Fréttir

true

Stykkishólmur Cocktail Weekend er framundan

Dagana 6.- 8. júlí verður hátíðin Stykkishólmur Cocktail Weekend haldin í Hólminum. Þetta verður í annað sinn sem hátíðin er haldin en hún heppnaðist afar vel í fyrra og má því búast við góðri þátttöku í ár. Hátíðin er skipulögð af tveimur ungum Hólmurum, þeim Jóni Viðari Pálssyni og Ívari Sindra Karvelssyni sem báðir hafa…Lesa meira

true

Brautarmet í karla- og kvennaflokki slegin í Álmanninum

Á Akranesi var í síðustu viku haldin þríþrautin Álmaðurinn. Keppnin er smækkuð útgáfa af Járnmanninum sem margir þekkja. Álmaðurinn er skipulagður af Sjóbaðsfélagi Akraness í samstarfi við Björgunarfélag Akraness og ÍA. Álmaðurinn í ár hófst við Akraneshöll þar sem keppendur hjóluðu upp að Akrafjalli en leiðin er 5,5 kílómetrar, 1,3 km á malbiki og 4,2…Lesa meira

true

Auka leikskólapláss á Akranesi

Skessuhorn greindi frá því í síðustu viku að Akraneskaupstaður ætlar að innrita leikskólabörn oftar á ári en hingað til hefur aðeins verið innritað í leikskóla í ágúst. Skortur hefur verið á plássi hjá bæði dagforeldrum og leikskólum að undanförnu og sagði Þórður Guðjónsson, formaður skóla- og frístundarráðs í samtali við Skessuhorn í síðustu viku, að…Lesa meira

true

Gestir og þátttakendur ánægðir með fjórðungsmótið

Hestamenn héldu fimm daga Fjórðungsmót Vesturlands í liðinni viku í Borgarnesi. Mótið var nú í fyrsta skipti haldið á félagssvæði Skugga við Vindás. Óhætt er að segja að mikil og almenn ánægja hafi verið með hvernig til tókst með mótið og er keppnissvæðið í Borgarnesi og umgjörðin öll sögð til fyrirmyndar. Þeirri ánægju lýstu jafnt…Lesa meira

true

Vel heppnaðir og fjölmennir Írskir dagar í ár

Írskir dagar voru haldnir á Akranesi um liðna helgi en þetta var í átjánda skipti sem hátíðin er haldin. Hún var með hefðbundnu sniði að þessu sinni þar sem stærstu viðburðir helgarinnar voru götugrillin og tónleikar á hafnarsvæðinu á föstudag, fjölskylduskemmtun á Akratorgi, brekkusöngur og Lopapeysan á laugardag. Þá var leikhópurinn Lotta með sýningu í…Lesa meira

true

Tafir á umferð undir Hafnarfjalli

Starfsmenn Hlaðbaks-Hóla vinna nú að malbikun þjóðvegar 1 undir Hafnarfjalli. Um er að ræða kaflann frá Móhólsmelum í norðri og allt að Melasveitarvegi í suðri og er akreininni lokað á meðan. Framkvæmdir hófust í morgun. Umferð framhjá vinnusvæðinu er stýrt með ljósum og hefur umferðarhraði verið lækkaður. Nokkrar tafir hafa verið á umferð af þessum…Lesa meira

true

Ólafsvíkurvakan tókst með ágætum og veðrið lék við fólk

Fjölmenni var á bæjarhátíðinni Ólafsvíkurvöku sem fór fram um síðustu helgi. Veðrið lék við íbúa og gesti sem nutu dagskrár í sól og blíðu. Hátíðin hófst á föstudag með opnun handverks- og myndlistarsýningar í Átthagastofunni. Þar sýndu verk sín Vagn Ingólfsson og Metta Íris i Kristjánsdóttur. Dorgkeppni var fyrir börn á bryggjunni og að vanda…Lesa meira

true

Reisa nú þriðju hæð hótels við Borgarbraut

Framkvæmdir við hótelbyggingu að Borgarbraut 57-59 í Borgarnesi hófust að nýju í síðustu viku. Þá var þriðja hæð hótelsins reist, en framkvæmdir höfðu þá legið niðri í hálft ár. Jóhannes Stefánsson hjá Ánaborg ehf., sem sér um reisingu hússins, kveðst ánægður að framkvæmdirnar séu hafnar á nýjan leik. „Við byrjuðum á fullu að reisa hótelhlutann…Lesa meira

true

Stórir leikskólahópar mestu streituvaldarnir

Akureyrarkaupstaður, Norðurland eystra, Kennarasamband Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Umhverfisstofnun og Vinnueftirlitið hafa frá 2015 unnið að tilraunaverkefni á Akureyri sem ætlað er að kortleggja hvað það er í starfsumhverfi leikskóla sem veldur mestum hávaða og hvernig hægt sé að laga slíkt. Nýverið voru niðurstöður verkefnisins birtar en þar er að finna þurfi orsakir hávaða í…Lesa meira

true

Fernir tónleikar framundan á Laugum í Sælingsdal

Fernir tónleikar eru á dagskrá næstu vikuna á Hótel Eddu á Laugum í Sælingsdal. Dalamaðurinn Tómas R. Einarssson ríður á vaðið í kvöld, miðvikudaginn 5. júlí kl. 20:30, þegar hann heldur sína árlegu tónleika. Með honum í för verða engir aðrir en Ómar Guðjónsson og Mugison. Næstkomandi laugardag, 8. júlí kl. 21:30, mun Hlynur Snær…Lesa meira