Fréttir

true

Lesa Aðventu Gunnars Gunnarssonar á aðventu

„Það er nokkurs konar skyndiviðburður hjá okkur. Við fengum góða ábendingu um að gaman væri ef Aðventa yrði lesin hjá okkur á aðventunni og tókum viðkomandi á orðinu. Aðventa er bók Gunnars Gunnarssonar rithöfundar, sígilt verk og þekkt. Starfsfólk Safnahúss Borgarfjarðar og sjálfboðaliðar, fólk úr áhugahópi um verkefnið, tekur þátt í lestrinum sem hefst kl.…Lesa meira

true

Opinber heimsókn forseta Íslands í Dalina

Í dag og á morgun munu forsetahjónin Guðni Th Jóhannesson og frú Eliza Reid heimsækja Dalabyggð. Af þessu tilefni er flaggað við Ráðhúsið í Búðardal. Þarna er einnig finnski þjóðfáninn á lofti í tilefni 100 ára afmælis finnska lýðveldisins. Þá er fæðingardagur fyrrum forseta Íslands, Kristjáns Eldjárns, sem fæddist 6. desember 1916. Skemmtilegt við meðfylgjandi…Lesa meira

true

Starfsfólki Bylgjunnar sagt upp

Tilkynningar um a.m.k. þrjár fjöldauppsagnir bárust Vinnumálastofnun fyrir liðin mánaðamót. Þar á meðal ein af Vesturlandi. Öllu starfsfólki Fiskiðjunnar Bylgjunnar í Ólafsvík, um þrjátíu talsins, var fyrir mánaðamótin afhent uppsagnarbréf. Aðspurður vildi Baldvin Leifur Ívarsson framkvæmdastjóri Bylgjunnar ekkert láta hafa eftir sér um ástæður uppsagna starfsfólks og rekstrarerfiðleika fyrirtækisins þegar eftir því var leitað. Að…Lesa meira

true

ÍA semur við efnilegan leikmann

Knattspyrnufélag ÍA hefur gert samning við hinn unga og efnilega Bjarka Stein Bjarkason um að leika með liðinu næstu tvö árin, eða út leiktímabilið 2019. Bjarki er fæddur árið 2000 og er uppalinn hjá Aftureldingu í Mosfellsbæ. Hann spilaði tíu leiki með liðinu í 2. deild karla síðasta sumar og skoraði í þeim tvö mörk.…Lesa meira

true

Fróðárheiði er lokuð

Á Vesturlandi er nú hálka eða hálkublettir á vegum og víða éljagangur. Fróðárheiði er lokuð. Það er víða éljagangur, strekkingsvindur og skafrenningur á Vestfjörðum og hálka eða snjóþekja á flestum leiðum. Þæfingsfærð er á Klettshálsi. Vegurinn fyrir Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði er ófær.  Eins er ófært í Árneshrepp.Lesa meira

true

Vegaframkvæmdir verða ekki fjármagnaðar með vegtollum

Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra hefur lagt til hliðar hugmyndir Jóns Gunnarssonar fráfarandi ráðherra um fjármögnun stórra samgöngumannvirkja á suðvesturhorninu með innheimtu vegtolla. Jón skipaði eins og kunnugt er nefnd sem útfærði þá leið að tvöfalda Suðurlandsveg austur fyrir Selfoss, Vesturlandsveg í Borgarnes og tvöföldun Reykjanesbrautar með vegtollum sem yrðu á að giska 140 krónur á…Lesa meira

true

Markaðir og fleira í Pakkhúsinu í Ólafsvík

Jólamarkaður var í Pakkhúsinu í Ólafsvík miðvikudaginn 29. nóvember sl. Vel var mætt á markaðinn og myndaðist góð stemning enda er hann orðinn árlegur viðburður þar. Ýmiss varningur var á boðstólnum. Drengirnir í 4. flokki voru með fjáröflun en þeir fara næsta sumar til Barcelona á Spáni í æfinga- og keppnisferð. Gunnhildur Kristný Hafsteinsdóttir seldi…Lesa meira

true

Jólalegt í Öldunni í Borgarnesi – opið hús í dag

Það var jólalegt í meira lagi í Öldunni í Borgarnesi þegar blaðamaður leit þar við fyrir helgi. Starfsfólk var búið að skreyta húsið hátt og lágt með heimagerðu skrauti, jólatónlist ómaði og starfsfólk vann að gerð aðventukransa, jólapoka og alls kyns jólaskrauts. Í dag, miðvikudaginn 6. desember, verður opið hús í Öldunni að Brákarey 25…Lesa meira

true

Skerpt á sérstöðu skólans sem alþjóðlegs viðskiptaháskóla

Stjórn Háskólans á Bifröst hefur samþykkt nýja stefnu sem gildir fyrir árin 2018 til 2021. Byggir hún á niðurstöðum stefnumótunarfundar sem haldinn var í lok október. Á þann fund var boðað fulltrúaráð skólans, starfsfólk, nemendur og fulltrúar aðstandenda skólans. Góð mæting var á fundinn en hann sóttu yfir 50 manns og mörg áhugaverð sjónarmið voru…Lesa meira

true

Einar Örn bikarmeistari í kraftlyftingum

Einar Örn Guðnason úr Kraftlyftingafélagi Akraness hampaði sigri á Bikarmótinu í Kraftlyftingum sem haldið var á Akureyri laugardaginn 25. nóvember síðastliðinn. Einar keppti og sigraði í 105 kg flokki. Hann lyfti 345 kg í hnébeygju í fyrstu tilraun og gerði síðan atlögu að nýju Íslandsmeti, 357,5 kg en mistókst í tvígang. Sömu sögu var að…Lesa meira