Fréttir

true

Frumsýnir á Hvanneyrarhátíð nýuppgerðan bíl úr dánarbúi Andrésar á Akri

Pétur Jónsson frá Hvanneyri keypti vorið 2016 Willys jeppa árgerð 1946. Bílinn keypti hann af dánarbúi Andrésar Kjerúlf frá Akri í Reykholtsdal. Jónas Kjerúlf, sonur Andrésar, hafði þá frá andláti föður síns 1996 geymt bílinn og beðið eftir réttu stundinni til að hann fengi viðeigandi aðhlynningu. Eftir að Pétur á Hvanneyri eignaðist bílinn hóf hann…Lesa meira

true

„Það var Skagamönnum að þakka að fyrirtækið komst á koppinn“

Það var 30. júní árið 2007 sem Apótek Vesturlands tók til starfa á Akranesi og fagnar því tíu ára rekstrarafmæli sínu um þessar mundir.  Ólafur Adolfsson, lyfjafræðingur, stofnaði apótekið og rekur það enn. „Reksturinn hefur heilt yfir gengið vel og árin hafa verið fljót að líða. Það hafa orðið miklar breytingar í rekstrarumhverfi apóteka og…Lesa meira

true

Smiðjan Fönix í stað Vélsmiðju Árna Jóns

Nýir rekstraraðilar tóku nýverið við rekstri Vélsmiðju Árna Jóns í Rifi. Þeir félagar Davíð Magnússon og Sigurður Sigþórsson hafa keypt vörulager fyrirtækisins, en leigja verkfæri og húsnæðið. Þá hafa þeir fært reksturinn undir nýtt nafn; Smiðjan Fönix. „Við munum reka vélsmiðju og verslun og verður reksturinn í svipuðum stíl og áður. Vonandi verður svo svigrúm…Lesa meira

true

Sveitamarkaðurinn á Breiðabliki er um næstu helgi

Sveitamarkaðurinn á Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi fagnar tíu ára afmæli sínu í ár. Markaðurinn verður að þessu sinni haldinn afmælishelgina 8.-9. júlí frá klukkan 12-18 í félagsheimilinu Breiðabliki. Markaðurinn varð vinsæll viðburður strax frá upphafi. Það voru konur á Snæfellsnesi sem höfðu mikinn áhuga fyrir að koma heimaframleiðslu sinni á framfæri og stofnuðu markaðinn…Lesa meira

true

Borgarbyggð hafnar bótakröfu frá byggingaverktaka

Eftir sex mánaða hlé eru nú hafnar framkvæmdir að nýju við byggingu hótels við Borgarbraut 57-59 í Borgarnesi. Tafir á verkefninu munu þó hugsanlega hafa eftirmála. Nordic lögfræðiþjónusta sendi 26. júní sl. bréf til Borgarbyggðar fyrir hönd fyrirtækis Snorra Hjaltasonar, Húss og lóða ehf. Í því er farið fram á bætur vegna meints tjóns sem…Lesa meira

true

Nefnd um endurskoðun bótakerfa

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur skipað nefnd til að endurskoða kerfi barnabóta, vaxtabóta, barnalífeyris og húsnæðibóta. Í skipunarbréfi nefndarinnar er vísað til þess markmiðs ríkisstjórnarinnar að fjárhagslegum stuðningi verði beint í ríkara mæli að lægri tekjuhópum, óháð uppruna tekna, og eigi það jafnt við um barnabætur og barnalífeyri rétt eins og húsnæðisstuðning og annan…Lesa meira

true

Leiknir gerði út um bikardraum Skagamanna

Í Breiðholti í gær mættust Skagamenn og Leiknir Reykjavík í átta liða úrslitum Borgunarbikarsins. Skagamenn voru í fyrsta sinn í áratug í átta liða úrslitum og gátu með sigri náð sínum besta árangri í fjórtán ár í bikarkeppni. Leiknir var hins vegar að spila sinn fyrsta leik í átta liða úrslitum bikarkeppninnar. Fyrir leikinn voru…Lesa meira

true

Covile aftur í Hólminn

Körfuknattleiksdeild Snæfells hefur samið á nýjan leik við Christian Covile og mun hann leika með liðinu í 1. deild karla á komandi vetri. Christian lék sem kunnugt er með Snæfelli síðasta vetur. Hann gekk til liðs við Hólmara eftir áramót og spilaði síðustu átta leiki tímabilsins þar sem hann skoraði 24 stig að meðaltali og…Lesa meira

true

Borgarbyggð sigraði Akranes í fyrstu púttkeppni sumarsins

Síðastliðinn fimmtudag fór fram árleg púttkeppni milli eldri borgara á Akranesi og Borgarbyggð. Viðureignin var sú fyrsta af þremur sem íbúar þessara sveitarfélaga leika sín á milli í sumar og er keppt um Húsasmiðjubikarinn. Keppt hefur verið um bikarinn síðustu fimm ár og voru keppendur að þessu sinni 44 sem er mesti fjöldi sem tekið…Lesa meira

true

Bora nýja heitavatnsholu í Reykholti

Þessa dagana standa yfir framkvæmdir við borun nýrrar vinnsluholu fyrir heitt vatn í Reykholti í Borgarfirði. Ræktunarsamband Flóa og Skeiða er verktaki fyrir kirkjustaðinn. Ný hola er boruð einungis 15 metrum norðan við núverandi vinnsluholu sem er frá 1974. Að sögn séra Geirs Waage sóknarprests í Reykholti er nú ráðist í borun þar sem gamla…Lesa meira