Fréttir

true

Vilja fulltrúa í lýðræðisnefnd

Eins og fram hefur komið í fréttum ákvað sveitarstjórn Borgarbyggðar nýverið að skipa sérstaka upplýsinga- og lýðræðisnefnd sem starfa mun fram að lokum yfirstandandi kjörtímabils. Verkefni nefndarinnar er að styrkja þróun upplýsingamála og efla lýðræðislega umræðu meðal íbúa í sveitarfélaginu. Nefndin á að vera skipuð einum fulltrúa frá hverju framboði sem á fulltrúa í sveitarstjórn,…Lesa meira

true

Ásmundur Einar og Halla Signý leiða lista Framsóknarflokks í NV

Framsóknarflokkurinn í Norðvesturkjördæmi hélt í dag tvöfalt kjördæmisþing á Bifröst í Borgarfirði. Þar var kosið um hverjir skipa fimm efstu sæti á framboðslista fyrir kosningarnar 28. október nk. Raðað var í önnur sæti listans. Ásmundur Einar Daðason fv. alþingismaður í Borgarnesi bauð sig einn fram í forystusætið og var kjörinn. Í öðru sæti er Halla…Lesa meira

true

Slökkvilið kallað út vegna ofhitnunar í kornþurrkun

Slökkvilið Borgarbyggðar var í gærmorgun kallað út að bænum Laxárholti á Mýrum. Þar hafði hitabúnaður tengdur þurrkun á korni bilað með þeim afleiðingum að glóð var komin í kornið og talsverðan reyk lagð frá því. Að sögn Jökuls Fannars Björnssonar varaslökkviliðsstjóra var brugðist hárrétt við. Hann segir að Unnsteinn Jóhannsson bóndi hafi hringt út aðstoð…Lesa meira

true

Sagnfræðirit og málstofa um Smugudeiluna

Út er komin bókin Smugudeilan eftir Arnór Snæbjörnsson. Formála ritar Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur og forseti Íslands. Útgefandi er Sæmundur. Í tilefni af útgáfunni efna Hafréttarstofnun og Bókaútgáfan Sæmundur til málstofu um Smugudeiluna í Sjávarútvegshúsinu, Skúlagötu 4, á morgun, mánudaginn 9. október milli klukkan 12 og 13:30.  Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands flytur stutt ávarp…Lesa meira

true

Ætla að halda til streitu gjaldtöku á bílastæðin við Hraunfossa

Eins og fram kom í fréttum Skessuhorns fyrr í dag hófst gjaldtaka á bílastæði við Hraunfossa í Borgarfirði í morgun í andstöðu við nágranna og yfirvöld. Samkvæmt túlkun m.a. Umhverfisstofnunar, Vegagerðar, sveitarfélagsins Borgarbyggðar og fleiri stenst gjaldtakan ekki lög um náttúruvernd þar sem segir að ólögmætt sé að innheimta gjald inn á friðlýst svæði án…Lesa meira

true

Íslenskur súðbyrðingur sjósettur í Þrándheimi

Hafliði Aðalsteinsson, skipasmíðameistari og formaður Bátasafns Breiðafjarðar á Reykhólum,  hefur frá því um miðjan ágúst unnið að því að smíða súðbyrðing hjá Kystens Arv í Syðri Þrændalögum í Noregi. Verkefni Hafliða ytra var að smíða dæmigerðan breiðfirskan súðbyrðing. Hafliði mældi og teiknaði upp bátinn Sendling sem Ólafur Bergsveinsson langafi hans smíðaði fyrir um 130 árum,…Lesa meira

true

Hófu í morgun meinta ólöglega gjaldheimtu á bílastæði

Í morgun hófu landeigendur að Hraunsási II í Hálsasveit innheimtu bílastæðagjalds við Hraunfossa í Borgarfirði. Eins og fram kom í fréttum Skessuhorns í sumar ætluðu landeigendur að hefja gjaldtökuna 1. júlí síðastliðinn en frá því var horfið enda var og er slík innheimta talin stangast á við náttúruverndarlög. Gjaldtaka inn á friðlýst svæði krefst leyfis…Lesa meira

true

Tveir sækjast eftir að verða varaformaður VG

Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna setur landsfund flokksins klukkan 17:00 í dag. Fjöldi gesta sækir fundinn og eru á fjórða hundrað félagar í VG skráðir til leiks á Grand Hótel. Setningarræða Katrínar verður sýnd í beinni útsendingu á vefsíðu Vinstri grænna, vg.is. Vefslóð útsendingarinnar er hér að finna neðan. Á morgun, laugardag, klukkan 14:00, verður…Lesa meira

true

Bjóða út veiði í Straumfjarðará til fimm ára

Veiðifélag Straumfjarðarár í Eyja- og Miklaholtshreppi hefur ákveðið að óska eftir tilboðum í leigu á ánni. Þar er bæði lax- og silungsveiði. Heildarveiðin á nýliðnu sumri var 352 laxar og er það nánast á pari við veiðina sumarið 2016 þegar veiddust 348 laxar. Veitt er á fjórar standir í ánni. Straumfjarðará verður boðin út til…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn byrja mótið á sigri

Fyrsti leikur 1. deildar karla í körfuknattleik fór fram þegar Skallagrímur heimsótti lið FSu á Selfoss. Skallagrímur bar sigurorð af liði FSu þegar liðin mættust í upphafsleik 1. deildar karla í körfuknattleik í gær. Um hörkuleik var að ræða sem Skallagrímur sigraði með sex stigum, 82-88. Jafnræði var með liðunum fyrstu mínúturnar en Borgnesingar voru…Lesa meira