Fréttir

true

Lambakjöt er þjóðarréttur Íslendinga

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem unnin var fyrir Kokkalandsliðið af Gallup þá telja Íslendingar að lambakjöt sé þjóðarréttur Íslendinga. Nærri 74% landsmanna álíta að lambakjöt og lambakjötsréttir séu þjóðarréttur Íslendinga. Rannsóknin var netkönnun framkvæmd á tímabilinu 22. mars – 1. apríl 2016. Úrtakið í könnuninni var 1418 manns á öllu landinu, 833 svöruðu eða 58,7%. Það…Lesa meira

true

Uppfært – Einn slasaður eftir að húsbíll fauk á hliðina

Síðdegis í dag varð umferðaróhapp á þjóðveginum milli bæjanna Grundar og Kvernár í Grundarfirði. Þar er nú bálhvasst og slæmt ferðaveður. Samkvæmt heimildum Skessuhorns fauk húsbíll á hliðina með fjóra erlenda ferðamenn innanborðs. Sjúkrabíll og tækjabíll slökkviliðs voru kallaðir á vettvang. Einn mun hafa slasast alvarlega. Var hann fluttur til móts við þyrlu Landhelgisgæslunnar sem lenti á móts við Vegamót…Lesa meira

true

Boðar blandað námsstyrkjakerfi að norrænni fyrirmynd

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra mun í næstu viku leggja fram frumvarp um heildarendurskoðun laga um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Meðal helstu breytinga í frumvarpinu má nefna að námsmenn í fullu námi geta fengið 65.000 krónur á mánuði í beinan styrk. Áfram verður þó veitt námsaðstoð í formi lána á hagstæðum kjörum. Samkvæmt frumvarpinu verður námsstyrkurinn greiddur í allt…Lesa meira

true

Sumarleikár Frystiklefans hefst í næstu viku

Á miðvikudaginn hefst nýtt Sumarleikár Frystiklefans í Rifi. Það mun standa yfir mánuðina júní, júlí og ágúst þar sem fimm leiksýningar verða í hverri viku. Þar að auki tekur leikhúsið við sérpöntunum á leiksýningar og má því búast við að sýningar hússins verði á milli 75 og 90 í sumar. Sýningarnar verða ýmist sýndar á…Lesa meira

true

Rýmka reglur um lítil matvælafyrirtæki

Matvælastofnun vill vekja athygli á drögum að nýrri reglugerð um lítil matvælafyrirtæki og hefðbundin matvæli. Þessi reglugerðardrög eru nú til kynningar á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis. „Markmiðið með nýrri reglugerð er að auðvelda sláturhúsum, fiskmörkuðum og litlum matvælafyrirtækjum að uppfylla kröfur í hollustuhátta- og eftirlitsreglugerðum. Þetta er gert með því að slá af ítrustu kröfum…Lesa meira

true

Feban opnaði síðu og Facebook

Félag eldri borgara á Akranesi og nágrenni, FEBAN, opnaði nýja heimasíðu í gær og byrjaði auk þess með Facebook síðu. Báðar síðurnar eru undir heitinu; Feban. Það var Ásdís Magnúsdóttir, náttúrutalent á níræðisaldri sem opnaði heimasíðuna formlega. Af því tilefni færði Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri henni blóm, sem Ásdís tók á móti fyrir hönd allra sem tilheyra þriðju…Lesa meira

true

ATON húsgögn til sýnis í Norska húsinu

Sýning um húsgagnasmiðjuna ATON, sem var starfrækt í Stykkishólmi á árunum 1968 til 1975, verður opnuð í dag, föstudaginn 27. maí, kl. 17:00 í Norska húsinu, byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla í Stykkishólmi. Það voru þau Dagbjartur Stígsson og Hrafnhildur Ágústsdóttir sem stofnuðu ATON húsgagnasmiðjuna. Hugmyndin af sýningunni kviknaði hjá Hjördísi Pálsdóttur safnastjóra. „Það var eitthvað…Lesa meira

true

Smávægilegar breytingar á afgreiðslustöð Olís í Borgarnesi

Þegar blaðamaður var staddur í Borgarnesi fyrr í vikunni brá hann sér inn fyrir dyr bensínstöðvar Olís til að greiða fyrir eldsneyti á blaðfákinn og kaupa blek í pennann, sem eins og allir vita er máttugri en sverðið. Blasti þá við honum að framkvæmdir stóðu yfir innanstokks á bensínstöðinni. Veggurinn að bakvið afgreiðsluborðið hafði verið fjarlægður…Lesa meira

true

Síminn býður nú 4G samband í Grundarfirði og Búðardal

Grundarfjörur og Búðardalur hafa nú bæst við þá staði þar sem 4G samband frá Símanum næst. Þá vinnur Síminn að því að þétta 4G netið á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og Akranesi á árinu. „Samtals nær 91% landsmanna 4G sambandi hjá Símanum. Á síðustu vikum hafa fjölmargir staðir bæst í hópinn. Auk tveggja fyrsnefndu staðanna tengdi Síminn…Lesa meira

true

Heimsborgari gerist sveitakona – fyrirlestur um frú Önnu

Snorrastofa lýkur litríkri vetrardagskrá sinni þriðjudaginn 31. maí kl. 20:30 með fyrirlestri í hátíðarsal gamla héraðsskólans í Reykholti um gengna merkiskonu, frú Önnu Bjarnadóttur (1897–1991), sem um áratuga skeið bjó þar ásamt manni sínum, sr. Einari Guðnasyni. Héraðsskólinn var hennar starfsvettvangur þar sem hún miðlaði ungum nemendum af brunni yfirburðamenntunar sinnar og þjónaði samfélagi sínu…Lesa meira