Fréttir

true

Óvenjulegur tónlistarflutningur í síðustu messu sumarsins

Næstkomandi sunnudag klukkan 14:00 verður síðasta messa sumarsins í Reykholtskirkju, Höfuðdagsmessa. Við messugjörðina mun Umbra Ensemble, sem fæst við ævaforna og nýja tónlist, sjá um tónlistarflutning. Flutt verða verk eftir Hildigerði af Bingen (1098 – 1179) ásamt öðru. Að sögn séra Geirs Waage sóknarprests var Hildigerður von Bingen abbadís af Benediktsreglu, dulpekingur og tónskáld, ráðgjafi…Lesa meira

true

Hótelviðbygging í Reykholti tekur á sig mynd

Unnið er að stækkun Fosshótels Reykholti og verið að reisa nýbyggingu með 28 hótelherbergjum. Sjálft hótelið var enduropnað í vor eftir gagngerar breytingar innandyra. Nú er unnið að reisingu húseininga sem koma frá Smellinn á Akranesi. Lokið var í síðustu viku að reisa framhlið byggingarinnar, eins og sést á meðfylgjandi mynd sem Björn H Sveinsson…Lesa meira

true

Árgangur ’59 færðu Leyni útibekk að gjöf

Félagar úr 1959 árgangnum á Akranesi gerðu sér glaðan dag síðastliðinn laugardag. Þeir hittust á Garðavelli eftir hádegi, skiptu sér í holl og spiluðu golf, en það er árviss viðburður þessa hóps. Fleira gerir hópurinn sér til skemmtunar og til að slíkt sé mögulegt greiða skólafélagarnir í sjóð til að standa straum af kostnaði við…Lesa meira

true

Allt að fjörutíu prósent íbúða í eigu fólks utan sveitarfélags

Í síðustu viku kom út hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi skýrslan: „Fjarbúar og fasteignamarkaður á landsbyggðunum.“ Fyrirbrigði sem nefnist „fjarbúaspenna“ var í brennidepli í þessarar skýrslu, en til að finna út spennustigið er fjölda annarra heimila deilt með heildarfjölda íbúða í viðkomandi sveitarfélagi. „Önnur heimili eru íbúðir í tilteknu sveitarfélagi sem eru í eigu fjarbúa…Lesa meira

true

Veiðiþjófar komust undan með net og stangir

Um kvöldmatarleytið í gær sást til tveggja manna við ólöglegar veiðar á bökkum Norðurár í Borgarfirði. Voru þeir bæði með net og veiðistangir á árbakkanum á þekktum veiðistað skammt frá Hafþórsstöðum í Norðurárdal. Stangveiðimenn í ánni gerðu lögreglu viðvart. Þegar þeir hugðust gefa sig á tal við hina meintu veiðiþjófa lögðu þeir á flótta á…Lesa meira

true

Tap í fyrsta leik Evrópumótsins

Ísland tapaði fyrir Grikkjum, 90-61, í fyrsta leik liðsins á Evrópumóti karla í körfuknattleik í dag. Grikkir byrjuðu afar vel í leiknum og virtust ætla að stinga af. Staðan að loknum fyrsta leikhluta var 26-10, Grikkjum í vil. Ísland átti skínandi fínan annan leikhluta og hægt og síðandi komst liðið inn í leikinn að nýju.…Lesa meira

true

Opus lögmenn hafa opnað útibú í Borgarnesi

Fyrr í ágústmánuði var útibú lögmannsstofunnar Opus lögmanna opnað að Skallagrímsgötu 3 í Borgarnesi. Einn eigenda stofunnar, Flosi H. Sigurðsson hdl., er búsettur í Borgarnesi og veitir þaðan alla almenna lögfræðiþjónustu. „Ég flutti í Borgarnes í júlí í fyrra og hef að hluta til unnið að heiman síðan þá og tekið á móti viðskiptavinum á…Lesa meira

true

Kjötveislan mikla er hafin – Nettó býður kjöt undir kostnaðarverði

Meðfylgjandi mynd er skjáskot af auglýsingu á heimasíðu verslanakeðjunnar Nettó. Verslunin býður nú lambalæri á 794 krónur kílóið, en það jafngildir 47% verðlækkun. Fastlega er búist við að svipuð tilboð fylgi í kjölfarið hjá fleiri verslunum. Þess má þó geta að kílóið af lambalæri var í gær á 1.850 krónur í Costco í Garðabæ svo…Lesa meira

true

Gagn og gaman endurútgefið eftir áratuga hlé

Bókaútgáfan Sæmundur á Selfossi hefur endurútgefið hina áhrifaríku kennslubók; Gagn og gaman. Með því að stauta sig í gegnum bókina lærðu þúsundir Íslendinga lestur og á hún því sterk tök í huga margra sem komnir eru til vits og ára. Bókin var nær einráð við lestrarkennslu yngstu barna í hálfa öld. Hún byggðist á hljóðaðferð…Lesa meira