Fréttir

true

Skagamenn unnu mikilvægan sigur á Fjölni

Í gær lauk áttundu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu. Skagamenn mættu liði Fjölnis á Akranesvelli en leikurinn var gríðarlega mikilvægur því Skagamenn voru í næstneðsta sæti með fjögur stig og Fjölnir í níunda með átta stig. Leiknum lauk með hádramatískum sigri Skagamanna þar sem rautt spjald leit dagsins ljós og úrslitin réðust í uppbótartíma. Fjölnir…Lesa meira

true

Akurey AK kom til landsins í morgun

Nýjasta skipið í fiskiskipaflota landsmanna kom til heimahafnar á Akranesi í morgun. Skipstjóri er Eiríkur Jónsson. Akurey AK-10 er annað af þremur skipum í raðsmíðaverkefni sem HB Grandi samdi um við tyrkneska skipasmíðastöð. Engey RE var fyrsta skipið og er nú búið að ljúka við uppsetningu búnaður í það skip og það farið til veiða.…Lesa meira

true

Hvessir hressilega á Snæfellsnesi síðdegis

Samkvæmt spá veðurfræðinga hvessir smám saman eftir því sem líður á daginn með sunnan- og suðaustan átt um landið vestanvert. Á norðanverðu Snæfellsnesi er því spáð að staðbundið megi reikna með vindhviðum allt að 30-35 m/s frá því um kl. 15 í dag og fram á kvöldið.Lesa meira

true

Sumarið fer vel af stað í Leifsbúð

„Sumartraffíkin er komin ágætlega í gang. Við opnuðum fyrir páska og þetta hefur jafnt og þétt verið að aukast, það hefur verið töluverð umferð af fólki hérna það sem af er þessum mánuði,“ segir Hafliði Elíasson rekstraraðili Leifsbúðar í Dalabyggð í samtali við Skessuhorn. Hann segir gestina vera blandaða ferðamenn, bæði Íslendinga og erlenda. „Þetta…Lesa meira

true

Lúsmý angraði íbúa í Borgarfirði

Borið hefur á smáflugu um vestanvert landið að undanförnu sem talin er vera lúsmý. Flest tilfelli sem vitað er um voru á Hvanneyri fyrir og um liðna helgi, en einnig ofar í héraðinu. Á Hvanneyri kvörtuðu nokkrir íbúar undan ágangi þessar agnarsmáu og hvimleiðu boðflennu. Hér eru á ferðinni örsmáar blóðsugur sem yfirleitt leggjast á…Lesa meira

true

Hittust í tilefni kvenréttindadagsins

Kvenfélagasamband Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu hittist að venju til að halda 19. júní hátíðlegan en þá er þess minnst að þann dag árið 1915 hlutu íslenskar konur, fjörutíu ára og eldri, kosningarétt til Alþingis og fimm árum síðar öðluðust konur á Íslandi kosningarétt til jafns við karla. Skiptast kvenfélögin í sambandinu á að sjá um daginn…Lesa meira

true

Tveir heimaleikir Vesturlandsliða í kvöld

Áttundu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu lýkur í kvöld með fjórum leikjum. Vesturlandsliðin ÍA og Víkingur eiga bæði leik á heimavelli klukkan 19:15 í kvöld. Skagamenn eiga leik gegn Fjölni en fyrir leikinn eru Skagamenn í næstneðsta sæti með fjögur stig en Fjölnir í því níunda með átta stig. Víkingur vermir botnsætið í deildinni með…Lesa meira

true

Fann mannskjálka í fjöruferð

Álfheiður H. Gunnsteinsdóttir, íbúi á bænum Höfn 1 í Melasveit í Borgarfirði og Eiríkur fimm ára sonur hennar fundu kjálkabein af manni í fjöruferð í gærdag. „Við vorum bara að veiða, tína steina og krabba í fjöruferð undir Hafnarfjalli skammt frá litla vitanum nær Borgarnesi þegar við fundum kjálkabeinið efst í fjörunni. Ég var ekkert…Lesa meira

true

Sækja slasaðan ferðamann að Eldborg

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út fyrir stuttu vegna konu sem slasaðist á gönguleiðinni að Eldborg á Snæfellsnesi. Er talið að hún sé um hálfa leið að fellinu og er þetta því um 1,5 km frá vegi, segir í tilkynningu frá Landsbjörgu. Vonast er til að hægt sé að koma að flutningstæki til að auðvelda…Lesa meira

true

Gjörbreytt og betri staða Búmanna

Aðalfundur húsnæðissamvinnufélags Búmanna hsf. var haldinn á Grand hótel síðastliðinn fimmtudag að viðstöddu fjölmenni. Í ávarpi formanns félagsins kom m.a. fram að alger viðsnúningur hefur orðið á stöðu félagsins. Í stað þess að vera gjaldþrotafélag 2015 er það nú orðið stórt félag á íslenskan mælikvarða. Sala á búseturétti íbúða Búmanna hefur gengið vel á öllum…Lesa meira