Fréttir

true

Ljósberinn veittur fyrirtæki og stofnunum í Borgarbyggð

Ljósberinn er viðurkenning sem velferðarnefnd Borgarbyggðar veitir stofnunum og fyrirtækjum í sveitarfélaginu sem stuðla að atvinnuþátttöku fatlaðra. Á Sauðamessu, sem haldin var í Borgarnesi síðastliðinn laugardag, var eftirtöldum fyrirtækjum veitt viðurkenningin Ljósberinn: Pósturinn í Borgarnesi, Safnahús Borgarfjarðar, Leikskólinn Ugluklettur, Brákarhlíð, Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi, Leikskólinn Klettaborg, Golfklúbbur Borgarness, Ráðhús Borgarbyggðar, Menntaskóli Borgarfjarðar, Grunnskólinn í Borgarnesi og…Lesa meira

true

Sjö hundruð ár frá vígslu fyrstu kirkjunnar á Ingjaldshóli

Messað var í Ingjaldshólskirkju síðastliðinn sunnudag. Þar var þess minnst að fyrsta kirkjan á Ingjaldshóli, sem vitað er um vígsludag, var vígð fyrir 700 árum, eða 13. október. Það var Dóra Sólrún Kristinsdóttir, djákni frá Rifi, sem predikaði í messunni og þjónaði fyrir altari ásamt sóknarprestinum séra Óskari Inga Ingasyni. Við athöfnina á sunnudag lásu…Lesa meira

true

„Var alltaf draumur að koma heim aftur og starfa í Borgarfirði“

Kristín Þórhallsdóttir frá Laugalandi í Borgarfirði lærði til dýralæknis í Kaupmannahöfn og útskrifaðist árið 2013. Hún hóf að starfa sem dýralæknir 2012, samhliða vinnu við lokaverkefni sitt, og hefur starfað undanfarin ár á Dýralæknamiðstöðinni á Hellu. Á síðasta ári flutti hún heim á æskuslóðir sínar ásamt fjölskyldu sinni og hefur nú opnað stofu á Laugalandi.…Lesa meira

true

Nýtt hús brátt flutt á lóð Gilsbakka á Hellissandi

Nýverið var tekinn grunnur fyrir nýju húsi þar sem áður stóð Gilsbakki á Hellissandi. Á þennan grunn á svo að flytja nýtt hús sem hefur reyndar verið í byggingu frá því haustið 2012. Að framkvæmdinni standa hjónin Lúðvík Ver Smárason og Anna Þóra Böðvarsdóttir. Aðspurður um hvernig hugmyndin að þessu húsi hafi komið, segir Lúðvík…Lesa meira

true

Setja markið á eitt af fjórum efstu sætunum

Grundfirðingar hefja leik í 3. deild karla í körfuknattleik næstkomandi laugardag, 14. október. Fyrsti leikurinn er heimaleikur á móti Stál-úlfi og hefst hann kl. 14:00 í íþróttahúsinu í Grundarfirði. Aðalsteinn Jósepsson, eða Steini Jobba, er potturinn og pannan í körfuknattleiksliði Grundfirðinga. Hann kveðst bíða komandi veturs með eftirvæntingu, þó á tímabili hafi verið tvísýnt með…Lesa meira

true

Hátíðarhöld í tilefni 60 ára afmælis Leikskólans í Stykkishólmi

Síðastliðinn laugardag var vegleg afmælishátíð haldin í Stykkishólmi þegar því var fagnað að leikskóli staðarins er 60 ára. Það var St.Franciskusreglan sem fyrst stofnaði leikskóla í bænum og rak með rausnarbrag í fjölmörg ár. Þannig var reglan frumkvöðull í rekstri leikskóla en slík starfsemi hófst fyrr í Stykkishólmi en í nágrannabyggðarlögum. Í tilefni afmælisins heiðruðu…Lesa meira

true

Vissi að hún væri skotmark hryðjuverka en upplifði þó ekki óöryggi

Hún hefur unnið í aðstæðum sem fæstir Íslendingar geta ímyndað sér, meðvituð um að vera skotmark hryðjuverka í Sómalíu, þar sem hún starfaði hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á vegum UNICEF. Í dag er hún þó búsett í örygginu á Íslandi, nánar tiltekið á Akranesi þar sem hún er fædd og uppalin og gegnir stöðu framkvæmdastjóra…Lesa meira

true

Upphaf fótboltans á Akranesi í samantekt Ásmundar Ólafssonar

Margir þekkja sögu fótboltans á Akranesi í seinni tíð, ekki síst eftir að hið fræga gullaldarlið gerði garðinn frægan á sjötta áratug liðinnar aldar. En fyrir þann tíma hafði knattspyrnan rutt sér til rúms í þessu litla sjávarþorpi og má rekja þá sögu allt aftur til þriðja áratugarins þegar ungir drengir lögðu hart að sér…Lesa meira

true

„Ef ekki verður hækkun afurðaverðs á næsta ári þá er bara sjálfhætt“

„Ég tók við búinu af foreldrum mínum um síðustu áramót. Þau búa hér enn í hinu íbúðarhúsinu og ætla að vera hér áfram,“ segir Eyjólfur Ingvi Bjarnason, bóndi, sauðfjárræktarráðunautur og formaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu. Hann býr í Ásgarði í Hvammssveit ásamt kærustu sinni Guðbjörtu Lóu Þorgrímsdóttur. Hún er leiðbeinandi í Auðarskóla í Búðardal og…Lesa meira

true

Vel sóttur fundur um atvinnu- og skipulagsmál í Stykkishólmi

Íbúafundur um atvinnumál og skipulagsmál var haldinn í Stykkishólmi á miðvikudaginn í síðustu viku. Fundurinn var vel sóttur og ekki annað að merkja en að gestir hefðu verið ánægðir með þær kynningar sem fluttar voru. Skipulag var kynnt, fjallað um nýsköpun og rannsóknir í atvinnumálum og sitthvað fleira. Sagt er frá fundinum í Skessuhorni vikunnar.Lesa meira