Fréttir

true

Vinstri græn á mikilli siglingu

Samkvæmt nýrri skoðakönnun miðla 365 fengi Vinstri hreyfingin grænt framboð tæplega 30% fylgi ef gengið yrði til kosninga nú. Sjálfstæðisflokkurinn er næststærstur með 22%. Þriðja mesta fylgið hefur Miðflokkurinn með 9%, Píratar með 8,5%, Samfylking 8%, Framsóknarflokkur með rúm 7% og Flokkur fólksins með 6%. Aðrir flokkar kæmu ekki mönnum á þing. Ef þetta yrði…Lesa meira

true

Meirihluti kjósenda enn óákveðinn

Kosið verður til Alþingis laugardaginn 28. október. Búið er að ákveða framboðslista nokkurra flokka sem bjóða fram í Norðvesturkjördæmi en síðustu forvöð til að skila inn framboðum er næstkomandi föstudag. Skessuhorn tók af handahófi tali tæplega fjörutíu kjósendur í NV kjördæmi og spurði þá hver þeir teldu brýnustu mál stjórnmálamanna sem kjörnir verða til forystu…Lesa meira

true

Héldu sveitamarkað í Æðarodda

Síðastliðinn laugardag var sveitamarkaður haldinn í félagsheimili Dreyra á Æðarodda við Akranes. Þar mátti sjá ýmsan varning; mat, gjafavöru, handverk og sitthvað fleira. Aðsókn var góð í það minnsta þann tíma sem ljósmyndari Skessuhorns leit við. Að markaðinum stóð Andrea Björnsdóttir í Eystri-Leirárgörðum og fleiri.Lesa meira

true

Áritar á morgun bókina Veraldarsiglingu Jóns

Bókin „Leiðin frá Langanesi – suður í höf og heim aftur, veraldarsigling Jóns Eggertssonar,“ er nú komin út. Það var Sölvi Sveinsson sem skráði. Börn Jóns gefa bókina út. „Við ætlum að vera í Geirabakaríi á morgun, fimmtudag frá klukkan 15-17, með bókina. Pabbi mun vera með okkur og gefur áritum á bókina handa þeim…Lesa meira

true

Gangsetning nýrrar skólphreinsistöðvar í Borgarnesi

Í dag hefst gangsetning Veitna á nýrri skólphreinsistöð í Borgarnesi, en unnið hefur verið við byggingu stöðvarhúss, lagna og annarra mannvirkja í um áratug. Stöðin verður bylting í fráveitumálum í bænum en hún mun taka við öllu skólpi, sem hingað til hefur runnið óhreinsað í sjó í gegnum nokkrar útrásir, hreinsa það og dæla um…Lesa meira

true

Varað við hættu á ísingu á vegum í kvöld

„Rétt eins og í gærkvöldi munu verða skúrir suðvestanlands í kvöld. Í kjölfarið léttir til og gerir jafnframt hægviðri eða logn,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. „Hætt er við að ísing muni víða myndast á götum og vegum í nótt eða snemma í fyrramálið. Á þetta einkum við um Suðurland einkum vestan Þjórsár, höfuðborgarsvæðið og…Lesa meira

true

Skotfélag Snæfellsness er þrjátíu ára í dag

Í dag, þriðjudaginn 10. október, fagnar Skotfélag Snæfellsness 30 ára starfsafmæli. Félagið var stofnað af skotáhugamönnum í Grundarfirði á haustdögum árið 1987 og hét í þá daga Skotveiðifélag Grundarfjarðar. Formlegur stofnfundur var haldinn 10. október sama ár, að undangengnum nokkrum undirbúningsfundum. Nafni félagsins var breytt í Skotfélag Snæfellsness 8. maí 2014 og hefur starfsemi félagsins…Lesa meira

true

Vel heppnað blakmót var haldið á Akranesi

Boggu-Bresamótið í blaki var haldið laugardaginn 30. september á Akranesi. Um skemmtimót var að ræða og nýliðar boðnir velkomnir að mæta og spreyta sig. Mótið hófst að morgni og lauk keppni síðdegis. „Boggu-Bresamótið er orðið að árlegum viðburði blakfélagsins. Það er haldið til heiðurs Guðbjargar Árnadóttur sem eiginlega má kalla blakdrottninguna okkar,“ segir Sædís Alexía…Lesa meira

true

Sjö hundruð ár frá vígslu fyrstu kirkjunnar á Ingjaldshóli

Messað var í Ingjaldshólskirkju síðastliðinn sunnudag. Þar var þess minnst að fyrsta kirkjan á Ingjaldshóli, sem vitað er um vígsludag, var vígð fyrir 700 árum, eða 13. október. Það var Dóra Sólrún Kristinsdóttir, djákni frá Rifi, sem predikaði í messunni og þjónaði fyrir altari ásamt sóknarprestinum séra Óskari Inga Ingasyni. Við athöfnina á sunnudag lásu…Lesa meira

true

Snæfell sigraði FSu í spennandi leik

Snæfell lék fyrsta heimaleik vetrarins í 1. deild karla í körfuknattleik í gær þegar liðið mætti FSu í Stykkishólmi. Eftir jafnan og spennandi leik kræktu Snæfellingar í fyrsta sigur vetrarins, 110-103. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiksins og liðin skiptust á að leiða. Varnarleikur liðanna sat aðeins á hakanum og fyrir vikið var…Lesa meira