Fréttir

true

Kári í góðri stöðu í 3. deildinni

Kári heimsótti Reyni frá Sandgerði í 3. deild karla í knattspyrnu sl. fimmtudag. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli og komu öll mörkin í fyrri hálfleik. Heimamenn komust yfir strax á 4. mínútu með marki Tomislavs Misura og Strahinja Pajic bætti öðru marki við á 31. mínútu. Eggert Kári Karlsson minnkaði muninn fyrir Kára fimm mínútum…Lesa meira

true

Samráðshópar um málefni fatlaðra og íbúa af erlendum uppruna

Í næsta mánuði taka til starfa tveir samráðshópar á vegum Akraneskaupstaðar. Annars vegar starfshópur um málefni fatlaðra einstaklinga og hins vegar samráðshópur um málefni íbúa af erlendum uppruna á Akranesi. „Aðdragandi þessara starfshópa er sá að Akraneskaupstaður samþykkti mannréttindastefnu þar sem mælt var fyrir að samráð skyldi haft við jaðarhópa samfélagsins um málefni sem þá…Lesa meira

true

Skattbyrði launafólks hefur aukist mikið á tveimur áratugum

Samkvæmt nýrri skýrslu hagdeildar Alþýðusambands Íslands um þróun á skattbyrði launafólks hefur skattbyrði aukist í öllum tekjuhópum á tímabilinu frá 1998-2016 en aukningin er langmest hjá þeim tekjulægstu. Skoðað var samspil tekjuskatts, útsvars og persónuafsláttar auk barna- og vaxtabóta. Fram kemur að t.d. skattbyrði para á lágmarkslaunum með tvö börn og lágmarks eigið fé í…Lesa meira

true

Rokkveisla í harðari kantinum

Blásið var til rokkveislu í harðari kantinum í Jónsbúð á Akranesi síðastliðinn laugardag. Sjö hljómsveitir af Akranesi, sem mismikið hafa starfað undanfarin ár, stigu á stokk við mikinn fögnuð gesta. Á stokk stigu sjö hljómsveitir af Akranesi, sem hafa verið misáberandi undanfarin ár. Fram komu sveitirnar Skrímsl, Hector Rektor, O‘Bannion, xGADDAVÍRx ásamt hinum fornfrægu Skagasveitum…Lesa meira

true

Framlengja frest fyrir umhverfistilnefninga

Sveitarfélagið Borgarbyggð hefur framlengt frest til að skila inn tilnefningum til umhverfisviðurkenninga sveitarfélagsins til 1. september nk. Veittar verða viðurkenningar fyrir snyrtimennsku og íbúar hvattir til að tilnefna í flokkunum snyrtilegasta bændabýlið, snyrtilegasta lóð við íbúðarhús og snyrtilegasta lóð við atvinnuhúsnæði. Þá verður sérstök viðurkenning umhverfis,- skipulags- og landbúnaðarnefndar veitt vegna umhverfismála. „Óskað er eftir…Lesa meira

true

Horft fram á gríðarlegt tekjutap sauðfjárbænda í Dölum

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur lýst áhyggjum sínum af stöðu sauðfjárræktar vegna boðaðrar lækkunar á afurðaverði til bænda á komandi sláturtíð. Eftirfarandi bókun var samþykkt á síðasta sveitarstjórnarfundi hinn 22. ágúst: „Sveitarstjórn Dalabyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu sauðfjárræktar og áhrifum tekjusamdráttar á bændur og samfélagið allt en sauðfjárrækt er meginatvinnugrein íbúa Dalabyggðar. Boðuð lækkun afurðaverðs…Lesa meira

true

Gagnvirk upplýsingasíða um dýravakt

Matvælastofnun hefur tekið í notkun nýja Fésbókarsíðu undir yfirskriftinni „Dýravakt Matvælastofnunar.“ Tilgangur síðunnar er að skapa gagnvirkan vettvang til að miðla upplýsingum um heilbrigði og velferð dýra milli Matvælastofnunar, dýraeigenda og almennings, annars vegar með upplýsingagjöf frá stofnuninni til dýraeigenda um dýravelferðarmál og hins vegar með upplýsingagjöf frá almenningi til Matvælastofnunar þegar grunur leikur á…Lesa meira

true

Flestir sýna stöðu sauðfjárbænda aukinn skilning

Auka aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda, sem boðað hafði verið til síðastliðinn föstudag, var frestað daginn áður. Var það gert í ljósi boðaðra tillagna stjórnvalda að lausn vanda sauðfjárbænda. „Landssamtök sauðfjárbænda (LS) hafa verið í viðræðum við stjórnvöld frá því í mars um stöðu greinarinnar og yfirvofandi verðfall til bænda. Í þeim viðræðum hafa LS ásamt Bændasamtökum…Lesa meira

true

Tveir félagar úr GL í flokki bestu í ungmennagolfinu

Uppskeruhátíð yngri spilara á Íslandsbankamótaröðinni í golfi fór fram á sunnudaginn í íþróttamiðstöð GKG að loknu lokamóti tímabilsins hjá yngri kylfingum landsins. Alls voru sex mót á dagskrá tímabilsins og tóku 208 keppendur þátt í þeim. Stigameistarar voru krýndir á lokahófinu í fjórum aldursflokkum hjá báðum kynjum. Golfklúbbur Reykjavíkur átti fimm af alls stigameisturum sumarsins…Lesa meira

true

Jafntefli við erfiðar aðstæður

ÍA og Þróttur R. áttust við í 1. deild kvenna í knattspyrnu síðastliðinn föstudag. Liðin mættust á Akranesi og aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru ekki þær bestu. Strekkingsvindur var á vellinum og rigning með köflum. Setti það verulega mark sitt á leikinn því bæði lið áttu erfitt með að finna taktinn og byggja upp spil. Engu…Lesa meira