Fréttir

true

Jólalegt í Öldunni í Borgarnesi – opið hús í dag

Það var jólalegt í meira lagi í Öldunni í Borgarnesi þegar blaðamaður leit þar við fyrir helgi. Starfsfólk var búið að skreyta húsið hátt og lágt með heimagerðu skrauti, jólatónlist ómaði og starfsfólk vann að gerð aðventukransa, jólapoka og alls kyns jólaskrauts. Í dag, miðvikudaginn 6. desember, verður opið hús í Öldunni að Brákarey 25…Lesa meira

true

Skerpt á sérstöðu skólans sem alþjóðlegs viðskiptaháskóla

Stjórn Háskólans á Bifröst hefur samþykkt nýja stefnu sem gildir fyrir árin 2018 til 2021. Byggir hún á niðurstöðum stefnumótunarfundar sem haldinn var í lok október. Á þann fund var boðað fulltrúaráð skólans, starfsfólk, nemendur og fulltrúar aðstandenda skólans. Góð mæting var á fundinn en hann sóttu yfir 50 manns og mörg áhugaverð sjónarmið voru…Lesa meira

true

Einar Örn bikarmeistari í kraftlyftingum

Einar Örn Guðnason úr Kraftlyftingafélagi Akraness hampaði sigri á Bikarmótinu í Kraftlyftingum sem haldið var á Akureyri laugardaginn 25. nóvember síðastliðinn. Einar keppti og sigraði í 105 kg flokki. Hann lyfti 345 kg í hnébeygju í fyrstu tilraun og gerði síðan atlögu að nýju Íslandsmeti, 357,5 kg en mistókst í tvígang. Sömu sögu var að…Lesa meira

true

Fordæma kynbundið ofbeldi

„Kynbundið ofbeldi er ólíðandi í háskólum sem annars staðar í samfélaginu. Háskólinn á Bifröst vill ekki þola kynbundið ofbeldi í skólastarfinu, hvort heldur er meðal starfsfólks skólans eða nemenda. Þetta er áréttað í ljósi hinnar miklu umræðu sem hefur verið um kynbundið ofbeldi að undanförnu og í framhaldi af áskorun 348 háskólakvenna hinn 1. desember…Lesa meira

true

Niðurrif Sementsverksmiðjunnar hefst á næstu dögum

Laust fyrir hádegi í dag var skrifað undir samning milli Akraneskaupstaðar og fyrirtækisins Work North ehf. um niðurrif húsnæðis og búnaðar Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Það voru þeir Þorsteinn Auðunn Pétursson, framkvæmdastjóri og eigandi Work North, og Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi, sem skrifuðu undir fyrir hönd samningsaðila. Aðspurður segir Þorsteinn ætlun fyrirtækisins að hefjast…Lesa meira

true

Tímabundin lokun á umferð um Borgarbraut

Vegna framkvæmda við Borgarbraut 57-59 í Borgarnesi verður Borgarbraut lokuð tímabundið eða frá og með í dag og fram eftir degi á morgun. Lokunin er á móts við Borgarbraut 57-59 eða frá gatnamótum við Kveldúlfsgötu og að Borgarbraut 55. „Hjáleið verður um Kveldúlfsgötu/Kjartansgötu /Þorsteinsgötu. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin hefur fyrir vegfarendur,“…Lesa meira

true

Andabær fékk Grænfánann í sjöunda sinn

Í gær fékk leikskólinn Andabær á Hvanneyri afhentan Grænfánann í sjöunda skipti. „Við erum ákaflega stolt af því. Árið 2004 sótti starfsfólk Andabæjar um aðild að verkefninu og fékk fyrsta fánann afhentan ári síðar. Við erum því búin að vera í verkefninu í 13 ár. Mikil vinna er að halda fánanum og finnum við okkur…Lesa meira

true

Húsið flutt á Gilsbakka

Síðastliðinn föstudag var komið að því að flytja húsið sem standa á við Gilsbakka á Hellissandi og koma því fyrir á grunni sínum. Húsið eiga þau Lúðvík Ver Smárason og Anna Þóra Böðvarsdóttir. Smíði hússins hófst árið 2012 og var faðir Lúðvíks, Smári Lúðvíksson bygginarstjóri. Á föstudaginn var húsinu svo lyft upp á trailer flutningabíl…Lesa meira

true

Hlutu hvatningarverðlaun Öryrkjabandalagsins

Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalags Íslands 2017 voru veitt við hátíðlega athöfn í Reykjavík í gær að viðstöddu fjölmenni. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhenti verðlaunin, en þau voru veitt í þremur flokkum. Hlín Magnúsdóttir hlaut verðlaun í flokki einstaklinga, fyrir brennandi áhuga og frumkvæði að fjölbreyttum kennsluaðferðum. TravAble hlaut verðlaun í flokki fyrirtækja/stofnana, fyrir hönnun og þróun…Lesa meira

true

Hljómlistarfélag Borgarfjarðar heldur jólatónleika í næstu viku

Jólatónleikar Hljómlistarfélags Borgarfjarðar verða haldnir í Hjálmakletti í Borgarnesi fimmtudaginn 14. desember klukkan 20:30. Á tónleikunum koma fram meðlimir hljómlistarfélagsins, ungir og upprennandi tónlistarmenn í Borgarfirði, barnakór og söngkonan Helga Möller. „Tónleikarnir eru ekki reknir í hagnaðarskyni og rennur allur rekstrarafgangur í sjóð sem verður notaður til þess að styðja við bakið á ungu og/eða…Lesa meira