Fréttir

true

Tónlistarskóli Borgarfjarðar stendur á fimmtugu

Fimmtudaginn 7. september næstkomandi verða 50 ár liðin frá stofnun Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Skólinn var stofnaður þennan sama dag árið 1967 og voru það félagar í Tónlistarfélagi Borgarfjarðar sem höfðu forgöngu að stofnun hans. Til stendur að halda upp á daginn með opnu húsi með pompi og prakt á sjálfan afmælisdaginn, fimmtudaginn í næstu viku. „Hugmyndin…Lesa meira

true

Ræða sameingingarmál á íbúafundum

Nefnd um sameiningu sveitarfélaganna Helgafellssveitar, Grundarfjarðar og Stykkishólmsbæjar vinnur að úttekt um kosti og kalla sameiningar sveitarfélaganna þriggja. Boðað hefur verið til íbúafundar um sameininguna í öllum þremur sveitarfélögunum á næstunni; í Stykkishólmi miðvikudaginn 6. september í Hótel Stykkishólmi frá kl. 17:00 til 19:15, sama dag í félagsheimilinu Skildi í Helgafellssveit frá kl. 20:00 til…Lesa meira

true

Nýliðaþjálfun hefst í næstu viku hjá Björgunarfélagi Akraness

Framundan er inntaka nýliða í Björgunarfélag Akraness. Á hverju hausti geta áhugasamir byrjað þjálfun til inngöngu í félagið. Um upplagt tækifæri er að ræða fyrir alla sem taka vilja taka þátt í gefandi starfi við leit og björgun á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þriðjudaginn 5. september klukkan 20 verður haldinn kynningarfundur fyrir nýliða í húsi Björgunarfélagsins…Lesa meira

true

Byggingaleyfi að verslunar- og þjónustuhúsi í Borgarnesi

Á afgreiðslufundi byggingafulltrúa Borgarbyggðar í síðustu viku var tekið fyrir erindi Borgarlands ehf. um nýbyggingu við Digranesgata 4 í Borgarnesi, á lóðinni milli Arionbanka og Bónus. Þar er ráðgert að reisa 1.027 fm. verslunar- og þjónustuhús á einni hæð. Byggingunni er ætlað að hýsa smávöruverslun með lager, skyndibitastöðum og almenningssalernum. Um er að ræða fyrri…Lesa meira

true

Er fjórði ættliður í beinan karllegg garðyrkjubænda á Laugalandi

Hjalti Þórhallsson frá Laugalandi í Borgarfirði keypti sig fyrr á þessu ári inn í rekstur garðyrkjustöðvarinnar sem þar er starfrækt. Varð hann þar með fjórði ættliður garðyrkjubænda á Laugalandi. „Garðyrkjustöðin var stofnuð árið 1942 af langafa mínum, Helga Bjarnasyni og bróður hans Ólafi Þorgeiri Bjarnasyni. Þeir höfðu fest kaup á jörðinni Stafholtsveggjum og skipt henni…Lesa meira

true

Slökkvilið ekki tækjum búið fyrir sjö hæða byggingu

Nú eru í byggingu við Borgarbraut í Borgarnesi tvö hús, fimm hæða hótel og sjö hæða fjölbýlishús með 28 íbúðum. Um leið og fjölbýlishúsið rís verður það hæsta íbúðabyggingin í sveitarfélaginu. Að sögn Bjarna Kristins Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra í Borgarbyggð kallar uppbygging sem þessi á aukinn tækjabúnað slökkviliðsins til að hægt verði að bregðast við ef…Lesa meira

true

Útgerð og fiskvinnsla að líða undir lok á Akranesi – tólf starfmenn enn án atvinnu

Á morgun, fimmtudaginn 31. ágúst, verður síðasti vinnudagur í bolfisksvinnslu HB Granda á Akranesi. Þá taka gildi uppsagnir starfsfólks sem ekki fær vinnu innan fyrirtækisins eða hjá dótturfélögum þess, og ekki hefur fengið störf hjá öðrum fyrirtækjum. Eins og kunnugt er færist nú öll bolfisksvinnsla frá Akranesi og í vinnsluna við Norðurgarð í Reykjavík. Að…Lesa meira

true

Krafa um gjaldþrotaskipti Vefpressunnar tekin fyrir í næsta mánuði

Í Markaðinum, sérblaði Fréttablaðsins, er greint frá því að eignarhaldsfélagið Dalurinn hafi eignast 88,38% hlut í fjölmiðlafyrirtækinu Pressunni, sem er meðal annars móðurfélag Vefpressunnar, DV, Eyjunnar og nokkurra héraðsblaða, þar á meðal blaðsins Vesturlands. Félög í eigu Björns Inga Hrafnssonar, útgefanda Pressunnar, og Arnars Ægissonar, framkvæmdastjóra félagsins, eiga um ellefu prósenta hlut í félaginu. Í…Lesa meira

true

Minna aflaverðmæti þrátt fyrir meira magn

Aflaverðmæti íslenskra skipa í maí var tæpir 10,7 milljarðar króna sem er um 11,3% minna en í maí 2016. Í samantekt Hagstofu Íslands kemur fram að fiskafli íslenskra skipa í mánuðinum hafi engu að síður verið 27% meiri en heildaraflinn var í maí 2016, eða tæp 138 þúsund tonn. „Verðmæti botnfisksaflans nam rúmum 8 milljörðum…Lesa meira

true

Jósep Blöndal lætur af störfum eftir 27 ár í Hólminum

Jósep Ó Blöndal hefur látið af störfum sem yfirlæknir sjúkrasviðs Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í Stykkishólmi. Hann varð sjötugur í sumar og lætur því af störfum sökum aldurs. Jósep hóf störf við St. Franciskusspítala í Stykkishólmi í maí 1990 og hefur starfað þar allar götur síðan. Árið 1992 átti hann ásamt Luciu de Korte sjúkraþjálfara frumkvæði að…Lesa meira