
Grundarfjarðarbær hefur ákveðið að nýta tækifærið á meðan malbikunarframkvæmdir standa yfir á Snæfellsnesi og malbika hluta af hringnum í kringum íþróttavöll bæjarins. Verktakar voru að undirbúa malbikunina þegar ljósmyndara bar að garði en það á að gera hlaupabraut og tilhlaupsbrautir fyrir stökkgryfjur í þessari atrennu. Þetta mun bæta aðstöðuna fyrir frjálsíþróttir til muna en fyrir…Lesa meira








