Fréttir

true

Átaki hrundið af stað í dag – Vertu snjall undir stýri!

Í dag mun Slysavarnafélagið Landsbjörg, ásamt nokkrum samstarfsfyrirtækjum, ýta úr vör verkefni sem kallað er: „Vertu snjall undir stýri”. Félagið hefur unnið ötult starf við slysavarnir í gegnum tíðina en þetta er í fyrsta skipti sem Landsbjörg kemur að málefnum tengdum umferðinni. Gríðalega hröð þróun hefur verið í notkun snjalltækja undanfarin ár og sýna slysatölur,…Lesa meira

true

Svavar Örn fékk silfur á NM unglinga

Norðurlandamót unglinga í kraftlyftingum var haldið í Molde í Noregi um síðustu helgi. Kraftlyftingafélag Akraness átti einn fulltrúa í hópnum sem keppti fyrir Íslands hönd, Skagamanninn Svavar Örn Sigurðsson. Hann keppti í klassískum kraftlyftingum þar sem hann lyfti 200 kg í hnébeygju, 135 kg í bekkpressu og 230 kg í réttstöðulyftu. Samanlagt lyfti hann því…Lesa meira

true

Þrjár þingkonur tilkynna brotthvarf sitt úr stjórnmálum

Undirbúningur fyrir kosningar til Alþingis er nú hafinn í röðum sitjandi stjórnmálamanna og annarra sem hyggjast bjóða fram krafta sína í kosningunum 28. október. Búist er við að flestir sitjandi þingmenn gefi kost á sér til endurkjörs en þó eru undantekningar frá því. Að minnsta kosti þrjá þingkonur hafa tilkynnt að þær sækist ekki eftir…Lesa meira

true

Fallið frá byggingu sólarkísilverksmiðju á Grundartanga

Silicor Materials Icleland ehf. hefur með formlegum hætti tilkynnt Faxaflóahöfnum að fyrirtækið hafi fallið frá áformum um byggingu sólarkísilverksmiðju í Kataneslandi við Grundartanga í Hvalfjarðarsveit. Tilkynningin felur í sér að lóðarsamningur, lóðarleigusamningur og hafnarsamningur við Faxaflóahafnir, sem upphaflega voru undirritaðir í apríl 2015, taka ekki gildi. „Öll réttindi og allar skyldur beggja aðila á grundvelli…Lesa meira

true

Róðurinn að þyngjast hjá Víkingi

Víkingur Ó. og Víkingur R. mættust í fallbaráttuslag í Pepsi deild karla í gær. Leikurinn, sem fór fram í Ólafsvík, átti upphaflega að fara fram á sunnudaginn en var frestað um sólarhring vegna veðurs. Ekki var veðrið ákjósanlegt til knattspyrnuiðkunar í gær heldur, grenjandi rigning og töluverður strekkingur, en nógu gott til að hægt væri…Lesa meira

true

Myndsköpun við farfuglaheimili í þágu friðar

Árlega fagna alþjóðasamtök Farfuglaheimila, Hostelling International, fjölbreytileika mannlífs í Friðarvikunni. Með því vilja samtökin vekja athygli á mikilvægi friðar og hlutverki Farfuglaheimila í að auka menningarlæsi og tengja saman fólk hvaðanæva að úr heiminum. Næstkomandi laugardag býðst öllum að taka þátt í myndsköpun undir berum himni fyrir framan nokkur farfuglaheimili í Reykjavík, en einnig framan…Lesa meira

true

Koma á fót meistaraflokksráði ÍA

Aðalstjórn Knattspyrnufélags ÍA hefur ákveðið að setja á laggirnar sérstakt meistaraflokksráð karla. Hlutverk ráðsins er að eiga reglubundin samskipti við þjálfara meistaraflokks karla og 2. flokks karla um markmið og árangur. „Gengi meistaraflokks karla hefur ekki verið samkvæmt væntingum í sumar og staða félagsins í Pepsi-deildinni er erfið. Á sama tíma erum við með ungt…Lesa meira

true

Klukka gefin til minningar um Stefán Jóhann Sigurðsson

Síðastliðinn sunnudag hefði Stefán Jóhann Sigurðsson í Ólafsvik orðið 80 ára, en hann lést árið 2015. Stefán Jóhann lagði alltaf mikið af mörkum til byggðarlagsins ekki síst í félags-, íþrótta- og æskulýðsmálum. Má þar nefna sveitarstjórnarmál, en einnig var hann í forystu hjá Ungmennafélaginu Víkingi til margra ára. Þá sá hann í mörg ár um…Lesa meira

true

Stelpurnar okkar mæta Færeyingum í kvöld

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Færeyjum í undankeppni HM. Liðin mætast á Laugardalsvelli klukkan 18:15 í kvöld, en frítt er inn fyrir áhorfendur. Litlar breytingar eru á liðinu frá því á EM í Hollandi. Samkvæmt Uefa.com mun Ísland spila 4-3-3 í leiknum í dag en Elín Metta Jensen er fremst.Lesa meira

true

Rjúfa þing á kjördag sem verður 28. október

Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands tilkynnti í dag að starfsstjórn fráfarandi ríkisstjórnar muni sitja fram að kosningum til Alþingis. Þær hafa verið ákveðnar laugardaginn 28. október, 354 dögum eftir þær síðustu. Forseti varð við beiðni Bjarna Benediktssonar um að þing verði rofið sama dag. Fram kom á blaðamannafundi sem forsetinn hélt í dag að ekki…Lesa meira