Fréttir

true

Norðurálsmót á Akranesi um helgina

Hið árlega Norðurálsmót í fótbolta fer fram á Akranesi um næstu helgi, dagana 23. – 25. júní. Mótið er fyrir drengi sem spila með 7. flokki, á aldrinum sex til átta ára. Það verður sett í Akraneshöll á föstudaginn klukkan 12 á hádegi, eftir skrúðgöngu sem hefst klukkan 11:15 við bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar. Að sögn Huldu…Lesa meira

true

Hafmeyjan mætt að nýju í Skallagrímsgarð

Hátíðarhöld á 17. júní í Borgarnesi fóru fram á nokkrum stöðum í Borgarnesi. Þar var m.a. boðið upp á andlitsmálningu, hátíðarguðsþjónusta var í kirkjunni, skátar voru með fánaborg og skrúðgöngu og þá fóru fornbílafjelagsmenn í ökuferð. Hátíðardagskrá fór fram í Skallagrímsgarði. Það setti stóran svip á samkomuna að þessu sinni að listaverkið Hafmeyjan var formlega…Lesa meira

true

Hjólakraftur lagði upp frá Borgarnesi

Síðdegis í gær hófst Hjólakraftur, eða WOW Cyclothon, þegar hópur hjólreiðafólks lagði af stað hringinn umhverfis landið frá Borgarnesi. Nú í ár er safnað fyrir Slysavarnafélagið Landsbjörg. Það átti því vel við að félagar í Björgunarfélagi Akraness og björgunarsveitunum Brák og Oki mættu í Borgarnes til að spjalla við þau 110 ungmenni sem taka þátt…Lesa meira

true

Fyrsti sigur Ólafsvíkurkvenna í sumar

Víkingur Ólafsvík vann sinn fyrsta sigur í fyrstu deild kvenna í knattspyrnu í sumar í síðustu viku. Leikurinn fór fram á Sauðárkróksvelli gegn Tindastóli og var í sjöttu umferð. Leikurinn fór 1-0 fyrir Víking og markið skoraði fyrirliðinn Fehima Líf Purisevic á elleftu mínútu. Víkingur er eftir leikinn í næstneðsta sæti með fjögur stig. Næsti…Lesa meira

true

Stefnir í fjölmennt og gott Fjórðungsmót hestamanna

„Það stefnir í gott mót og okkur sýnist veðurspáin lofa góðu. Það kólnar að vísu í veðri um næstu helgi en tekur síðan að hlýna eftir hana, einmitt þegar við byrjun dagskrána. Við erum því bjartsýn, það er góð skráning á mótið og má búast við fjölmenni,“ segir Ámundi Sigurðsson framkvæmdastjóri Fjórðungsmóts hestamanna á Vesturlandi…Lesa meira

true

Aldursforsetinn fékk sérstök verðlaun eftir kvennahlaupið

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ var meðal annars hlaupið í Ólafsvík. Þegar í mark var komið fengu allar konur verðlaunapening, ásamt Kristal og vörum frá Nieva og börnin einnig gjafir að þessu sinni sápukúlur og fleira. Sá siður hefur skapast að elsta konan sem tekur þátt hverju sinni fær verðlaun og þetta ár var engin undanteknin á…Lesa meira

true

Óvænt úrslit á Ólafsvíkurvelli

Í Ólafsvík í gær lék Víkingur gegn Stjörnunni í áttundu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu. Bjuggust margir við öruggum sigri Stjörnunnar fyrir leikinn þar sem Stjarnan var í þriðja sæti með þrettán stig og Víkingur í neðsta með fjögur stig. Það bætti ekki úr skák að Víkingur hafði ekki unnið Stjörnuna í deildarleik í áratug.…Lesa meira

true

Skagamenn unnu mikilvægan sigur á Fjölni

Í gær lauk áttundu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu. Skagamenn mættu liði Fjölnis á Akranesvelli en leikurinn var gríðarlega mikilvægur því Skagamenn voru í næstneðsta sæti með fjögur stig og Fjölnir í níunda með átta stig. Leiknum lauk með hádramatískum sigri Skagamanna þar sem rautt spjald leit dagsins ljós og úrslitin réðust í uppbótartíma. Fjölnir…Lesa meira

true

Akurey AK kom til landsins í morgun

Nýjasta skipið í fiskiskipaflota landsmanna kom til heimahafnar á Akranesi í morgun. Skipstjóri er Eiríkur Jónsson. Akurey AK-10 er annað af þremur skipum í raðsmíðaverkefni sem HB Grandi samdi um við tyrkneska skipasmíðastöð. Engey RE var fyrsta skipið og er nú búið að ljúka við uppsetningu búnaður í það skip og það farið til veiða.…Lesa meira

true

Hvessir hressilega á Snæfellsnesi síðdegis

Samkvæmt spá veðurfræðinga hvessir smám saman eftir því sem líður á daginn með sunnan- og suðaustan átt um landið vestanvert. Á norðanverðu Snæfellsnesi er því spáð að staðbundið megi reikna með vindhviðum allt að 30-35 m/s frá því um kl. 15 í dag og fram á kvöldið.Lesa meira