Fréttir

true

Nýjar námsgreinar í meistaranámi fá góðar viðtökur

Reiknað er með svipuðum fjölda nýnema við Háskólann á Bifröst og á síðasta ári, eða um 220 nemendum. Nýjum meistaranemum við skólann fjölgar töluvert, úr um 70 í fyrra í 100 í ár. „Meistaranámið við Háskólann á Bifröst er í sókn en meistaranemar eru yfirleitt fólk sem tekur nám með fullri vinnu og er að…Lesa meira

true

Byrjað að reisa fjölbýlishús við Borgarbraut

Við Borgarbraut 57 í Borgarnesi er nú búið að reisa fyrstu hæð nýs fjölbýlishúss við hlið hótelsins sem langt komið er að reisa á lóðinni númer 59. Hótelbyggingin verður fjórar hæðar en á fimmtu hæðinni verður inndregin bygging með stórum hótelherbergjum, eða svítum. Hótelið verður alls með 84 herbergjum. Íbúðablokkin á lóð 57 verður lítið…Lesa meira

true

Orkuveitan hagnast mikið

„Lækkandi rekstrarkostnaður hjá Orkuveitu Reykjavíkur á sama tíma og ýmis ytri skilyrði voru hagstæð skópu fyrirtækinu talsverðan hagnað á fyrri helmingi ársins,“ segir í tilkynningu frá OR. Samkvæmt árshlutareikningi sem birtur hefur verið var afkoma fyrirtækisins jákvæð sem nam 7,3 milljörðum króna fyrstu sex mánuði ársins 2017. Innan samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur eru, auk móðurfélagsins, Veitur,…Lesa meira

true

Nýtt pottasvæði vígt á Akranesi á morgun

Formleg vígsla á nýju pottasvæði sundlaugarinnar við Jaðarsbakka á Akranesi verður á morgun, laugardaginn 26. ágúst, kl. 9:15. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Þórður Guðjónsson, formaður skóla- og frístundaráðs, munu klippa á borða og bjóða fyrstu gestina velkomna í nýju pottana. Í tilefni vígslunnar verður hægt að skella sér í sund á Jaðarsbökkum án endurgjalds…Lesa meira

true

Fjárréttir á Vesturlandi haustið 2017

Bændablaðið hefur birt árlegt yfirlit sitt um fjár- og stóðréttir í haust. „Listinn er unninn með þeim hætti að leitað er til sveitarfélaga um upplýsingar. Víða hafa bændur og ráðunautar lagt hönd á plóg, en þó er tekið fram í frétt Bbl. að á nokkrum stöðum eru gloppur í listanum þar sem umbeðnar upplýsingar hafa…Lesa meira

true

Laxveiðin betri á Vesturlandi en í öðrum landshlutum

Laxveiðinni í sumar hefur verið misskipt milli landshluta. Almennt eru árnar á Norðurlandi og Vestfjörðum að gefa lakari veiði en í fyrra, en þó með undantekningum. Einkum eru þurrkar og vatnsleysi orsökin. Vestlensku árnar eru að skila mjög misjöfnum árangri, en í flestum tilfellum stefnir í betri veiði en síðasta sumar. Þannig eru dæmi um…Lesa meira

true

Byggðarráð lýsir þungum áhyggjum af stöðu sauðfjárbænda

„Byggðaráð Borgarbyggðar lýsir miklum áhyggjum yfir boðaðri lækkun á afurðaverði til sauðfjárbænda á komandi sláturtíð,“ segir í bókun sem ráðið samþykkti á fundi sínum í morgun. Þá segir: „Haustið 2015 var vegið meðalafurðaverð til bænda um 600 kr./kg. Haustið 2016 lækkaði afurðaverð til sauðfjárbænda um ríflega 10% og var vegið meðalverð um 538 kr./kg. Haustið…Lesa meira

true

Bygging Guðlaugar hefst við Langasand í september

Gengið hefur verið frá samningi milli Akraneskaupstaðar og Ístaks um byggingu Guðlaugar við Langasand. Guðlaug verður heit laug sem verður á þremur hæðum í grjótgarðinum við Langasand. Á fyrstu hæðinni verður grunn vaðlaug, á þeirri næstu heit setlaug og sturtur og á efstu hæðinni útsýnispallur. Samningurinn við Ístak hljóðar upp á 74 milljónir auk þess…Lesa meira

true

Hvalfjarðardagar verða haldnir um helgina

Dagana 25.-27. ágúst fer fram hátíðin Hvalfjarðardagar með veglegri dagskrá. Hátíðin hefur verið haldin frá 2008 en frá 2012 í þeirri mynd sem hún er í dag. „Hátíðin hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Fyrst var um að ræða einn dag en nú er þétt dagskrá alla helgina. Í ár verður hátíðin blanda af…Lesa meira

true

Minnsta atvinnuleysi frá því mælingar hófust

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 201.900 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í júlí 2017, sem jafngildir 83,3% atvinnuþátttöku. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 82,5% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 1%. Er þetta lægsta mæling atvinnuleysis frá því að samfelldar mælingar Hagstofunnar hófust árið 2003.Lesa meira