Fréttir

true

Brugðist verði við af ábyrgð og skilningi

Sveitarstjórn Reykhólahrepps lýst á síðasta fundi sínum yfir áhyggjum af stöðu sauðfjárræktar vegna lækkunar á afurðaverði til bænda. Telur sveitarstjórn víst að bændum muni fækka verði ekki brugðist við. Það myndi hafa áhrif á önnur störf og samfélagið í heild, þar á meðal á tekjur sveitarfélagsins. Þá minnir sveitarstjórn á að landbúnaðarstefnan sé mótuð sameiginlega…Lesa meira

true

Sorphirða að breytast í Borgarbyggð

Borgarbyggð hefur frá því í vor unnið að fækkun opinna gámasvæða í sveitarfélaginu. Í og með er þetta gert vegna slæmrar umgengni við gámasvæði en einnig vegna kostnaðar við rekstur þeirra. „Þörf fyrir opin gámasvæði hefur minnkað enda hefur tunnum fyrir óflokkaðan úrgang og endurvinnsluúrgang verið komið fyrir við öll heimili í þéttbýli og dreifbýli…Lesa meira

true

Fyrirtækið Sansa hefur starfsemi á Akranesi í október

Undirbúningur fyrir opnun fyrirtækisins Sansa á Akranesi er nú í fullum gangi. Stofnandi þess er Þórður Már Gylfason, eða Doddi Gylfa, eins og hann er jafnan kallaður. Mun fyrirtækið sérhæfa sig í því að útbúa heimilismat fyrir þá sem vilja nýta sér slíka þjónustu. Starfar Sansa í anda þjónustu sem margir kannast e.t.v. við undir…Lesa meira

true

Nýir eigendur að Baulunni

Hjónin Kristberg Jónsson og Sigrún Tómasdóttir hafa selt allt hlutafé í veitingastaðnum og versluninni Baulunni í Stafholtstungum. Kaupendur eru félagið Vestur 26 ehf. sem er í eigu þriggja einstaklinga á höfuðborgarsvæðinu. Söluverð er trúnaðarmál. Afhending eigna og rekstrar fer fram næstkomandi föstudag, 1. september. Sigrún og Kristberg hafa rekið Bauluna í rúm 18 ár og…Lesa meira

true

Leggur til að flaggað verði í hálfa stöng á föstudaginn

“Landsbyggðarþingmenn verða að fara að standa undir nafni og hætta að verja kvótakerfið. Varðmenn kvótakerfis leynast víða, því miður. Nú er nóg komið.  Ég legg til að flaggað verið í hálfa stöng á föstudaginn, en síðan verði blásið til sóknar,” skrifar Stefán Skafti Steinólfsson í harðorðri grein þar sem hann færir í tal afleiðingar kvótakerfisins…Lesa meira

true

Íbúafundur í Reykhólahreppi um skólastefnu

Stýrihópur um skólastefnu Reykhólahrepps boðar til fundar um skólastefnu hreppsins í sal Reykhólaskóla fimmtudaginn 31. ágúst kl. 17:00. Boðið verður upp á súpu á fundinum. „Sátt og samvinna eru mikilvægar við gerð skólastefnu, það er lykilatriði að samfélagið fái að tækifæri til að koma að vinnunni, hvort sem bein tenging við skólann er eða ekki,“…Lesa meira

true

Ísland hefur leik í Eurobasket á morgun

Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik hélt út til Finnlands á mánudaginn og leikur á morgun, fimmtudag, sinn fyrsta leik í Evrópumótinu í körfuknattleik, Eurobasket 2017. Grikkir eru andstæðingar Íslands í fyrsta leiknum á mótinu. Craig Pedersen, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfuknattleik, kynnti lokahóp liðsins á sunnudaginn og Vestlendingar eiga að sjálfsögðu sínar tengingar við liðið. Arnar…Lesa meira

true

Opna CrossFit stöð á Akranesi í næsta mánuði

Bræðurnir Gunnar Smári og Jóhann Örn Jónbjörnssynir ásamt Sunnefu Burgess hafa unnið hörðum höndum síðustu mánuði að undirbúningi vegna opnunar CrossFit stöðvar á Akranesi. Stöðin, sem hefur fengið nafnið CrossFit Ægir, verður opnuð 11. september og verður til húsa við Vesturgötu 119. „Við höfum sjálf verið að æfa CrossFit í Sporthúsinu í Kópavogi en okkur…Lesa meira

true

Innheimta meira í heimtökugjald en fæst fyrir meðaldilk

„Sláturkostnaður á heimtökudilka er kr. 6.000 á stk. Veittur er 2.000 kr. afsláttur til þeirra sem leggja inn meira en 100 dilka, á fyrstu 12 dilkana í heimtöku. Afsláttur gerður upp að lokinni sláturtíð.“ Orðrétt þannig hljómar tilkynning til sauðfjárbænda sem hyggjast leggja inn fé til slátrunar hjá Kaupfélagi Skagfirðinga í haust. Þá er tekið…Lesa meira

true

Skallagrímur missti af úrslitakeppninni

Skallagrímur rétt missti af úrslitakeppni 4. deildar karla í knattspyrnu. Liðið tók á móti Ými í lokaleik C riðils á laugardag og þurfti á sigri að halda til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni, þar sem leikið er um sæti í 3. deild næsta sumar. Skallagrímsmenn urðu hins vegar að játa sig sigraða gegn Ými,…Lesa meira