarsveitafólk. Uppfyllir hann kröfur um aukinn sýnileika. Gallinn er komin í sölu á skrifstofu félagsins í Skógarhlíð í Reykjavík. Tekið er fram í orðsendingu til björgunarsveitarfólks að jakkar með kvennmannssniði eru ekki væntanlegir fyrr en í janúar 2018. Verðið á jakkanum er 33.000 kr. og buxunum…Lesa meira

true

Sjö Vestlendingar í úrvalshópi í hópfimleikum

Yfirþjálfarar landsliða og landsliðsþjálfarar í hópfimleikum hafa valið úrtakshóp vegna Evrópumótsins í hópfimleikum sem fram fer á næsta ári. Um 200 iðkendur mættu á fyrstu úrtaksæfingu landsliðsins og alls voru hundrað iðkendur frá átta félögum valdir í fyrsta úrvalshópinn. Þrjár stúlkur úr Fimleikafélagi Akraness voru valdar í úrvalshóp stúlkna. Það eru þær Guðný Sigurrós Jóhannsdóttir,…Lesa meira

true

Frumvörp um notendastýrða persónulega aðstoð

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, mun á næstu dögum leggja fyrir Alþingi frumvörp um lögfestingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA) við fatlað fólk. Ríkisstjórnin samþykkti tillögu hans þessa efnis á fundi sínum í gær. Í frumvarpi til fjárlaga næsta ár er gert ráð fyrir tæplega 290 milljóna króna fjárheimild til samninga um notendastýrða persónulega aðstoð.…Lesa meira

true

Snæfell tapaði fyrir toppliði Vals

Snæfell mátti sætta sig við tap, 88-73, þegar liðið heimsótti topplið Vals í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Jafnt var á með liðunum fyrstu mínúturnar en snemma leiks náðu Valskonur yfirhöndinni. Snæfell var þó ekki langt undan og voru aðeins fjórum stigum á eftir Val eftir fyrsta leikhluta, 21-17. Snæfellskonur stigu á bensínið…Lesa meira

true

Gestirnir skelltu í lás í fjórða leikhluta

Skallagrímur mátti sætta sig við tap á heimavelli gegn Stjörnunni, 81-91, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í gærkvöldi. Leikurinn var jafn og spennandi en gestirnir skelltu í lás í fjórða leikhluta og kláruðu leikinn. Stjarnan hafði undirtökin stærstan hluta upphafsfjórðungsins og leiddi með átta stigum um hann miðjan, 7-15. Þá tóku Skallagrímskonur að…Lesa meira

true

Afhentu foreldrum bók að gjöf

Soroptimistaklúbbur Snæfellsness afhenti nýverið foreldrum allra barna sem fæddust á þessu ári í Snæfellsbæ að gjöf bókina Fyrstu 1000 dagarnir, barn verður til. Börnin eru fjórtán talsins. Höfundur bókarinnar er Sæunn Kjartansdóttir ljósmóðir. Soroptimistasystur Snæfellsness hafa síðan ákveðið að gefa öllum verðandi foreldrum í Snæfellsbæ bókina og mun hún verða afhent framvegis á meðgöngunni þegar…Lesa meira

true

Efni úr knattspyrnuvelli ekið í vegaxlir

Segja má að hluti af fótboltavellinum í Ólafsvík hafi fengið nýjan tilgang, en það hefur ekki ekki farið fram hjá íbúum á svæðinu að þessa dagana standa yfir framkvæmdir á Ólafsvíkurvelli. Verið er að jarðvegskifta undir gerfigras eins og fram hefur komið í Skessuhorni. Ákveðið var að nota hluta af efninu sem til féll til…Lesa meira

true

Verulega dregur úr eldsneytisnotkun í sjávarútvegi

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa gert skýrslu um olíunotkun í sjávarútvegi og væntanlega notkun til ársins 2030, auk annarra umhverfisþátta í starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja. „Mikið hefur áunnist á undanförunum áratugum og mjög hefur dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda sem rekja má til sjávarútvegs á Íslandi. Sú þróun heldur áfram á komandi árum. Einkum er horft til áranna…Lesa meira

true

Nýir eigendur vinna að breytingum á Baulunni

Félagið Langholt ehf., sem á og rekur Bauluna í Borgafirði, hefur fengið nýja eigendur. Fyrri eigendur höfðu rekið félagið síðustu 17 ár með miklum sóma en það var 1. september sl. að nýir eigendur komu að rekstrinum. Elmar Guðlaugsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri félagsins. Hann hafði starfað hjá Ölgerðinni síðan 2009, síðast sem sölumaður á…Lesa meira

true

Rán Kristinsdóttir sæmd starfsmerki UMFÍ

Rán Kristinsdóttir hlaut á héraðsþingi Héraðssambands Snæfells- og Hnappadalssýslu, sem haldið var fyrr í vikunni, starfsmerki UMFÍ fyrir mikið og óeigingjarnt starf fyrir íþróttahreyfinguna í Snæfellsbæ. Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, afhenti Rán starfsmerkið. Rán hefur verið formaður Umf. Víkings í Ólafsvík síðan árið 2014. Hún hefur lagt mikla vinnu í að gera starf ungmennafélagsins…Lesa meira